Morgunblaðið - 24.02.2018, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 24.02.2018, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2018 Fjölbreytt úrval af gæða viftum frá Vent-Axia fyrir eldhúsið, baðherbergið, skrifstofuna, verkstæðið eða hesthúsið. Við aðstoðum ykkur við rétta valið. Lo-Carbon Silhouette 125 Centrif-duo Silent 12in Wall fan Hi-line Sabre Plate DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS Hreint loft og vellíðan Það borgar sig að nota það besta VENT–AXIA VIFTUR Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ir Höskuldur í svari til Morgun- blaðsins. Heimildir blaðsins herma að ólík- legt þyki að skaðabótamál gegn Valitor hafi áhrif á fyrirætlanir um skráningu bankans á hlutabréfa- markað í vor. Það helgast af því að stefnt hefur verið að því að taka Valitor úr samstæðu bankans um nokkra hríð. Líklegast yrði það gert með arðgreiðslu til hluthafa bank- ans. Höskuldur staðfestir við Morgun- blaðið að það hafi verið í skoðun að gera breytingar á eignarhaldi Valitor og þá taka félagið úr Arion banka-samstæðunni. „Að svo stöddu hefur engin ákvörðun verið tekin um slíkt, né þá með hvaða hætti. Þessi mál ættu að skýrast á næstu dögum og vikum,“ segir hann. Valitor með erlendar tekjur Höfuðástæða þess að stefnt er að því að greiða Valitor úr samstæð- unni, samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins, er að um 70% af tekjum félagsins koma að utan. Á sama tíma er stefnt að því að laða erlenda fjár- festa að Arion banka. Talið er að er- lendir fjárfestar hafi fyrst og fremst áhuga á að fjárfesta í íslensku efna- hagslífi. Það að Arion banki eigi einnig í Valitor skekkir þá mynd. Enn fremur þykir sumum fjárfest- um rekstur greiðslumiðlunar ekki fara saman við rekstur banka. Auk þess hefur Valitor vaxið hratt á und- anförnum árum og fyrirséð að fjár- festa þurfi enn frekar í rekstrinum til þess að styðja við vöxtinn. Talið er æskilegra að aðrir fjárfestar en bankinn fjármagni þann vöxt. Ávinningurinn af því að taka Valitor úr samstæðu Arion banka yrði sömuleiðis sá að arðsemi eig- infjár bankans myndi aukast og kostnaðarhlutfallið lækka. Það má rekja til þess hve kostnaðarsamt það er fyrir Valitor að fjárfesta í eigin vexti. Vöxturinn dregur tíma- bundið úr arðsemi félagsins. Krafa um kyrrsetningu rask- ar ekki skráningarferlinu Morgunblaðið/Eggert Kennitölur Arðsemi eigin fjár hjá Arion banka myndi væntanlega aukast sem og kostnaðarhlutfallið við það að taka Valitor úr samstæðu bankans.  Arion banki mun væntanlega losa sig við Valitor fyrir skráningu á markað BAKSVIÐ Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Höskuldur H. Ólafsson, forstjóri Arion banka, segist telja að krafa um kyrrsetningu eigna Valitor, dótturfélags Ar- ion banka, muni ekki hafa áhrif á næstu skref í söluferli bank- ans. Fram hefur komið í fjölmiðl- um að tvö fyrir- tæki sem önnuð- ust rekstur greiðslugáttar fyrir Wikileaks, Datacell og Sunshine Press Produc- tions, hyggist fara í skaðabótmál gegn Valitor vegna þess að félagið ákvað einhliða og án fyrirvara að loka gáttinni árið 2011. Upplýst var á fimmtudaginn að lögmaður fyrir- tækjanna muni fara fram á að sýslu- maðurinn á höfuðborgarsvæðinu kyrrsetji eignir Valitor fyrir sex og hálfan milljarð króna. „Þessi málarekstur allur hefur legið fyrir lengi. Það hefur verið gerð grein fyrir honum í ársreikn- ingum Valitor og Arion banka,“ seg- Höskuldur Ólafsson næstu árum. Áætlað er að atvinnu- vegafjárfesting hafi aukist um 3,6% á síðasta ári, en í ár eru horfur á að hún dragist saman um 4,3%. Það má rekja til minni fjárfestingar í sveiflukennd- um liðum á við skip og flugvélar, auk fjárfestinga í stóriðju og orkutengd- um verkefnum. Næstu ár er gert ráð fyrir hóflegum vexti atvinnuvegafjár- festingar. Gert er ráð fyrir að vöxtur íbúða- fjárfestingar verði um 19% í ár og næstu tvö ár er talið að hann verði ná- lægt 10%. Minni viðskiptaafgangur Áætlað er að útflutningur hafi auk- ist um 3,5% í fyrra, sem er minna en áður var gert ráð fyrir, þrátt fyrir vöxt í ferðaþjónustu. Helsta