Morgunblaðið - 24.02.2018, Page 34
34 UMRÆÐAN Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2018
AKURINN kristið samfélag | Samkoma í Nú-
palind 1, Kópavogi, kl. 14. Biblíufræðsla, söng-
ur og bæn.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Þór Hauksson prédikar og þjónar fyrir altari. Jón
Heiðar Þorkelsson leikur á trompet. Barn borið
til skírnar. Kór Árbæjarkirkju leiðir almennan
safnaðarsöng. Krisztina Kalló organisti. Sunnu-
dagaskóli á sama tíma í safnaðarheimilinu í
umsjá Ingibjörgu Hrannar og Önnu Lilju. Messu-
kaffi og spjall eftir stundina.
ÁSKIRKJA | Útvarpsmessa og barnastarf kl.
11. Séra Sigurður Jónsson sóknarprestur þjón-
ar fyrir altari og prédikar. Kristný Rós Gúst-
afsdóttir og Dagur Fannar Magnússon guð-
fræðinemi annast samverustund
sunnudagaskólans. Kór Áskirkju syngur, org-
anisti Bjartur Logi Guðnason. Kaffisopi eftir
messu.
ÁSTJARNARKIRKJA | Rótarýmessa kl. 11.
Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Keiths
Reed. Félagar úr Rótarýklúbbi Hafnarfjarðar lesa
ritningarlestra og taka þátt í altarisþjónustu. Jó-
hannes Pálmi Hinriksson prédikar. Prestur er
Kjartan Jónsson. Hressing og samfélag á eftir.
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli í
Brekkuskógum 1 kl. 11. Umsjón með stundinni
hafa Guðmundur Jens og sr. Hans Guðberg.
BORGARPRESTAKALL | Barnaguðsþjónusta í
Borgarneskirkju kl. 11. Guðsþjónusta í Borg-
arkirkju kl. 14. Aðalsafnaðarfundur. Prestur Þor-
björn Hlynur Árnason.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Leiðtogar sunnudagaskólans,
Steinunn Þorbergsdóttir og Steinunn Leifsdóttir,
taka á móti börnunum. Prestur Vigfús Ingvar
Ingvarsson. Örn Magnússon spilar á orgel og
pianó. Eftir guðsþjónustuna verður kaffi, te eða
djús og meðlæti í safnaðarsalnum. Tómasar-
messa kl. 20. Yfirskrift hennar er Glíman við
Guð.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11. Hreið-
ar Örn, Ragnar Bjarni, Jónas Þórir og Pálmi leiða
samveruna. Guðsþjónusta og aðalsafn-
aðarfundur kl. 14. Kór Bústaðakirkju syngur,
Jónas Þórir við hljóðfærið. Messuþjónar að-
stoða. Prestur Pálmi Matthíasson. Aðalsafn-
aðarfundur Bústaðasóknar eftir messu. Veit-
ingar í boði sóknarnefndar.
DIGRANESKIRKJA | Útvarpsmessa kl. 11.
Prestur Gunnar Sigurjónsson, organisti Sólveig
Sigríður Einarsdóttir. Kammerkór Digraneskirkju
syngur. Sunnudagaskóli í kapellu á neðri hæð á
sama tíma. Veitingar í safnaðarsal að athöfn
lokinni.
Dómkirkja Krists konungs, Landakoti |
Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á
íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Messa virka daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl. 8,
lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18 (vigilmessa).
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11, séra Sveinn Val-
geirsson prédikar og þjónar fyrir altari. Sunnu-
dagaskóli á kirkjuloftinu hjá Óla og Sigga. Næg
bílastæði við Alþingi.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli kl. 11. Pétur Ragnhildarson
guðfræðinemi predikar og sr. Jón Ómar Gunn-
arsson þjónar. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn
Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Tónlistar-
nemendurnir Agnes Sjöfn Reynisdóttir og Silja
Rún Högnadóttir spila á selló. Meðhjálpari Jó-
hanna Freyja Björnsdóttir. Kaffi og djús eftir
stundina.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudagaskóli kl.
11. Kvöldvaka kl. 20. Kór og hljómsveit kirkj-
unnar leiðir sönginn undir stjórn Arnar Arn-
arsonar. Skarphéðinn Þór Hjartarson leikur á pí-
anó, Guðmundur Pálsson á bassa og Rúnar
Matthíasson á trommur.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 14. Hjörtur Magni Jóhannsson
safnaðarprestur leiðir stundina. Sönghópurinn
við Tjörnina leiðir tónlistina ásamt Gunnari
Gunnarssyni organista. Barnakór Fríkirkjunnar
syngur undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur.
