Morgunblaðið - 24.02.2018, Page 32
32 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2018
Ingvar Þór Jóhannesson ermaðurinn á bak við þátttökuReykjavik Puffins, semstefnir að einu af fjórum
efstu sætunum í sínum riðli í at-
skákkeppni á netinu, Pro chess-
league. Ingvar er skráður í lið
Reykjavíkurlundanna en þar sem
hann heldur úti vefsíðu og beinum
útsendingum á meðan á keppni
stendur hefur hann látið sér nægja
að bera fyrirliðabandið. Þeir sem
teflt hafa fyrir sveitina auk greinar-
höfundar eru Jóhann Hjartarson,
Hjörvar Steinn Grétarsson, Hannes
Hlífar Stefánsson, Þröstur Þór-
hallsson, Jón Viktor Gunnarsson og
bræðurnir Björn og Bragi Þor-
finnssynir. Fjögur efstu sætin í
riðlinum gefa rétt á þátttöku í 16
liða útsláttarkeppni en þeim liðum
sem síðan komast í undanúrslit
verður boðið til New York í sér-
staka úrslitakeppni og útsendingu
kostaða af Chess.com vefnum.
Forsvarsmenn keppninnar hafa
fengið til keppni kappa á borð við
Magnús Carlsen heimsmeistara,
Maxime Vachier-Lagrave, Viswan-
athan Anand og Hikaru Nakam-
ura,Fambiano Carugna svo nokkrir
séu nefndir. Það kom í hlut grein-
arhöfundar að tefla við Magnús á
dögunum og tapaðist sú skák eftir
snarpa baráttu en á ýmsu hefur
gengið hjá okkar sveit. Tveir sigr-
ar, tvö töp og eitt jafntefli og 5.
sæti í riðlinum en betur má ef duga
skal. Tímafyrirkomulagið er oftast
15 2 en stundum 10 2.
Þó að skemmtigildið sé vissulega
í fyrirrúmi fylgir keppninni alvara
og ákveðnar reglur sem krefja þátt-
takendur um að undirrita loforð um
að hegða sér íþróttamannslega,
hafa ekki samráð á meðan keppni á
stendur, nota ekki hugbúnað
o.s.frv. Keppendur sjást raunar í
vefmyndavél á meðan teflt er, sem
er ákveðin trygging, en einbeittur
brotavilji gæti hæglega eyðilagt
svona keppni nema sendur væri
sérstakur eftirlitsmaður/dómari á
vettvang.
Eftir fyrstu viðureign Reykjavik
Puffins við franska liðið Marseille
Migraines var sigurskák Braga
Þorfinnssonar kosin skák umferð-
arinnar. Bragi vann með tilþrifum.
Fögnuðu þeir bræður Björn og
Bragi vel og lengi eftir á. Bragi hik-
aði ekki við að tefla fjögurra peða
árásina í kóngsindverskri vörn, af-
brigði sem hann lærði fyrir Ólymp-
íumót 16 ára og yngri á Kanarí-
eyjum árið 1995:
Bragi Þorfinnsson – Etienne
Bacrot
Kóngsindversk vörn
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4.
e4 d6 5. f4 0-0 6. Rf3 c5 7. d5 e6 8.
Be2 exd5 9. cxd5 Bg4 10. 0-0 Rbd7
11. He1 He8 12. h3 Bxf3 13. Bxf3
a6 14. g4 h6 15. h4!
Hér duga engin vettlingatök.
15. … b5 16. g5 Rh7 17. e5!
Snarplega leikið, peðsleikurinn
rýmir fyrir d-peðinu, riddaranum
og biskupnum á f3.
17. … dxe5 18. d6 Hb8 19. Rd5
hxg5 20. hxg5 Rhf8 21. Rc7?!
„Houdini“ telur 21. Bg4! betra
þar sem svartur getur nú leikið
21. … exf4 með góðri stöðu. En
Bragi var greinilega búinn að slá
Bacrot út af laginu.
21. … Re6 22. Rxe8 Dxe8 23. a4
Dd8 24. axb5 axb5 25. Bd5! Rdf8
26. fxe5 Rxg5 27. Dg4 Rge6 28.
Ha7 Db6
(– Sjá stöðumynd)
29. Hxf7!
Glæsilega leikið. Eftirleikurinn
ætti að vera auðveldur en Bacrot er
harður í vörninni.
29. … Kxf7 30. Hf1+ Ke8 31.
