Morgunblaðið - 24.02.2018, Page 23
FRÉTTIR 23Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2018
Borgartúni 26
105 Reykjavik
Sími 590 2600
Til sölu er lóðin Skektuvogur 1. Um er að ræða vel staðsetta 9.368 m2
hornlóð sem er hluti nýrrar Vogabyggðar sem er svæðið austan
Sæbrautar og niður að ósum Elliðaáa þar sem mun rísa blönduð byggð
íbúða- og atvinnuhúsnæðis með góðu aðgengi að þjónustu og náttúru.
Þinglýst hefur verið nýjum lóðarleigusamningi við Reykjavíkurborg og
gatnagerð við lóðina er á lokastigi.
Heildarbyggingarmagn er 23.650 m2 skv. gildandi skipulagi, þar af
16.890 m2 ofanjarðar og 6.760 m2 neðanjarðar. Heimilt er að byggja
ofanjarðar allt að 10.162 m² íbúðarhúsnæði (102 íbúðir) og allt að
6.728 m2 atvinnuhúsnæðis ef heimild fyrir íbúðarhúsnæði er nýtt til
Einstökbyggingarlóð til sölu
miðsvæðis áhöfuðborgarsvæðinu
fulls. Meðfram Sæbraut er gert er ráð fyrir fjölbreyttri atvinnustarfsemi
sem fellur vel að íbúðarbyggð, s.s. skrifstofum, opinberri þjónustu,
verslunum, veitingarekstri, menningarstarfsemi o.þ.h.
Hægt er að óska eftir frekari upplýsingum með því að senda
tölvupóst á netfangið skektuvogur@lex.is
Allar nánari upplýsingar veita Garðar Víðir Gunnarsson hdl. og
Óskar Sigurðsson hrl. hjá LEX lögmannstofu í síma 590-2660.
Áhugasamir aðilar sendi tilboð á netfangið skektuvogur@lex.is
fyrir 28. febrúar 2018.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Reykjavíkurborg hefur auglýst til-
lögu að breytingu á deiliskipulagi
Skólavörðuholts vegna lóðanna nr.
21-27 við Frakkastíg og nr. 2-20 við
Bergþórugötu. Til stendur að reisa
ný íbúðarhús á Skólavörðuholti og
er það í samræmi við stefnu borgar-
innar um þéttingu byggðar. Þessi
hús verða miðsvæðis í borginni og
án efa eftirsótt til búsetu.
Deiliskipulagssvæðið markast af
Bergþórugötu til norðurs, Frakka-
stíg til vesturs, sameiginlegri bíla-
stæðalóð Reykjavíkurborgar,
Tækniskólans og Hallgrímskirkju
til suðurs og Vitastíg til austurs.
Bílastæði Tækniskólans
Fram kemur í kynningu á deili-
skipulaginu að lóðaleigusamningar
fyrir lóðirnar Bergþórugata 10-12
og 18-20 eru fallnir úr gildi og hefur
Reykjavíkurborg ákveðið að byggt
verði á þeim lóðum í samræmi við
aðliggjandi byggð. Við Bergþóru-
götu 10 og 12 eru tvær óbyggðar
lóðir sem nýttar hafa verið fyrir
bílastæði Tækniskóla Íslands, áður
Iðnskólans. Samkvæmt hinu nýja
skipulagi verður heimilt að byggja
allt að 18 íbúðir á lóðinni. Heimilt
verður að byggja þriggja hæða
íbúðabyggingu, tvær hæðir auk
portbyggðrar rishæðar. Þakform
bygginga skal vera mænisþak. Ekki
er gert ráð fyrir bílastæðum.
