Morgunblaðið - 24.02.2018, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 24.02.2018, Blaðsíða 51
eftirlaun árið 2003. Samhliða gjald- kerastarfinu var Garðar vistar- vörður við MÍ á áttunda ára- tugnum. Garðar hefur ætíð verið mjög fé- lagslyndur og haft ánægju af ferða- lögum og útivist. Hann gekk í skátafélagið Einherja á Ísafirði ár- ið 1950 og er enn í rekkasveit þess sem nú heitir Skátafélagið Einherj- ar-Valkyrjan. Með skátunum tók Garðar m.a. þátt í alþjóðlegum skátamótum sem á þeim árum var mikið ævintýri og eftirminnileg upplifun fyrir ungan mann. Garðar hefur starfað með Lions- klúbbi Ísafjarðar frá 1961 og fékk árið 2011, á 50 ára starfsafmæli sínu fyrir Lions, sérstaka viður- kenningu frá alþjóðaforseta hreyf- ingarinnar. Hann var þá gerður að ævifélaga Lions fyrir störf í þágu klúbbsins og samfélagsins. Frá 1982 hefur Garðar jafnframt verið bróðir í Ísafjarðardeild Gídeonfélagsins á Íslandi. Hann ferðaðist árlega um Vestfirði til að afhenda grunnskólabörnum Nýja testamentið. Garðar hefur tekið virkan þátt í söngstarfi á Ísafirði og starfað með kórunum þar, Karlakór Ísafjarðar, Sunnukórnum og Kirkjukór Ísa- fjarðarkirkju. Hann var bæjar- fulltrúi á Ísafirði fyrir Sjálfstæð- isflokkinn í eitt kjörtímabil auk þess sem hann sat m.a. í áfengis- varnarnefnd til margra ára fyrir bæinn. Þá var Garðar virkur með- limur í nokkrum félögum, m.a. Skógræktarfélagi Ísafjarðar og Ferðafélagi Íslands sem hann ferð- aðist með um landið í fjölbreyttri útivist. Garðar hefur um árabil verið hluti af þekktum hópi á Ísafirði sem hittist flesta daga í svokölluðu Bragakaffi. Þar er gert að gamni sínu og þjóðmálin krufin. Á Hlíðarenda var m.a. stundaður búskapur á uppvaxtarárum Garð- ars sem hafði mótandi áhrif á hann enda Garðar mikill dýravinur. Hann átti þar til fyrir nokkrum ár- um kindur í félagi við bróður sinn og systurson og voru Hlíðarendi og Fossar í Engidal þungamiðja þess frístundabúskapar. Fjölskylda Systkini Garðars: Þorgerður Sig- rún Einarsdóttir, f. 6.1. 1940, d. 1.3. 2006, talsímavörður, lengst af á Ísafirði; Ingibjörg Steinunn Ein- arsdóttir, f. 22.5. 1942, fyrrv. skrif- stofumaður á Ísafirði; Guðmundur Sigurbjörn Einarsson, f. 3.4. 1945, sjómaður og vélstjóri á Ísafirði, og Tryggvi Sæberg Einarsson, f. 5.4. 1949, verkstjóri á Akranesi. Foreldrar Garðars voru Björg Aðalheiður Jónsdóttir, f. 24.5. 1915, d. 21.12. 1998, húsfreyja á Ísafirði, og Einar Ingiberg Guðmundsson, f. 22.8. 1907, d. 24.6. 1991, sjómaður á Ísafirði og í Reykjavík. Garðar S. Einarsson Kristín Steinunn Ólafsdóttir húsfr. í Súðavík Kristján Árnason húsm. í Súðavík Þorgerður Kristjánsdóttir húsfr. á Ísafirði Jón P. Andrésson verkstj. og b. á Ísafirði Björg Aðalheiður Jónsdóttir húsfr. á Ísafirði María Loftsdóttir húsfr. á Kleifum Andrés Jónsson b. á Kleifum í Kaldbaksvík Jakob Gíslason sjóm. á Ísafirði Jakobína Jakobsdóttir skíðakona Ásta Þorgerður Jakobsdóttir húsfr. á Ísafirði Arnfríður Sigríður Kristjánsdóttir húsfr. í Hnífsdal Margrét María Jónsdóttir húsfr. á Siglufirði Arnfríður