Morgunblaðið - 24.02.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 24.02.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2018 Viðskiptaráð hefur tekið samanupplýsingar um áhrif fjár- magnstekjuskattsins. Þar er bent á að fyrir þá sem fjárfest hafa í rík- isskuldabréfum má ætla að skattbyrðin verði 64% af raun- ávöxtun. Ástæðan fyrir þessum gríð- arlega háa skatti er sú að frá alda- mótum hefur nafn- ávöxtun þessara bréfa verið 7,9% en verðbólgan 5%, þannig að raunávöxtun hefur aðeins verið 2,9%.    Skatturinn er ekki reiknaður afraunávöxtuninni heldur af nafnávöxtuninni, sem verður til þess að 22% fjármagnstekjuskatt- ur skilar þessari miklu skatt- byrði. Í þessu ljósi var skatta- hækkunin um áramót, úr 20% í 22%, ekki aðeins óþörf heldur óeðlileg.    Hið sama gildir þegar skatturá nafnávöxtun áhættulausra fjárfestinga, eins og ríkisskulda- bréfin eru talin vera, er borinn saman á milli Norðurlandanna. Í þeim samanburði er Ísland með hæstu skattbyrðina, 64% eins og áður sagði, en hinar þjóðirnar með 49%-63%.    Ísland á ekki að gera sér farum að keppa um toppsæti í slíkum samanburði, þvert á móti ætti að vera keppikefli stjórn- valda að bjóða upp á hagstætt skattkerfi sem styður við fjárfest- ingar og atvinnuuppbyggingu.    Í áramótaávarpi sínu rökstuddiforsætisráðherra þessa skatta- hækkun með því að draga þyrfti úr ójöfnuði, en það er enginn bet- ur settur með því að fólki sé refs- að fyrir að spara og að dregið sé úr viljanum til að fjárfesta. Katrín Jakobsdóttir Ofurskattur á sparnað STAKSTEINAR Veður víða um heim 23.2., kl. 18.00 Reykjavík 8 rigning Bolungarvík 3 rigning Akureyri 6 alskýjað Nuuk -18 léttskýjað Þórshöfn 6 skýjað Ósló -2 alskýjað Kaupmannahöfn 0 léttskýjað Stokkhólmur -3 snjóél Helsinki -9 léttskýjað Lúxemborg 0 heiðskírt Brussel 2 heiðskírt Dublin 4 skýjað Glasgow 5 léttskýjað London 3 alskýjað París 3 heiðskírt Amsterdam 3 heiðskírt Hamborg 0 heiðskírt Berlín 0 heiðskírt Vín 0 snjókoma Moskva -10 léttskýjað Algarve 14 heiðskírt Madríd 2 heiðskírt Barcelona 10 léttskýjað Mallorca 9 léttskýjað Róm 7 rigning Aþena 15 skýjað Winnipeg -17 skýjað Montreal -6 alskýjað New York 2 rigning Chicago 6 þoka Orlando 24 rigning Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 24. febrúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:53 18:30 ÍSAFJÖRÐUR 9:04 18:28 SIGLUFJÖRÐUR 8:48 18:11 DJÚPIVOGUR 8:24 17:58 Orkustofnun - Grensásvegi 9 - 108 Reykjavík - Sími 569-6000 - www.os.is Kynningarfundir Hlýnun jarðar og vatnsaflsvirkjanir 8:30 – 12:00 Alþjóðleg orkumál og hlýnun jarðar 13:30 – 17:00 Reynsla Norðmanna af rammaáætlun um vatnsaflsvirkjanir Fundirnir verða 28. febrúar hjá Orkustofnun, Grensásvegi 9 Skráning er á os.is – Fundirnir verða sendir út á os.is Alþjóða orkumálastofnunin IEA heldur tvenna kynningarfundi um alþjóðleg orkumál, hlýnun jarðar og vatnsaflsvirkjanir í nokkrum aðildarlöndum Rafrænt forval fer fram hjá Vinstri grænum í Reykja- vík í dag. Valið verður í efstu fimm sæti listans, fyrir kosningarnar í vor. Valið er leiðbein- andi og leggur kjörnefnd endanlegan lista 46 fram- bjóðenda fyrir félagsfund