Bxe6 c4+ 32. Hf2 Hb7 33. Bf7+!
Hvítur vinnur nú mikið lið og úr-
slitin eru ráðin.
33. … Hxf7 34. Dc8+ Dd8 35.
Dxd8+ Kxd8 36. Hxf7 Bxe5 37.
Bg5+ Kc8 38. Hxf8+ Kd7 39. Hd8+
Ke6 40. d7 Bxb2 41. Hb8 Kxd7 42.
Hxb5 c3 43. Kf1 Kc6 44. Hb8 Kd5
45. Ke2 Ke4 46. Hb4 Kf5 47. Hb5
Kg4 48. Bf6 g5 49. Hxg5 Kf4 50.
Hc5 Ke4 51. Bxc3
- og svartur gafst upp.
Reykjavíkurlundar
stefna hátt
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Merki Reykjavíkurlundanna.
Rótarý eru fremstu
mannúðar- og velferð-
arsamtök í heiminum
og starfa í yfir 200 lönd-
um með rúmlega 1,2
milljónir félaga í um 35
þúsund klúbbum. Rót-
arý er hreyfing fólks
allstaðar að úr atvinnu-
lífinu, viðskiptum, op-
inberri þjónustu og
stjórnsýslu. Þetta eru
alþjóðasamtök, sem standa fyrir
mannúðar-, menningar- og frið-
arstarfi um allan heim. Þau berjast
fyrir góðu siðgæði og góðvild, en
kjörorð hreyfingarinnar á heimsvísu
eru „Þjónusta ofar eigin hag“.
Langstærsta verkefni Rótarý-
hreyfingarinnar síðustu 30 árin hefur
verið útrýming á lömunarveiki í
heiminum, svokallað „Polio Plus“
verkefni. Hefur það starf verið leitt
af Rótarýsjóðnum, sem oft er kall-
aður „Flaggskip“ Rótarýhreyfing-
arinnar. Vonir eru bundnar við, að á
næstu þremur árum sjái fyrir end-
ann á því verkefni, en Rótarý hefur í
samstarfi við Bill og Melindu Gates
Foundation lyft þar grettistaki.
Margir Rótarýfélagar og flestallir
klúbbar greiða árlega til Rótarý-
sjóðsins, sem síðan ger-
ir sjóðnum og Rótarý-
hreyfingunni kleift að
vinna að þeim mörgu
þjónustuverkefnum
sem Rótarý sinnir.
Meðal þeirra eru öflugt
friðarstarf, styrkir til
náms, m.a. í friðar-
fræðum, sjúkdóma-
forvarnir ásamt
mæðra- og ung-
barnavernd, öflun
vatns, grunnmenntun
og læsi.
Rótarýhreyfingin átti 113 ára af-
mæli í gær 23. febrúar og Rótarý-
sjóðurinn verður 101 árs síðar á
þessu ári. Það er ekki sjálfgefið að
svona samtök nái þessum aldri og
þeim árangri sem Rótarý hefur náð.
Ég held að það sé ekki síst því að
þakka að hreyfingin, hinn almenni
rótarýfélagi og einstakir klúbbar
gera sér grein fyrir að með sífelldum
breytingum í umhverfi okkar verða
nýjar áskoranir til. Þessum áskor-
unum er mætt með „mikilli vinnu,
einlægni og trúmennsku í nafni Rót-
arý“, svo ég vitni á orð Ian Riesely al-
þjóðaforseta Rótarý. Þessi orð eiga
einnig skírskotun í leiðarljós okkar
rótarýmanna og -kvenna:
Er það satt og rétt ?
Er það drengilegt ?
Eykur það velvild og vinarhug ?
Er það öllum til góðs?
Ég gekk í Rótarýklúbb Mosfells-
sveitar 1986, þá nýfluttur í sveitina
og sá þar tækifæri til að kynnast
nýju fólki, því tengslanet og vinátta í
Rótarý skipti miklu máli. Rótarý eru
starfsgreinasamtök, sem gefa ein-
stakt tækifæri til að kynnast mönn-
um og málefnum á Rótarýfundum og
þar sem flutt eru fróðleg erindi í
anda símenntunar. Í dag er 31 klúbb-
ur starfandi vítt um land með um
1.200 félögum, konum og körlum
Rótarýdagurinn er haldinn í dag. Í
tilefni af því látum við rótarýfélagar
rödd Rótarý heyrast og kynnum það
mikla og frábæra starf sem fram fer í
Rótarýklúbbum um allt land. Rótarý
er skemmtilegur félagsskapur, sem
víkkar sjóndeildarhringinn og gerir
okkur að betri manneskjum. Ég er
stoltur af því að tilheyra Rótarýfjöl-
skyldunni, því – Rótarý hefur áhrif.