Guðmundsdóttir prófessor og forseti guðfræði- og trúarbragðafræðideildar HÍ Svanur Kristjánsson prófessor Kristján Jón Jónsson sjómaður á Ísafirði Gunnsteinn Sigurðsson fyrrv. skólastjóri og bæjarstjóri í Kópavogi Margrét Anna Jónsdóttir húsfr. og verslunarm. í Kópavogi Markús Kristjánsson fiskimatsm. í Súðavík Svava Jóna Markúsdóttir húsfr. í Rvík Sigríður Beinteinsdóttir söngkona Þorgerður Hannesdóttir húsfr. í Tungumúla á Barðaströnd Jakob Athanasíusson hreppstj. og sagnaþulur á Barðaströnd Theódóra Jakobsdóttir húsfr. á Vífilsmýrum Guðmundur Mikael Einarsson b. á Vífilsmýrum í Önundarfirði Ingibjörg Hallgrímsdóttir húsfr. á Selakirkjubóli Einar Guðmundsson b. á Selakirkjubóli í Önundarfirði Úr frændgarði Garðars S. Einarssonar Einar Ingiberg Guðmundsson sjóm. á Ísafirði Í réttunum Garðar lítur yfir safnið. ÍSLENDINGAR 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2018 HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is exton™ heyrnartækin opna nýjar leiðir í samskiptum g auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu g fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu. Við hjálpum þér að bæta lífsgæðin R o o Guðmundur Vignir Jósefssonfæddist í Reykjavík 24.2.1921. Foreldrar hans voru Jósef Gottfred Blöndal Magn- ússon, trésmiður í Reykjavík, og k.h., Guðríður Guðmundsdóttir húsfreyja. Systir Jósefs var Anna, amma Gísla Alfreðssonar, fyrrv. þjóðleik- hússtjóra. Faðir Jósefs var Magn- ús, snikkari í Rvík, bróðir Sæ- mundar, langafa Björgvins, föður Sighvats, fyrrv. ráðherra. Systir Magnúsar var Margrét, amma El- inborgar Lárusdóttur rithöfundar. Meðal móðursystkina Guð- mundar voru Loftur ljósmyndari og Gísli gerlafræðingur. Guðríður er dóttir Guðmundar Guðmunds- sonar, bónda í Hvammsvík í Kjós, bróður Agöthu, langömmu Helgu, móður Vésteins Lúðvíkssonar rit- höfundar. Önnur systir Guð- mundar var Kristrún, langamma Jóns Tómassonar, fyrrv. ríkislög- manns. Móðir Guðríðar var Jakobína, systir Katrínar, ömmu Birgis Þor- gilssonar ferðamálastjóra. Kona Guðmundar Vignis var Jó- hanna Sólveig Guðlaugsdóttir tækniteiknari sem lést 1992 og eru dætur þeirra Guðríður, Helga Ingibjörg og Ásta Valgerður. Guðmundur lauk lögfræðiprófi frá HÍ 1947, las stjórnarfarsrétt við Parísarháskóla 1949-50, varð hdl. 1948 og hrl. 1957. Guðmundur var fulltrúi á skrif- stofu borgarstjórans í Reykjavík 1947-51 og skrifstofustjóri bæj- arverkfræðings í Reykjavík 1951- 62. Hann var gjaldheimtustjóri í Reykjavík frá 1962. Guðmundur var formaður barnaverndarnefndar Reykjavíkur 1950-62, formaður stjórnar Inn- heimtustofnunar sveitarfélaga frá stofnun 1971-87 og varasáttasemj- ari ríkisins frá 1980. Hann var for- maður Lögfræðifélags Íslands 1981-82 og formaður Íslands- deildar Norræna embættismanna- sambandsins á árunum 1982-85. Guðmundur lést 12.10. 