Á lóð Bergþórugötu 20 er hús þar
sem rekinn hefur verið leikskóli um
árabil, en þeirri starfsemi hefur
verið hætt. Lóð nr. 18 stendur auð
en hefur verið nýtt sem útisvæði
leikskólans. Á þessari lóð verður
heimilað að byggja allt að fjórar
íbúðir. Húsið við Bergþórugötu 20
mun standa áfram en það nýtur
verndar 20. aldar bygginga. Því
verður breytt í íbúðarhús á ný með
fjórum íbúðum. Um er að ræða tví-
lyft timburhús með kjallara og ris-
þaki.
Nýja deiliskipulagið gerir ráð fyr-
ir einu bílastæði fyrir hverja íbúð.
Þá verður heimilað að bæta rishæð
ofan á íbúðarhúsið Bergþórugötu 6.
Samkvæmt gildandi aðalskipulagi
2010-2030 er þessi hluti Bergþóru-
götu skilgreindur sem íbúðabyggð.
Hverfið byggðist að stærstum hluta
í samræmi við tillögu að heildar-
skipulagi Reykjavíkur innan Hring-
brautar frá 1927 og var að mestu
fullbyggt kringum 1950. Hverfið er
talið hafa heilsteypt yfirbragð.
Deiliskipulagstillagan er sögð
hafa jákvæð áhrif. Fyllt verði í
skörð í götumynd Bergþórugötu og
lóðir sem notaðar hafa verið undir
bílastæði Tækniskólans verði nýttar
til íbúðabygginga. Tillagan styrki
þannig svæðið með fjölgun íbúða til
samræmis við stefnu um þéttingu
byggðar. Með tillögunni fjölgi íbú-
um á svæðinu sem stuðli að betri
nýtingu á innviðum borgarinnar.
Það eru talin neikvæð áhrif að gera
megi ráð fyrir auknu ónæði meðan
á framkvæmdum stendur.
Tillöguna má finna á vef Reykja-
víkurborgar. Eru þeir sem telja sig
eiga hagsmuna að gæta hvattir til
að kynna sér tillöguna.
Athugasemdafrestur er til 26. mars.
Borgin áformar þéttingu
byggðar á Skólavörðuholti
Byggð verða íbúðarhús á tveimur óbyggðum lóðum við Bergþórugötuna
Mynd/a2f arkitektar
Bergþórugata Teikningin sýnir hvernig til stendur að fylla upp í skörðin í Bergþórugötu með nýjum húsum. Hér er
horft yfir götuna úr norðaustri. Byggingarnar í bakgrunni eru Austurbæjarskóli (t.v.) og byggingar Tækniskólans.
Tilkynnt var um líkamsárás í aust-
urhluta borgarinnar seint á
fimmtudagskvöld. Árásarþoli hlaut
áverka á höfði við barsmíðarnar og
brotna tönn, Hann þurfti að leita
sér aðstoðar á slysadeild. Málið er í
rannsókn lögreglu.
Rúmlega eitt í fyrrinótt var til-
kynnt um mann í Miðbæ Reykjavík-
ur með hníf í hendi. Lögreglan seg-
ir hann hafa verið í annarlegu
ástandi og reyndist við athugun
vera með fíkniefni meðferðis. Hann
gisti fangageymslu.
Barsmíðar í borginni
og brotin tönn
Þórey Eyþórs listakona opnar í dag
sýningu á nýjum verkum, fyrst og
fremst textílverkum, í sýningarsal
sínum, Gallerí Vest á Hagamel 67.
Þórey útskrifaðist úr Myndlista-
og handíðaskóla Íslands á árinu
1965 og hefur unnið að list sinni
samhliða störfum að sérkennslu-
fræði og talmeinafræði, bæði hér-
lendis og erlendis.
„Aldurinn gefur manni aukið
frelsi til að skapa það sem mann
langar til. Þessi sýning ber þess
sannarlega merki að hún leyfir
huganum að taka flugið og leiðir
mann inn í veröld fegurðar og
gleði,“ segir í kynningu.
Listakona Þórey Eyþórsdóttir framan við
sýningarsal sinn, Gallerí Vest.
Þórey Eyþórs sýnir
textíl í Gallerí Vest