Svavar Knútur söngvaskáld spilar og syngur.
Kaffiveitingar í safnaðarheimili að guðsþjónustu
lokinni.
GLERÁRKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11. Um-
sjón Sunna Kristrún Gunnlaugsdóttir djákni.
Kvöldmessa kl. 20. Sr. Gunnlaugur Garðarsson
þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn
Valmars Väljaots orgelleikara.
GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra
Sigurður Grétar Helgason prédikar og þjónar.
Kór Grafarvogskirkju leiðir söng og organisti er
Hákon Leifsson. Sunnudagaskóli kl. 11 á neðri
hæð kirkjunnar. Umsjón hefur Guðrún Karls
Helgudóttir og Þóra Björg Sigurðardóttir. Undir-
leikari er Stefán Birkisson.
GRAFARVOGUR - KIRKJUSELIÐ Í SPÖNG |
Selmessa kl. 13. Séra Guðrún Karls Helgudóttir
prédikar og þjónar. Barn verður borið til skírnar.
Vox Populi leiðir söng og undirleikari er Stefán
Birkisson.
GRENSÁSKIRKJA | Messa og sunnudaga-
skóli, Daníel Ágúst, Ásta Lóa og Sóley taka á
móti börnunum í messunni sem hefst kl. 11 og
svo fara þau í sitt starf. Í messunni þjónar sr.
María Ágústsdóttir ásamt messuþjónum. Sam-
skot til Hjálparstarfs kirkjunnar. Organisti er
Ásta Haraldsdóttir og félagar úr kirkjukór Grens-
áskirkju leiða söng. Kaffisopi á undan og eftir
messu. Bænastund kl. 10.15. Hversdags-
messa fimmtudag kl. 18.10-18.50.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðsþjón-
usta og sunnudagaskóli kl. 11. Prestur Leifur
Ragnar Jónsson, organisti Ástvaldur Traustason
og kór Guðríðarkirkju syngur. Sunnudagaskóli í
umsjá Sigurðar Óskars og Hákons Darra. Ferm-
ingarbörn úr Ingunnarskóla taka þátt í messunni
og foreldrar þeirra bjóða upp á veitingar með
kaffinu eftir messu. Kirkjuvörður Lovísa Guð-
mundsdóttir og meðhjálpari Guðný Aradóttir.
Fermingarbörn úr Ingunnarskóla máta
fermingarkyrtlana eftir messuna.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar
fyrir altari. Hópur messuþjóna aðstoðar. Félagar
úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti
Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón barnastarfs
Inga Harðardóttir. Opnun listsýningar Kristínar
Reynisdóttur eftir messu. Ensk messa kl. 14 í
umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar. Árdeg-
ismessa miðvikud. kl. 8 og hádegiserindi kl. 12.
Aðalsteinn Ásberg talar. Kyrrðarstund fimmtud.
kl. 12.
HÁTEIGSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl.
11. Ingibjörg Fríða Helgadóttir kemur fram. Mik-
ill almennur söngur. Organisti er Þorvaldur Örn
Davíðsson. Prestur er Helga Soffía Konráðs-
dóttir.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Guðsþjónusta kl.
11. Kór Hjallakirkju syngur undir stjórn Kjartans
Jósefssonar Ognibene. Prestur er Sunna Dóra
Möller. Sunnudagaskóli á sama tíma í safn-
aðarheimili. Að lokinni guðsþjónustu er að-
alsafnaðarfundur Hjallaprestakalls. Venjuleg að-
alfundarstörf. Léttar veitingar í boði.
HRAFNISTA HAFNARFIRÐI | Guðsþjónusta
kl. 11 í Menningarsalnum. Hrafnistukórinn syng-
ur. Kórstjóri er Böðvar Magnússon. Ritning-
arlestra les Jón Kr. Óskarsson. Sr. Svanhildur
Blöndal prédikar og þjónar fyrir altari.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Barnakirkja/
fjölbreytt starf fyrir alla aldurshópa kl. 13 og al-
menn samkoma með lofgjörð. Sigríður Schram
prédikar. Heilög kvöldmáltíð í umsjá Ólafs H.