1993. Merkir Íslendingar Guðmundur Vignir Jósefsson Laugardagur 90 ára Sigurður Flosason 85 ára Guðmundur Sigurjónsson Gunnar Jónsson Kristín B. Óladóttir 80 ára Garðar Sævar Einarsson Svanlaug María Ólafsdóttir Vélaug Steinsdóttir 75 ára Birgir E. Sumarliðason Guðbjörg Eiríksdóttir Inga Svava Ingólfsdóttir Sæmundur Jóhannsson 70 ára Daníel Óskarsson Gerður Pálmadóttir Haukur Laxdal Baldvinsson Hertha Árnadóttir Ingibjörg Sigurðardóttir Jacques Melot Jóhann Geir Guðjónsson Jón Þ. Guðmundsson Lilja G. Valdimarsdóttir Ólöf Veturliðadóttir Sigurgeir Þórðarson Torfhildur G. Samúelsdóttir 60 ára Anna Margrét Helgadóttir Guðrún Jóhannesdóttir Halina Pelszynska Herdís Hannesdóttir Karl Jón Brainard María Bjarnadóttir Pála Svanhildur Geirsdóttir Sigurður Óli Gunnarsson Sigurður Sigurðsson Sigurlaug Elíesersdóttir Þröstur Jónsson 50 ára Arna Ingibergsdóttir Claudia Meglin Eiður Páll Sveinn Kristmannsson Eyrún Gísladóttir Harald Ragnar Jóhannesson Jóhann Halldórsson Kolbrún Jóna Pétursdóttir Sigurður Ólafsson 40 ára Grzegorz Marcin Janus Jóhanna Svala Rafnsdóttir Magnús Guðmundsson Rakel Jóna Hreiðarsdóttir Saga Jónsdóttir Skafti Sæmundur Stefánsson 30 ára Árni Valur Árnason Chao Chen Federico Brescia Garðar Eðvaldsson Hafdís Ósk Haraldsdóttir Hólmfríður Björnsdóttir Hulda Jónasdóttir Kolbrún Jónsdóttir Magnus De Witt Patrycja Wioleta Wrzesien Rebekka Hrafntinna Níelsdóttir Sigurbjörn Grétarsson Tanja Björg Sigurjónsdóttir Þórunn Kjartansdóttir Sunnudagur 90 ára Óskar Hafberg Þorgilsson 85 ára Ingibjörg Ágústsdóttir Þuríður Júlíusdóttir 80 ára Dóróthea Stefánsdóttir Guðrún Ingólfsdóttir Oddbjörg Kristjánsdóttir 75 ára Alfhild Peta Nielsen Björn Björnsson Guðrún Stefanía Haraldsdóttir Jóhanna Ottesen Kristín S. Gunnarsdóttir María Hjálmdís Þorsteinsdóttir Sigríður Jóna Magnúsdóttir Sigurlaug Una Björnsdóttir Þórunn Magnúsdóttir 70 ára Ásta Þórey Lárusdóttir Egill Þórir Einarsson Elín Ástráðsdóttir Ellert Kárason Finnur Jakob Guðsteinsson Guðríður Óskarsdóttir Guðrún Jónasdóttir Hulda Emilsdóttir Hörður Brandsson Martha Ólína Jensdóttir Ólöf Jónsdóttir Ruth Guðbjartsdóttir Valentin Kolev Ivanov Þorsteinn Daníelsson Þóra Kristjánsdóttir 60 ára Arturs Barkans Guðný Vilborg Gísladóttir Hjördís Þorbjörnsdóttir Ingimundur Kristján Guðjónsson Kristín Axelsdóttir Margrét Pálsdóttir María Ingiríður Reykdal Rut Sigurðardóttir Sigurbjörg Hjörleifsdóttir 50 ára Brynjar Guðmundsson Guðlaug Einarsdóttir Izet Cogic Lárus Jónasson Nathan Golez Moreno Ólafur Birgir Gunnarsson Pétur Vignir Birkisson Sigurvin Bergþór Magnússon Sveinn Henrysson 40 ára Andreea-dana Udrea Arnar Ingvarsson Arnbjörg Harðardóttir Gunnar Þór Nilsen Hlédís Sigurðardóttir Jakobína Agnes Valsdóttir Jón Árni Guðmundsson Ollý Björk Ólafsdóttir Saga Steinþórsdóttir Tinna Bessadóttir 30 ára Aleksandr Hanzin Almarr Ormarsson Andrei Hanzin Atli Guðjónsson Ása Björk Valdimarsdóttir Carlos André Santos Silva Finnur Sigurðarson Hallgrímur Árnason Haraldur Gunnarsson Haraldur Ívar Guðmundsson Haraldur Sigurðsson Íris Dögg Einarsdóttir Katerina Bodorová Kjartan Ben Heiðberg Leifur Guðlaugsson Már Nikulás Ágústsson Muhammad Amin Olga Edvardsson Sigrún Eva Sigurjónsdóttir Til hamingju með daginn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.