Rótarý hefur áhrif
Eftir Knút
Óskarsson » Þessum áskorunumer mætt með „mikilli
vinnu, einlægni og trú-
mennsku í nafni Rót-
arý“
Knútur Óskarsson
Höfundur er umdæmisstjóri Rótarý á
Íslandi 2017 – 2018.
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratuga
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Skeifan fasteignasala / Suðurlandsbraut 46
108 Reykjavík / Sími 568 5556 / skeifan@skeifan.is
Fýlshólar 1, 111 Reykjavík
Stórt og vel við haldið þriggja kynslóða fjölskylduhús með
fjórum íbúðum og bílskúr. Óviðjafnanlegt útsýni yfir borgina og
sundin. Fasteignasalar Skeifunnar taka á móti gestum.
Opið hús,
þriðjudaginn 27. febrúar kl. 17.30-18.00
Eysteinn Sigurðsson, löggiltur fasteignasali.
Þórir Hallgrímsson, hdl. og löggiltur fasteignasali.
Það er hverri þjóð
nauðsynlegt að standa
vel að menntun kom-
andi kynslóða hverju
sinni, á því byggist
framþróun og velmeg-
un. Íslendingar hafa
byggt upp mennta-
kerfi sem er á margan
hátt gott. Það er samt
umhugsunarvert að
hjá þjóð sem telur
rúmlega þrjú hundruð þúsund skuli
vera reknir sjö háskólar. Áhersla á
háskólamenntun hefur verið mjög
mikil og virðist ekki vera í takt við
þörf þjóðfélagsins, þetta má glöggt
greina þegar þær fréttir berast frá
Vinnumálastofnun að fjórðungur at-
vinnulausra er langskólagenginn.
Forstjóri Vinnumálastofnunar kall-
ar eftir því að ríkið og sveitarstjórnir
búi til störf fyrir þetta fólk og virðist
sem ekki skipti máli hvort þörf er
fyrir hendi eða ekki, heldur skal
báknið bara stækka,
einhvern tíma hefði
þetta verið kallað at-
vinnubótavinna. Á sama
tíma kallar atvinnulífið
eftir iðnmenntuðu fólki.
Því miður hefur ekki
verið lögð næg áhersla
á að efla iðnnám og
hvetja ungt fólk til iðn-
náms. Ferðaþjónustan
hefur margfaldast á
undanförnum árum
með tilheyrandi vaxt-
arverkjum og er veru-
legur skortur á fólki til að sinna
auknum fjölda erlendra ferðamanna.
Mönnunarvandi iðnaðar og ferða-
þjónustu hefur á síðari árum verið
leystur með innflutningi erlends
vinnuafls sem hefur reynst misjafn-
lega vel og oftar en ekki kostað fyr-
irtækin verulegar fjárhæðir vegna
skorts á tungumálakunnáttu. Fræg
er sagan af byggingaverktakanum
sem bað erlenda starfsmenn sína að
„þrífa skúrinn“ meðan hann færi í
bæjarferð, þegar hann kom til baka
sátu fyrrnefndir sarfsmenn á timb-
urstafla og voru nokkuð góðir með
sig, þeir voru sko búnir að „rífa
skúrinn“ eins og hann bað um. Það
er svo að íslenskumælandi iðnaðar-
menn eru mjög eftirsóttir enda fer
þeim hlutfallslega fækkandi. Veru-
lega virðist skorta á að stjórnvöld
hafi markað langtíma stefnu í
menntamálum þar sem tekið er mið
af þörfum þjóðfélagsins fyrir fólk í
öll störf. Ég hvet þig, Lilja Alfreðs-
dóttir menntamálaráðherra, til að
taka þessi mál nú föstum tökum og
marka stefnu til lengri tíma sem tek-
ur mið af þörfum atvinnulífsins.
Hefjum iðn og starfstengt nám til
vegs og virðingar á ný.
Ofmenntuð þjóð?
Eftir Jón Þór
Sigurðsson » Verulega virðist
skorta á að stjórn-
völd hafi markað lang-
tímastefnu í mennta-
málum.
Jón Þór Sigurðsson
Höfundur er vélvirki.