Morgunblaðið - 24.02.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 24.02.2018, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2018 Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Líftæknifyrirtækið Genis á Siglu- firði, sem er í eigu Róberts Guð- finnssonar athafnamanns, undirbýr nú frekari uppgang og þróun fyrir- tækisins. Til þess að svo megi verða ætlar fyrirtækið að afla í samstarfi við fjárfesta, innlenda og erlenda, allt að tveggja milljarða króna. Hilmar Janusson, forstjóri Genis, sagði í viðtali við Morgunblaðið í gær að Genis hefði samið við Gamma ráðgjöf sem hefði tekið að sér að safna fé til þess að fjármagna næstu skref, allt að tveimur millj- örðum króna. Þrepastig í þróuninni „Það eru þrepastig í þróuninni á félaginu og við erum að færa okkur yfir á þriðja stigið. Hjá Genis er nánast um algjöra einkafjárfest- ingu að ræða í rannsóknum og þró- un. Róbert hefur sett sína peninga í þessa þróun allt frá því að Genis varð til úr þróunardeild úr skel- vinnslunni hjá Þormóði ramma,“ sagði Hilmar. Hann segir að framleiðslustigið hafi verið skref númer tvö og fyr- irtækið hafi í fyrrasumar markaðs- sett Benekta, fæðubótarefni, inn á Bretlandsmarkað og eins hér á Ís- landi. Önnur verðmæt skref „Við eigum eftir að ráðast í önnur verðmæt skref. Það fyrsta verður framleiðsla á lyfjabæti sem læknar bólgur og er í klínískum prófunum nú þegar. En síðan er beinagræðir, sem er þriðja verðmæta skrefið sem við tökum. Þá þróum við ígræðsluefni fyrir bein og það er nú í pre-klínískum rannsóknum. Loks bíða okkar tækifæri í frekari lyfjaþróun, sem byggjast á rann- sóknum undanfarinna ára. Við ætlum okkur að nýta til fulln- ustu og fara í beina sölu á fyrstu tveimur vörutegundunum, fæðubót- arefninu og lyfjabætinum. Við verð- um að eiga í samstarfi við lykilaðila á þeim mörkuðum sem við hyggj- umst vinna, þegar kemur að ígræðsluefninu fyrir bein og lyfjaþróuninni,“ sagði Hilmar. Ná góðri fótfestu á markaði Hilmar segir að það fé sem Genis ætli að sækja í samvinnu við Gamma ráðgjöf, bæði hjá alþjóð- legum fjárfestum og innlendum, muni hjálpa fyrirtækinu að ná góðri fótfestu á markaði fyrir fæðubótar- efnið og lyfjabætinn og koma áfram rannsóknum og klínískri þróun á beinaígræðsluefnunum. „Við erum búnir að semja við Gamma ráðgjöf og höfum þegar hitt nokkra fjárfesta og við erum mjög bjartsýnir á að þetta gangi vel eftir, bæði innanlands og utan. Við finnum tvímælalaust fyrir áhuga, en enn vantar hér á landi getuna til þess að meta til langs tíma, hvaða þýðingu svona fjárfesting hefur fyr- ir fjárfestana. Nú erum við komin á þann stað að við þurfum á ný að fjárfesta til lengri tíma og byggja upp til framtíðar og þess vegna finnst okkur að þetta skref sem við ætlum núna að taka sé mjög merki- legt,“ sagði Hilmar. Gamall draumur Róberts Hilmar segir að það sé ekki bara Gamma ráðgjöf sem komi að fjár- öfluninni, heldur komi alþjóðlega netverkið hjá Gamma einnig að fjáröfluninni. „Þeir eru eina alþjóðlega fjár- málafyrirtækið á Íslandi í dag og eru komnir með sjálfstraust til þess að vinna á nýjan leik á alþjóðlegum mörkuðum og hafa reynslubolta á sínum snærum sem við hugsum gott til glóðarinnar að vinna með. Þeir munu tengja okkur við alþjóð- lega fjárfesta og halda utan um að- komu þeirra. Við sjáum þetta fyrir okkur til langs tíma, því það verða a.m.k. nokkur skref í viðbót og við- skiptaþróun, sem við hyggjumst taka, og ég held að eigi eftir að verða mjög ábatasöm,“ sagði Hilm- ar. Hilmar segir að sérstaða Genis sé ekki síst sú að fyrirtækið sé að selja vörur sínar beint, en ekki í gegnum þriðja aðila, sem eiginlega allir aðrir séu að gera. Það geri það að verkum að fyr- irtækið nái í meira af framlegðinni, en ella væri, sem væri vissulega gamall draumur Róberts Guðfinns- sonar, auk þess sem með þessum hætti næðist bein tenging við við- skiptavinina, sem væri afar dýr- mætt. Genis á Siglufirði er í mikilli þróun  Selja fæðubótarefni í Bretlandi og á Íslandi og undirbúa framleiðslu á lyfjabæti og beinagræði  Fyrirtækið hyggst afla allt að tveggja milljarða króna frá innlendum og erlendum fjárfestum Undirritun Samningur Genis og Gamma um fjármögnun frágenginn. Frá vinstri eru Hanna María Hjálmtýsdóttir, fjármálastjóri Genis, Helgi Bergs frá Gamma ráðgjöf og Hilmar Janusson, forstjóri Genis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.