Knútssonar. Kaffi og samfélag eftir stundina.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Sunnudagsguðsþjón-
usta kl. 11 helguð von og minningu sjóslyss-
dagsins 8. janúar 1988 er Bergþór KE 5 sökk og
tveir úr áhöfninni fórust en þrír björguðust. Í
nærveru aðstandenda, áhafnarmeðlima er kom-
ust af og kirkjugesta verður sagan sögð af
Bylgju Dís Gunnarsdóttur sem einnig flytur ein-
söng. Kórfélagar syngja undir stjórn Arnórs org-
anista. Sunnudagaskóli á sama tíma. Sr. Erla
þjónar. Messu- og súpuþjónar ásamt ferming-
arforeldrum bjóða upp á súpu og brauð.
KOLAPORTIÐ | Kolaportsmessa kl. 14 í Kaffi-
porti.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11 á
mörgum tungumálum. Sigurður Arnarson sókn-
arprestur þjónar fyrir altari og sr. Toshiki Toma,
prestur nýbúa, prédikar. Kór Kópavogskirkju
syngur undir stjórn Kitty Kovács organista. Ritn-
ingartextar verða lesnir á ýmsum tungumálum.
Sunnudagaskóli í safnaðarheimilinu Borgum kl.
11 undir stjórn Grímu Ólafsdóttur og Birkis
Bjarnasonar.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og sunnudaga-
skóli kl. 11. Guðbjörg Jóhannesdóttir þjónar, fé-
lagar úr Fílharmóníunni syngja undir stjórn
Magnúsar Ragnarssonar organista. Hafdís Dav-
íðsdóttir og Sara Grímsdóttir taka á móti börn-
unum í sunnudagaskólanum. Að lokinni messu
verður hið árlega páskabingó kvenfélagsins í
safnaðarheimilinu. Öll eru velkomin og börnin
verða leyst út með páskaeggi. Spjaldið kostar
kr. 300. Enginn posi er á staðnum.
LAUGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Eva
Björk Valdimarsdóttir þjónar fyrir altari og prédik-
ar. Elísabet Þórðardóttir organisti. Hólmfríður Jó-
hannesdóttir, Hlín Pétursdóttir söngkonur og
Julian Hewlett píanóleikari flytja dúetta. Sunnu-
dagaskóli á meðan. Kaffi og samvera á eftir.
Helgistund kl. 13 Betri stofunni Hátúni 12 með
sr. Evu Björk og Elísabetu organista.
1. mars. Kyrrðarstund kl. 12. Tónlist, ritning-
arlestur, hugvekja, altarisganga og fyrirbænir.
Súpa og samvera. Samvera eldri borgara kl.
13.30.
MOSFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Kristín Pálsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari.
Hildur Salvör Backmann, kirkjuvörður og með-
hjálpari, les ritningarlestra. Kirkjukórinn leiðir al-
mennan safnaðarsöng undir stjórn Þórðar Sig-
urðssonar organista.
NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11.
Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Háskólakórn-
um syngja. Organisti Gunnsteinn Ólafsson.
Prestur Skúli S. Ólafsson. Sunnudagaskóli. Um-
sjón Ása Laufey, Katrín, Heba og Ari. Samfélag
og kaffisopi eftir messu á Torginu.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Tónlistarmessa og
barnastarf kl. 14. Sr. Pétur Þorsteinsson þjónar
fyrir altari. Messugutti er Petra Jónsdóttir. Í stól-
inn stígur maður frá Sambandi íslenskra kristni-
boðsfélaga. Fjárlaganefnd leiðir messusvör og
söng undir stjórn Árna Heiðars Karlssonar. Ólaf-
ur Kristjánsson tekur á móti öllum.
SALT kristið samfélag | Sameiginlegar sam-
komur Salts og SÍK kl. 17 í Kristniboðssalnum
Háaleitisbraut 58-60, 3. hæð. Kristniboðsvika
byrjar og yfirskrift samkomunnar er: Jesú og
börnin. Ræðumaður Kristbjörg Kía Gísladóttir.
Barnastarf. Túlkað á ensku.
SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Kirkjukórinn
syngur, organisti Edit A. Molnár. Prestur Guð-
björg Arnardóttir. Súpa og brauð í Safnaðar-
heimilinu á eftir. Sunnudagaskóli á sama tíma,
umsjón Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir ásamt leið-
togum.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Óli
og Tómas leiða samveruna. Guðsþjónusta kl.
14. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson predikar. Kór
Seljakirkju leiðir söng. Organisti: Tómas Guðni
Eggertsson. Guðsþjónusta í Skógarbæ kl.
15.30. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson predikar
og Tómas Guðni leikur á flygil.
SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta og
sunndagaskóli kl. 11. Bjarni Þór Bjarnason
sóknarprestur þjónar. Organisti er Friðrik Vignir
Stefánsson. Leiðtogar sjá um sunnudagaskóla.
Félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju leiða
almennan safnaðarsöng. Veitingar og samfélag
eftir athöfn.
SEYÐISFJARÐARKIRKJA | Messa kl. 11.
Guðspjall dagsins fjallar um trú og veltum við
ýmsum hliðum hugtaksins. Kór Seyðisfjarð-
arkirkju leiðir almennan safnaðarsöng. Organ-
isti og kórstjóri er Sigurbjörg Kristínardóttir.
Fermingarbörn þjóna í stundinni. Kaffi og kökur í
safnaðarheimili eftir messu.
SÓLHEIMAKIRKJA | Sr. Sveinn Alfreðsson
þjónar fyrir altari. Marta Magnúsdóttir skáti pré-
dikar. Skátakórinn syngur. Valdís Ólöf Jónsdóttir
meðhjálpari, Eyþór Jóhannsson kirkjuvörður.
María K. Jacobsen fer með lokabæn. Allar konur
fá blóm í tilefni konudagsins. Messukaffi í Vig-
dísarhúsi.
VÍDALÍNSKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli
kl. 11. Sr. Friðrik J Hjartar prédikar og þjónar
ásamt messuþjónum. Félagar úr Kór Vídal-
ínskirkju syngja. Organisti Douglas Brotchie.
Sunnudagaskólinn hefst í messunni en fer síð-
an með leiðtogum sínum í safnaðarheimilið.
Molasopi, djús og samfélag að messu lokinni.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Hátíðar-
guðsþjónusta kl. 11 í tilefni 30 ára vígsluafmæl-
is kirkjunnar. Kristján Valur Ingólfsson vígslu-
biskup prédikar og sr. Bragi J. Ingibergsson
þjónar fyrir altari. Kór Víðistaðasóknar syngur
undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur.
Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá Maríu og Bryndís-
ar í suðursal. Veislukaffi í safnaðarheimili eftir
guðsþjónustur.
Orð dagsins:
Kanverska konan.
(Matt. 15)
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Vopnafjarðarkirkja.
Í lok janúar sl.
samþykkti Vestnor-
ræna ráðið á fundi
sínum á Grænlandi að
beita sér fyrir átaki
meðal ungmenna á
norðurslóðum. Vímu-
efnavandi ungmenna
er alvarlegur víða á
svæðinu en lítið er
um tölfræðilegar upp-
lýsingar. Á fundinum
var skrifað undir samstarfsyfirlýs-
ingu við rannsóknarmiðstöðina
Rannsóknir og greiningu um að
annast verkefnið „Forvarnir gegn
vímuefnanotkun ungmenna á
norðurslóðum“. Miðstöðin sérhæf-
ir sig í rannsóknum á högum og
líðan ungs fólks bæði á Íslandi og
víða erlendis. Niðurstöður rann-
sóknanna hafa verið nýttar á vett-
vangi meðal fólks sem starfar með
börnum og unglingum, í forvarna-
vinnu, meðal stefnumótunaraðila
og stjórnmálamanna.
Í maí á síðasta ári fékk Vest-
norræna ráðið áheyrnaraðild að
Norðurskautsráðinu og ákveðið
var að ráðið myndi leggja áherslu
á velferð íbúa á norðurslóðum.
Verkefnið um forvarnir gegn
vímuefnanotkun ungmenna bygg-
ist á íslensku leiðinni í forvörnum
og áralöngu starfi Rannsókna og
greiningar við gagnaöflun um
hegðun og líðan ungmenna á Ís-
landi. Sú forvarnarstefna sem
fylgt hefur verið á Íslandi frá lok-
um 10. áratugarins hefur sýnt
mikinn árangur og er henni nú
beitt í tugum bæjarfélaga um all-
an heim.
Vímuefnanotkun er
útbreitt vandamál í
samfélögum á norð-
urslóðum. Til þess að
geta unnið að for-
vörnum er nauðsyn-
legt að styðjast við
áreiðanleg gögn um
vímuefnanotkunina
og þar kemur reynsla
Rannsókna og grein-
ingar sér vel.
