Morgunblaðið - 24.02.2018, Blaðsíða 10
Hlutfallsleg breyting á íbúa- og íbúðafjölda
Höfuðborgarsvæðið 2008 til 2017
25%
20%
15%
10%
5%
0%
Reykjavík Kópavogur Hafnarfjörður Garðabær* Mosfellsbær Seltjarnarnes
5,0
3,7
14,9
22,0
10,2
14,6
18,4
23,2
27,5
19,4
7,4
-0,1
Breyting í %
Íbúar
Íbúðir*Sameinaðist
Álftanesi 1.1. 2013
Breyting á íbúafjölda og fjölda íbúða
Höfuðborgarsvæðið 2008 til 2017
Íbúar 2017:
7
6
5
4
3
2
1
0
þús.
Reykjavík Kópavogur Hafnarfjörður Garðabær* Mosfellsbær Seltjarnarnes
123.246 35.246 28.703 15.230 9.783 4.450
Breyting 2008-2017
Íbúafjöldi
Fjöldi íbúða
*Sameinaðist
Álftanesi
1.1. 2013
4.419
6.361
3.667
1.591
-4
2.477
1.719
945
117
776
2.870
863
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Tafir á uppbyggingu í Vatnsmýri
þrýsta á flutning iðnaðar frá Ár-
túnshverfinu í Reykjavík.
Þetta kemur fram í endurmati á
landþörf iðnaðar í aðalskipulagi
Reykjavíkur, 2010-2030, sem aug-
lýst er á vef borgarinnar.
Þar segir meðal annars orðrétt:
„Aukinn þungi hefur verið settur á
þróun blandaðrar byggðar í Elliða-
árvogi og
Ártúnshöfða.
Það stafar m.a.
af áframhaldandi
óvissu um tíma-
setningu losunar
byggingarlands í
Vatnsmýri. Það
skapar meiri
þrýsting á flutn-
ing landfrekrar
og grófrar
iðnaðarstarfsemi
úr Ártúnshöfðanum.“
Rifjað er upp að í aðalskipulagi
sé „gert ráð fyrir að iðnaðarstarf-
semi á eldri atvinnusvæðum sem
hafa miðlæga legu víki fyrir þétt-
ari og blandaðri byggð“.
Verða áfram blönduð
Hjálmar Sveinsson, formaður
umhverfis- og skipulagsráðs
Reykjavíkur, segir það stefnu
borgarinnar að byggja íbúðir á úr-
eltum og illa nýttum iðnaðar- og
atvinnulóðum. Hins vegar verði
áfram töluvert af atvinnuhúsnæði
á slíkum þéttingarsvæðum, til
dæmis í Vogum, Skeifu og á
Ártúnshöfða.
Varðandi endurmat á iðnaðar-
svæðum á höfuðborgarsvæðinu
segir Hjálmar tilefnið m.a. fyrir-
hugaðan flutning Björgunar úr
Grafarvogi í Gunnunes. Slíkir
flutningar kalli á stækkun skil-
greindra iðnaðarsvæða. Hjálmar
bendir á að aðeins tvö sveitarfélög,
Reykjavík og Hafnarfjörður, bjóði
upp á skilgreind iðnaðarsvæði. Á
þann hátt þjónusti þau hin sveitar-
félögin. „Nýir tímar kalla á endur-
mat. Það þarf að endurhugsa línur
sem hafa verið dregnar. Fyrirtæki
í iðnaði hafa verið að flytja sig út á
jaðar borgarinnar,“ segir Hjálmar.
Ávinningurinn verði metinn
Fram kemur í áðurnefndu
endurmati borgarinnar að „vert
[sé] að gera hagræna greiningu á
því hvort atvinnusvæði eða íbúð-
arsvæði gefa almennt meiri tekjur
til sveitarfélaganna, miðað við
óbreytt laga- og skattaumhverfi
sveitarfélaga“.
Spurður um þetta sjónarmið
segir Hjálmar verið að benda „á
að sveitarfélögin þurfa að koma á
samkomulagi og finna jafnvægi í
því hvaða sveitarfélög útvega slík-
ar lóðir“. „Það er margt að breyt-
ast og mikil uppbygging í gangi og
svo mun verða áfram. Því er eðli-
legt að reynt sé að skapa heildar-
sýn og móta stefnu um hvernig og
hvar við ætlum að vera með iðn-
aðarsvæði til framtíðar á höfuð-
borgarsvæðinu.“
Spurður hvort hann horfi til
Suðurnesja, Akraness eða Grund-
artanga í þessu efni segir Hjálmar
að hugsanlega henti þeir staðir.
