Morgunblaðið - 24.02.2018, Síða 5
Sjónvarp Símans Premium
Einstök innsýn í líf nokkurra af þekktustu tónlistarkonum
landsins. Þær deila með okkur sögunum á bak við verkin og
ferilinn og hvernig persónuleg lífsreynsla hefur mótað þær.
ÖLL ÞÁTTARÖÐIN
KEMURÁSUNNUDAG
FRÉTTIR 5Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2018
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Það sem einkennir umhverfis- og
skipulagssvið er að mikið er kvartað
undan málshraða. Það kemur heim
og saman við reynslu embættisins af
samskiptum við sviðið, en ekkert
svið Reykjavíkur-
borgar er lengur
að svara erind-
um,“ segir Ingi
B. Poulsen, um-
boðsmaður
borgarbúa, í sam-
tali við Morgun-
blaðið.
Vísar Ingi í
máli sínu til þess
að í áfanga-
skýrslu umboðs-
manns borgarbúa er meðal annars
bent á að erindi umboðsmanns eiga
það til að týnast í meðförum sviðsins
eða ekki skila sér með réttum hætti.
„Að meðaltali beið umboðsmaður
borgarbúa í um 80 daga eftir svör-
um frá sviðinu, en sambærilegur
svartími hjá öðrum sviðum er um 13
dagar. Í öllum tilvikum óska svið
eftir auknum fresti eða láta vita af
því að dráttur verði á svörum. Slík-
um beiðnum er ekki fyrir að fara hjá
umhverfis- og skipulagssviði,“ segir
í skýrslu umboðsmanns borgarbúa.
Spurður hvað valdi þessum miklu
töfum í afgreiðslu erinda svarar
Ingi: „Það er erfitt að segja til um
það með vissu, en eins og gefur að
skilja þá hefur verkefnastaðan inni á
þessu sviði aukist mjög með auknum
byggingarframkvæmdum. Það kann
að vera ein skýring, en á sama tíma
hefur ekki fjölgað jafn mikið í hópi
lögfræðinga á sviðinu,“ segir hann
og bætir við að hann hafi nú óskað
eftir fundi með sviðsstjóra umhverf-
is- og skipulagssviðs í þeim tilgangi
að fara nánar yfir stöðuna.
„Ég er búinn að óska eftir fundi
með sviðsstjóra til að fara yfir málið.
Það er eitthvað þarna sem þarfnast
frekari skoðunar – verkskipulag á
sviðinu eða hvort þarna séu meiri
annir en annars staðar. Þetta er
eitthvað sem þarf að greina.“
Mjög flókin stjórnsýsla
Ólöf Örvarsdóttir er sviðsstjóri
umhverfis- og skipulagssviðs
Reykjavíkurborgar. „Við ætlum að
hittast í næstu viku,“ segir hún og
vísar til fyrirhugaðs fundar með um-
boðsmanni borgarbúa. „Þau mál
sem rata inn á borð til okkar eru
jafn ólík og þau eru mörg. Málshraði
getur því velt á ýmsu enda er stjórn-
sýslan í kringum skipulags- og
byggingarmál mjög flókin,“ segir
Ólöf og bendir á að málafjöldi sé
gríðarlegur hjá sviðinu með tilheyr-
andi álagi.
Embætti umboðsmanns borgar-
búa berast, að sögn Inga, á bilinu
200 til 400 erindi ár hvert. „Á fyrstu
fjórum árum embættisins leituðu
um 1.600 borgarbúar til okkar.
Þetta sýnir okkur að það er mjög
mikil eftirspurn eftir þessu úrræði,“
segir hann og bendir á að málin séu
mjög fjölbreytt og að talsverðar
sveiflur séu í málafjölda á milli ára.
Svara erindum seint og illa
Mjög er kvartað undan málshraða umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur-
borgar Umboðsmaður borgarbúa beið að meðaltali í 80 daga eftir svörum
Morgunblaðið/Ómar
Stjórnsýsla Umboðsmaður borgarbúa segir kvartanir og seinagang einkenna umhverfis- og skipulagssvið Reykja-
víkurborgar. Hann hefur nú óskað eftir fundi með sviðsstjóra og stendur til að funda um málið í næstu viku.
Ingi B.
Poulsen
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra tekur við umfjöllun og af-
greiðslu fjögurra mála sem verið
hafa á könnu Guðmundar Inga Guð-
brandsssonar umhverfisráðherra.
Mál þessi víkja að Landvernd, en
Guðmundur var framkvæmdastjóri
samtakanna áður en hann tók við
sem umhverfisráðherra sl. haust.
Mun Katrín Jakobsdóttir forsætis-
ráðherra bera undir forseta Íslands
að þessi háttur verði hafður á.
Guðmundur Ingi greinir frá því á
Facebook í gær að málin sem hann
víkur frá sem ráðherra séu kæra
vegna meints ónógs eftirlits Um-
hverfisstofnunar með fram-
kvæmdum við lagningu háspennu-
lína á Bakka á Húsavík, erindi um að
ráðuneytið fjalli um lögmæti álits
Skipulagsstofnunar um mat á um-
hverfisáhrifum Hvalárvirkjunar,
umsóknir Landverndar um verk-
efnastyrki til ráðuneytisins og erindi
landeigenda í Mývatnssveit vegna
friðlýsinga. sbs@mbl.is
Svandís
fjallar um
fjögur mál
Svandís
Svavarsdóttir
Guðmundur Ingi
Guðbrandsson
Guðmundur víkur
vegna Landverndar