Vestnorræna ráðið
þarf að afla stuðnings
frá aðildarlandi að Norðurskauts-
ráðinu til þess að kynna verkefnið
um rannsókn á vímuefnanotkun
ungmenna á norðurslóðum í
vinnuhópi um sjálfbæra þróun. Ef
verkefnið verður samþykkt verð-
ur innan tveggja ára hægt að
nálgast gögn um notkun ung-
menna á norðurslóðum á áfengi,
tóbaki, kannabis og ópíóðum auk
upplýsinga um almenna líðan
þeirra.
Vestnorræna ráðið er sam-
starfsvettvangur þingmanna frá
Íslandi, Færeyjum og Grænlandi.
Ráðið hélt árlega þemaráðstefnu
sína í Ilulissat á Grænlandi dag-
ana 29.-31. janúar sl.
Vímuefnanotkun
ungmenna
á norðurslóðum
Eftir Guðjón S.
Brjánsson
Guðjón S. Brjánsson
»Miðstöðin sérhæfir
sig í rannsóknum á
högum og líðan ungs
fólks bæði á Íslandi og
víða erlendis.
Höfundur er alþingismaður,
formaður Íslandsdeildar
Vestnorræna ráðsins.
gudjonb@althingi.is
Aðalsteinn R.
Björnsson, sem kynn-
ir sig sem fulltrúa á
B-lista til stjórn-
arkjörs í Eflingu –
stéttarfélagi, á erfitt
með að höndla sann-
leikann. Hann skrifar
í Morgunblaðið 22.
febrúar sl. þar sem
hann kvartar undan
því að trúnaðarmenn
og þá sérstaklega á stórum vinnu-
stöðum Eflingar fái ekki að koma
að samningagerð og samninga-
fundum á vegum Eflingar. Þetta er
einfaldlega rangt og hann veit bet-
ur.
Hann hefur skrifað undir kjara-
samninga fyrir hönd félaga sinna
varðandi sérmál þeirra í þremur
kjarasamningum í röð 2008, 2011 og
2015 sem var síðast gerði samning-
urinn.
Hann fullyrðir í umræddri Morg-
unblaðsgrein sem og á Facebook
þann 8. febrúar sl. að hann hafi ekki
fengið að koma að samningagerð
fyrir hönd félaga sinna. Stað-
reyndin er sú að hann mætti á 8
bókaða fundi ásamt undirrituðum,
bæði undirbúningsfundi og fundi
hjá ríkissáttasemjara og er það
samkvæmt fundargerðum sem
liggja fyrir. Fundum sem lauk með
þeim hætti að hann skrifaði undir
niðurstöðurnar.
Aldrei í ferlinu komu fram aðrar
kröfur fyrir hönd starfsmanna en
niðurstaða varð um. Honum þykir
sæmandi að ljúga sig frá eigin verk-
um bæði út á við og gagnvart sínum
eigin vinnufélögum. Svo það sé upp-
lýst þá ganga mætingarlistar hjá
ríkissáttasemjara þar sem umrædd-
ur trúnaðarmaður hefur ritað nafn
sitt í hvert skipti sem fundir voru
haldnir.
Hann býsnast yfir hvað þurfi
marga til þess að bjóða fram í félag-
inu eða 120 manns og 8 manns í
stjórn og segir að til að ná fram svo
mörgum þurfi sterkt bakland og
það sé staðfesting á því að fram-
boðið sé ekki á vegum stjórn-
málaflokks. Hér eins og áður veit
Aðalsteinn betur og verkin tala.
Í lok greinarinnar segist Aðal-
steinn hafa átt sæti í trúnaðarráði
Eflingar. Það skal upplýst hér að
Aðalsteinn á ennþá sæti í trún-
aðarráði Eflingar – stéttarfélags
þvert á fullyrðingar hans.
Undirritaðir sátu í samninga-
nefndinni ásamt Aðalsteini R.
Björnssyni.
Maður á að segja satt
Eftir Tryggva
Marteinsson og
Jóhann Harðarson
Tryggvi
Marteinsson
» Aðalsteini R.
Björnssyni svarað
Tryggvi er starfsmaður Eflingar –
stéttarfélags og Jóhann er trún-
aðarmaður bílstjóra hjá Eimskipa-
félagi Íslands.
Jóhann
Harðarson