Bílaleigur henta ekki alltaf
Haft var eftir Eggerti Þór
Kristóferssyni, forstjóra N1, í
Morgunblaðinu í gær að verið væri
að ýta bílaleigum úr Reykjavík.
Spurður um þetta bendir Hjálm-
ar á hagræna þætti.
„Fyrst vil ég halda því til haga
að Reykjavík er fyrst og fremst
borg fyrir alls konar fólk. Bílaleig-
ur þurfa gríðarlegt land. Bílaleigu-
bílarnir eru orðnir svo margir. Það
fer því ekkert sérstaklega vel á því
að hafa bílaleigur í miðri borg. Það
er hreinlega ekki pláss. Landið er
alltof verðmætt til þess að setja
það undir stór svæði fyrir bíla-
leigubíla. Ég tel því ekki óeðlilegt
að slíkri aðstöðu sé komið fyrir við
Keflavíkurflugvöllinn. Þar eru
ferðamennirnir sem nota næstum
allan þennan flota, komandi úr
flugi.“
Iðnaður á undanhaldi
Fram kemur í endurmati á aðal-
skipulaginu að gengið er út frá því
að vægi iðnaðar í atvinnulífi borg-
arinnar dragist heldur saman. Sú
hafi enda verið þróunin undan-
farna áratugi.
Hjálmar segir hér meðal annars
horft til reynslu nágrannaríkja.
„Við höfum verið að færast úr
iðnaðarþjóðfélagi yfir í þjónustu-
og þekkingarþjóðfélag síðustu ára-
tugina. Slík starfsemi þarf eðli
máls samkvæmt minna pláss. Það
er fróðlegt í þessu samhengi að
rifja upp frægt skipulag frá 1966,
danska skipulagið. Þar var gert
ráð fyrir að öll norðurströnd borg-
arinnar, þar með talið Grafarvogur
og Geldinganes, færi undir iðnað.
Það leið auðvitað ekki á löngu þar
til mönnum varð ljóst að þetta
voru gríðarlegar ofáætlanir. Þá
einfaldlega vegna þess að sam-
félögin eru að breytast svo mikið.“
Borgin endurreist
Spurður um þá gagnrýni Eyþórs
Arnalds, oddvita Sjálfstæðisflokks-
ins í borginni, að aðeins hafi bæst
við 322 íbúðir í borginni í fyrra
segir Hjálmar að nú standi yfir
mesta uppbyggingarskeið í sögu
borgarinnar. Til dæmis muni senn
bætast við 850 nýjar íbúðir við
Hlíðarenda.
„Ég lít á þetta sem endurreisn
borgarinnar. Hún er öll á þétting-
arsvæðum.“
Borgarstjórn samþykkti fyrir
helgi deiliskipulag fyrir Borgartún
24. Jón Norland, forstjóri Smith
og Norland, gagnrýndi borgina í
samtali við Morgunblaðið. Sagðist
hann ekki myndu samþykkja
niðurrif bakhúss í Borgartúni 22
til að rýma fyrir göngu- og hjóla-
stíg.
Spurður hvernig borgin muni
bregðast við slíkri gagnrýni bendir
Hjálmar á að öllum spurningum
hagsmunaaðila í Borgartúni hafi
verið svarað ýtarlega af starfs-
mönnum borgarinnar.
„Ég veit ekki betur en að þessir
ágætu aðilar hafi fengið svör við
sínum athugasemdum. Auðvitað
geta komið upp vandamál ef það
verða deilur við nágranna. En
deiliskipulagið hefur verið sam-
þykkt á öllum stigum,“ segir
Hjálmar Sveinsson.
Morgunblaðið/Baldur
Vatnsmýri Framkvæmdir standa yfir við nýtt íbúðarhverfi við Hlíðarenda. Rætt er um allt að 930 íbúðir á svæðinu.
Nýja hagkerfið þarf nýtt skipulag
Iðnaðarsvæði endurmetin í borginni
Vægi iðnaðar talið fara minnkandi
Hjálmar
Sveinsson
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2018
Bamix töfrasproti
Verð 29.900 kr.
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.isHöfðabakka 9, 110 Reykjavík | Sími 561 9200 | run@run.is | www.run.is
Nýjar vörur komnar í verslanir!
Útsölustaðir:
• Cocos.is – Grafarvogi
• GS-Didda Nóa – Akureyri
• Kona - Hafnarfirði
• Bjarg - Akranesi
• Smart – smart.is
• Blómsturvellir – Hellisandi
• Kjólar & Konfekt – kjolar.is
• Palóma.is – Grindavík
• Siglósport – Siglufirði
• Jón og Gunna - Ísafirði
• Lindin – Selfossi
• Momo.is – Kringlan