VG. Úrslit munu liggja fyrir í kvöld. Líf Magneudóttir borgarfulltrúi er ein í framboði í 1. sæti. Aðrir frambjóðendur eru Björn Teitsson, Elín Oddný Sigurðardóttir, Guð- björg Ingunn Magnúsdóttir, Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson, Hermann Valsson, Hreindís Ylva Garðarsdóttir, Jakob S. Jónsson, Ragnar Karl Jóhannsson, René Bia- sone og Þorsteinn V. Einarsson. Forval hjá VG í Reykjavík í dag Líf Magneudóttir Guðlaug Kristjánsdóttir, sjúkraþjálf- ari og stjórnarformaður Bjartrar framtíðar, var einn þriggja nefndar- manna sem mátu hæfi umsækjenda um stöðu landlæknis. Hún segir að nefndin hafi horft til ýmissa þátta við matið, sem allir höfðu jafnt vægi. Umsækjendurnir sex voru metnir samkvæmt ákveðnum kvarða. „Við fórum í gegnum gögnin og gáfum hvert í sínu lagi stig fyrir ólík atriði,“ segir Guðlaug en umsækj- endur voru fyrst metnir á grundvelli menntunar, starfsreynslu og stjórn- unarreynslu. „Við fórum yfir og ræddum okkar niðurstöður og það kom á daginn að við vorum afar samhljóða í því mati,“ segir Guðlaug. Því næst segir hún að allir umsækjendur hafi verið boðaðir í viðtal „með spurningum sem fóru yfir allt á grunni auglýsingar“. Meðal annars var horft til umfangs þeirra heilbrigðiseininga sem umsækjendur hafa stýrt og hversu víðtæk reynsla þeirra af fjárhagsáætlanagerð og stefnumótun væri. Upp úr viðtölunum unnu svo nefndarmenn hver í sínu lagi aðra einkunnagjöf og aftur voru niður- stöður nefndarinnar einróma. Um- sækjendum var ekki raðað í númera- röð heldur metnir ýmist hæfir, vel hæfir, vel hæfir „plús“ eða þá metnir á þann veg að þeir uppfylltu ekki skilyrði auglýsingar. „Ég myndi segja að ráðherra væri í ákveðnum lúxusvandræðum, þetta eru frambærilegir umsækjendur,“ segir Guðlaug. Dæmdi samstarfskonu á LSH Áður en ferlið hófst var skoðað hvort nefndarmenn væru nokkuð vanhæfir til starfans vegna tengsla sinna við umsækjendur. Lögmaður velferðarráðuneytisins tók þátt í þeirri vinnu. Sérstaklega var skoðað hvort Gyða Baldursdóttir, aðstoðar- framkvæmdastjóri lyflækningasviðs LSH, hefði verið vanhæf til nefnd- arstarfa vegna tengsla við einn um- sækjanda, samstarfskonu sína Ölmu Möller, sem er framkvæmdastjóri aðgerðasviðs LSH. „Þær eru í nánd, en ekki það mik- illi skilst mér. Fólk sem er búið að vera í þessum bransa í einhvern tíma er orðið kunnugt mörgum, en það var ekki þess eðlis að þær séu dag- legir samstarfsmenn,“ segir Guð- laug. Hún segir að matið hafi allt verið „staðlað og kvarðað“ og að mjög góð gögn hafi fengist frá fyrri matsnefnd, enda ekki langt síðan Birgir Jakobsson var skipaður í embætti. Skipunartími hans er til 1. apríl næstkomandi. Þá verður hann aðstoðarmaður Svandísar Svavars- dóttir heilbrigðisráðherra, en hún tekur ákvörðun um skipan í stöðuna. athi@mbl.is Ekki vanhæf til að meta starfsfélaga  Nefnd sem mat hæfi umsækjenda um stöðu landlæknis var samhljóða um hæfn- ismatið  Einn nefndarmanna segir matið allt hafa verið „staðlað og kvarðað“ Morgunblaðið/Eggert Mat Brátt verður skipað í embætti landlæknis. Nefnd mat hæfi umsækjenda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.