ástæðan er minni vöxtur þjónustuútflutnings vegna mikils samdráttar í gjöldum fyrir notkun hugverka og viðskipta- þjónustu. Einnig var útflutningur sjávarafurða minni vegna verkfalls í upphafi ársins. Á móti þessum liðum vó útflutningsvöxtur í ferðaþjónustu sem þó var minni en árið 2016. Í ár er því spáð að útflutningur aukist um 4,1%. Gert er ráð fyrir aukningu í útflutningi sjávarafurða, að hluta til vegna þess að áhrifa verk- fallsins á síðasta ári gætir ekki leng- ur. Þá er búist við aukningu í þjón- ustuútflutningi og verður hann drifinn af vexti ferðaþjónustu, þó dragi úr vexti hennar frá síðasta ári. Næstu ár á eftir er spáð útflutnings- vexti á bilinu 2,5-3,5%. Áætlað er að innflutningur hafi aukist um 11,0% árið 2017 sem er minni aukning en áður var spáð, sem aftur má rekja til samdráttar í inn- flutningi viðskiptaþjónustu. Í ár er útlit fyrir 5,7% aukningu innflutn- ings. Áætlað er að afgangur vöru- og þjónustujafnaðar verði 3,3% af lands- framleiðslu í ár, samanborið við áætl- un um 4,5% afgang í síðustu spá Hag- stofunnar í nóvember. sn@mbl.is Hagvöxtur verður 2,9% á þessu ári samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Hag- stofu Íslands. Þetta er heldur minni hagvöxtur en áður hefur verið spáð en í Peningamálum Seðlabanka Ís- lands sem út komu 7. febrúar var gert ráð fyrir 3,2% hagvexti í ár. Áætlar Hagstofan að hagvöxtur á síðasta ári hafi verið 3,8%, þrátt fyrir að þjóðarútgjöld hafi aukist um meira en 7%. Hægir á neyslu og fjárfestingum Einkaneysla jókst um 7,7% í fyrra samkvæmt fyrirliggjandi gögnum. Hagstofan telur að hægja taki á vexti einkaneyslu í ár og er gert ráð fyrir að raunbreyting ársins verði um 5%. Eftir mikinn vöxt undanfarin ár er útlit fyrir að það hægi á fjárfestingu á Hagstofan spáir minni hagvexti  Gert ráð fyrir innan við 3% hagvexti í ár Morgunblaðið/Golli Hagspá Atvinnuvegafjárfesting dregst saman í ár samkvæmt spá. ● Seðlabanki Íslands birti á vef sínum í gær undanþágu sem bankinn veitti Kaupþingi frá gjaldeyrislögum í janúar 2016 til útgreiðslu til kröfuhafa í bú Kaupþings. Ákvörðun um birtingu und- anþágunnar var tekin eftir að bank- anum barst bréf frá fjármála- og efna- hagsráðherra þar sem óskað var eftir því að bankinn kannaði mögulega birt- ingu. Í ljósi þess að undanþágan og málefni henni tengd varða mikilvæga almannahagsmuni taldi Seðlabankinn að góð og gild rök væru fyrir birtingu, að fengnu samþykki Kaupþings, Kaup- skila og Arion banka. Seðlabankinn birtir undanþágu Kaupþings 24. febrúar 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 100.54 101.02 100.78 Sterlingspund 139.71 140.39 140.05 Kanadadalur 79.27 79.73 79.5 Dönsk króna 16.589 16.687 16.638 Norsk króna 12.735 12.811 12.773 Sænsk króna 12.363 12.435 12.399 Svissn. franki 107.15 107.75 107.45 Japanskt jen 0.9364 0.9418 0.9391 SDR 145.52 146.38 145.95 Evra 123.55 124.25 123.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 150.5238 Hrávöruverð Gull 1328.9 ($/únsa) Ál 2193.5 ($/tonn) LME Hráolía 64.91 ($/fatið) Brent ● Fjármála- og efnahagsráðuneytið til- kynnti í gær að ríkissjóður hefði selt 13% hlut sinn í Arion banka fyrir 23,4 milljarða króna til Kaupskila, dótturfélags Kaup- þings. Ríkissjóður er því ekki lengur hlut- hafi í Arion banka. Eins og fram hefur komið fer salan fram á grunni kaupréttar á hlutnum sam- kvæmt hluthafasamkomulagi frá árinu 2009. Í tillögu Bankasýslunnar til ríkis- sjóðs um sölu hlutarins kom fram sú nið- urstaða að á grundvelli hluthafa- samkomulagsins hefðu Kaupskil einhliða, ótvíræðan og fortakslausan samnings- bundinn rétt til að kaupa eignarhlut rík- isins. Að meðtalinni 2,7 milljarða króna arðgreiðslu sem ríkissjóður hefur fengið sem eigandi að Arion banka nemur heild- arandvirði ríkissjóðs vegna eignar- hlutarins 26,1 milljarði króna. Í vef ráðuneytisins segir að þrátt fyrir að þessi sala fari fram á grundvelli samn- ingsbundins kaupréttar sé verðið sem fæst fyrir eignarhlutinn mjög ásættanlegt. Ríkissjóður ekki lengur hluthafi í Arion banka STUTT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.