Morgunblaðið - 24.02.2018, Síða 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2018
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
6
5
4
9
Styrkir til verkefna sem
tengjast hagsmunum
fatlaðs fólks og öryrkja
Öryrkjabandalag Íslands veitir árlega sérstaka styrki til ýmissa
hagnýtra verkefna sem tengjast hagsmunum fatlaðs fólks
og öryrkja í samræmi við málefni, markmið og/eða stefnu
bandalagsins. ÖBÍ auglýsir hér með eftir styrkumsóknum.
Umsóknarfrestur er til 15. mars næstkomandi.
Sótt er um styrk rafrænt á vef Öryrkjabandalagsins, obi.is.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk á skrifstofu ÖBÍ.
Netfang: mottaka@obi.is. Sími. 530 6700.
Skýrsla starfshóps um gerð bók-
menningarstefnu var kynnt í gær.
Meðal tillagna hópsins er að starf-
semi Miðstöðvar íslenskra bók-
mennta verði efld og framlög til
hennar hækkuð um að minnsta kosti
50% ár hvert. Miðstöðinni eru ætl-
aðar 103 milljónir króna í ár en hjá
henni geta útgefendur sótt styrki til
útgáfu á stórvirkjum og fræðiritum.
Þá er lagt til að hlutverk Mennta-
málastofnunar varðandi námsbóka-
útgáfu verði endurskoðað ásamt lög-
um um útgáfu námsgagna, náms-
gagnasjóður grunnskóla verði efldur
og rafrænni menntagátt komið á
laggirnar. Eins að námsbækur og
námsgögn í framhaldsskólum verði
nemendum upp að 18 ára aldri að
kostnaðarlausu.
Lagt er til að Miðstöð íslenskra
bókmennta verði efld með auknum
fjárframlögum og hún styrki sér-
staklega útgáfu myndskreyttra
bóka fyrir börn. Þá er lagt til að lög
um Hljóðbókasafn Íslands verði
endurskoðuð en starfsemi þess hef-
ur sætt mikilli gagnrýni að undan-
förnu.
Starfshópurinn leggur til að bóka-
skattur verði afnuminn. Athygli vek-
ur þó að fulltrúi fjármála- og efna-
hagsráðuneytisins í starfshópnum,
Sigurður Guðmundsson, lætur bóka
sérstaklega í þessu samhengi efa-
semdir sínar um þessa leið. Hann
kveðst telja rétt að samhliða úttekt
á virðisaukaskattsleiðinni verði
skoðaðir mismunandi möguleikar til
þess að auka með beinum hætti
stuðning við bókaútgefendur og rit-
höfunda. Það er því ljóst að ekki rík-
ir fullkominn einhugur um þessa
boðuðu aðgerð.
„Það er auðvitað óheppilegt að
fulltrúi fjármálaráðuneytisins í
starfshópnum hafi sett fyrirvara um
tillögu meirihluta starfshópsins,“
segir Egill Örn Jóhannsson, fyrrver-
andi formaður Félags íslenskra
bókaútgefenda, sem sæti átti í
starfshópnum.
„Þrátt fyrir það er ég sannfærður
um að menntamálaráðherra standi
við orð sín og það sem stendur skýr-
um orðum í stjórnarsáttmála ríkis-
stjórnarinnar; að virðisaukaskattur
verði afnuminn af bókum eigi síðar
en í lok þessa árs.“
hdm@mbl.is
Skýrsla Egill Örn Jóhannsson og Kristrún Lind Birgisdóttir afhentu Lilju
Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra skýrsluna.
Ekki eining um
afnám bókaskatts
Fulltrúi fjármálaráðuneytis lýsir efa
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það verður að viðurkennast að
hugmyndin er náttúrlega klikkuð
en þannig er þetta bara,“ segir
Ásgeir Halldórsson, einn skipu-
leggjenda ferjusiglingar með
stuðningsmenn íslenska landsliðs-
ins í knattspyrnu á HM í Rúss-
landi í sumar.
Tugir Íslendinga hafa bókað sér
far með ferjunni M/S Furmanov
en hugmyndin er að hún sjái allt
að 270 manns fyrir gistingu og
flutningi á milli leikstaða Íslands í
Rússlandi. Þessa dagana eru að
berast staðfestingar um það hvort
fólk fái miða á leiki íslenska liðs-
ins og því ljóst að margir fara að
huga að gistingu. „Það er líklegt
að það verði biðröð í skipið í mars,
apríl og maí en við þurfum að fá
nægan fjölda, alla vega 200
manns, fyrir lok febrúar til að af
þessu geti orðið,“ segir Haukur
Hauksson hjá ferðaskrifstofunni
Bjarmalandi sem hefur tekið að
sér sölu á siglingunni.
Til að ævintýrið geti orðið að
veruleika þarf að borga fyrirfram-
greiðslu til útgerðarinnar um
næstu mánaðamót. Áhugasamir
þurfa að greiða 100 þúsund króna
staðfestingargjald sem verður
endurgreitt ef ekki verður af ferð-
inni.
Ferðin er 13 daga sigling. Allur
matur er innifalinn og drykkir eru
sagðir á góðum kjörum. Hægt er
að horfa á alla leiki á HM á skjám
um borð. Siglt er um ána Volgu og
stoppað á áhugaverðum stöðum á
leiðinni og farið í skoðunarferðir.
Tveggja manna káeta kostar 270
þúsund krónur á mann. Unnið er
að því að skipuleggja leiguflug til
Rússlands í tengslum við sigl-
inguna.
Haukur Hauksson segir þetta
kostakjör. „Verð á hótelum og
annarri þjónustu í Rússlandi á
HM rýkur upp og á enn eftir að
hækka. Íslendingar halda að
skemmtisigling sé eitthvað mjög
dýrt og óraunverulegt. En þarna
eru menn að borga tæplega 20
þúsund krónur á sólarhring fyrir
flutning, alla þjónustu um borð og
toppfæði.“
Margir spenntir
fyrir því að sigla
milli leikstaða á HM
Þykir raunhæfur kostur því verð á gist-
ingu og þjónustu í Rússlandi rýkur upp
Lúxussigling Um 270 manns kom-
ast með ferjunni M/S Furmanov
sem sigla á milli leikstaða Íslands á
HM í Rússlandi.