Morgunblaðið - 24.02.2018, Side 35

Morgunblaðið - 24.02.2018, Side 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2018 ✝ SigurjónaJónsdóttir fæddist í Enni í Viðvíkursveit 15. nóvember 1923. Hún lést 21. jan- úar 2018. Foreldrar henn- ar voru Jón Jóns- son bóndi í Enni, f. 17. ágúst 1881, d. 28. nóvember 1923, og Steinunn Stefánsdóttir, f. 16. júlí 1886, d. 19. febrúar 1984. Bræður Sigurjónu voru Stefán, f. 15. ágúst 1915, d. 16. janúar 1996, og Guðjón, f. 7. október 1918, d. 12. ágúst 2014. 13. febrúar 1977. Foreldrar Ólafur Elíasson, f. 17. sept- ember 1889, d. 8. maí 1934, og Ólafía Vigfúsdóttir, f. 17. apríl 1888, d. 13. maí 1931. Sigurjóna lauk barnaprófi úr Viðvíkurskólahéraði 1936, prófi frá Héraðsskólanum í Reykholti 1944 og verslunar- prófi frá Samvinnuskólanum 1946. Að prófi loknu hóf hún starf hjá Tóbakseinkasölu ríkisins sem fulltrúi og starfaði þar þangað til hún hóf starf sem fulltrúi hjá Ríkissaksóknara þegar það embætti var stofnað 1961. Hjá Ríkissaksóknara starfaði hún óslitið þar til hún lét af starfi vegna aldurs. Sigurjóna tók mikinn þátt í starfi Kvennadeildar Skagfirð- ingafélagsins í Reykjavík og sat í stjórn hennar til fjölda ára. Útförin fór fram í kyrrþey. Sonur Sigurjónu er Haukur Egg- ertsson, f. 27.októ- ber 1955, giftur Hildi Sveinsdóttur, f. 20. ágúst 1949. Foreldrar Sveinn H. Jónasson, f. 11. nóvember 1913, d. 20. desember 1972, og Heiða Tryggvadóttir, f. 17. maí 1927. Börn Hauks og Hildar eru: 1) Tryggvi Heiðar, f. 20. maí 1986, d. 22. júlí 2011. 2) Stein- unn Jóna, f. 26. apríl 1989. Faðir Hauks var Eggert Ólafsson, f. 14. maí 1926, d. Látin er í Reykjavík góð vin- kona mín, Sigurjóna Jónsdóttir. Jóna, eins og hún var jafnan köll- uð fæddist að Enni í Skagafirði í nóvember 1923. Aðeins nokkurra daga gömul missti hún föður sinn, Jón Jónsson, en hann lést af slysförum. Móðir hennar Stein- unn Stefánsdóttir varð að bregða búi og fara í vinnumennsku með börnin þrjú. Eftir barnaskólagöngu í far- skóla í Viðvíkursveit fór Jóna fyrst í unglingaskóla á Hofsósi og síðan var hún í tvo vetur í Reyk- holti. Eftir það lá leiðin til Reykjavíkur og fluttust þær mæðgur suður og bjuggu saman alla tíð. Jóna fór í nám í Sam- vinnuskólanum og lauk þar prófi og eftir það hóf hún störf hjá Tóbakseinkasölu ríkisins. Þegar Tóbakið var lagt niður fór hún að vinna hjá Saksóknara ríkisins og vann þar til starfsloka. Árið 1955 eignaðist hún soninn Hauk Eggertsson sem ólst upp hjá þeim mæðgum. Þegar móðir mín fæddist var Steinunn vinnukona hjá afa og ömmu. Amma var mikið veik eftir barnsburð og Steinunn tók móð- ur mína að sér að mestu fyrsta árið hennar. Þar mynduðust tengsl sem entust þeim til ævi- loka. Við systkinin litum alltaf á Steinunni sem ömmu okkar og Jónu sem frænku. Jóna var mjög dugleg kona og farsæl. Henni tókst þrátt fyrir lít- il efni að verða mikið úr litlu eins og sagt er. Í fyrstu leigðu þær mæðgur á Njálsgötunni en um 1960 festi Jóna kaup á íbúð í Stigahlíðinni þar sem hún bjó síð- an. Þegar hún var rúmlega fimm- tug tók hún bílpróf og keypti sér appelsínugula Bjöllu. Hún ók bíl þangað til hún var 87 ára en þá fékk hún vægt heilablóðfall og hætti akstri. Jóna var alltaf mjög fín í tauinu og fylgdist vel með tísk- unni. Fyrir tveimur árum vorum við saman í Kringlunni og hún hafði á orði að allar buxur væru þröngar niður og hvort ég ætlaði ekki að fá mér einar slíkar. Á þessu rölti okkar um Kringluna keypti hún sér gjarnan eina og eina flík. Jóna var vel lesin, las mikið. Hún hafði áhuga á ævisögum samtímamanna og hafði gaman af að ræða þær, sem varð til þess að ég las margar merkar ævisög- ur fyrir hennar tilstilli. Á nátt- borðinu þegar hún lést lá saga Jóhönnu Sigurðardóttur sem henni tókst ekki að ljúka alveg. En hún var búin að viðra skoð- anir sínar á þeirri bók við mig. Eftir að Jóna fór á eftirlaun spilaði hún bridge þrisvar til fjór- um sinnum í viku og spilaði einn- ig bridge í tölvunni. Hún fór margar ferðir til Spánar og Kanaríeyja með bróð- ur sínum Guðjóni og hans konu og hún sagði mér margt um þess- ar ferðir. Síðustu tvö árin komst hún lít- ið út úr húsi enda bjó hún á þriðju hæð og engin lyfta. Henni fannst samt notalegt að vera á sínu eigin heimili. Í október síðastliðnum var hún lögð inn á sjúkrahús og átti ekki afturkvæmt þaðan. Löngu og farsælu lífi var lokið. Áslaug Ármannsdóttir. Sigurjóna Jónsdóttir Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SOFFÍA SIGURJÓNSDÓTTIR, Leirubakka 18, Reykjavík, andaðist mánudaginn 12. febrúar á Landspítalanum í Fossvogi. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 27. febrúar klukkan 13. Hafdís Bára Eiðsdóttir Jakob Friðþórsson Kolbrún Ólafsdóttir Ottó Eiður Eiðsson Birna Theódórsdóttir Björg Eiðsdóttir Sturla Birgisson Sigurjón Eiðsson Jóhanna Magnúsdóttir Bjarni Eiðsson Ragnhildur Árnadóttir Auður Eiðsdóttir Jón Helgi Eiðsson Björg Guðmundsdóttir Kristinn Eiðsson Þórunn Haraldsdóttir ömmubörnin Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR HELGI GUÐMUNDSSON, Miðvangi 8, Hafnarfirði, lést föstudaginn 16. febrúar á hjúkrunar- heimilinu Sunnuhlíð. Jarðsungið verður frá Digraneskirkju föstudaginn 2. mars klukkan 11. Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki Sunnuhlíðar. Jóna Baldvinsdóttir Guðmundur R. Gunnarsson Hugrún Reynisdóttir María Gunnarsdóttir Baldvin Ó. Gunnarsson Arna Hreinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn og besti vinur, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÁRNI PÉTUR GUÐBJARTSSON sjómaður, til heimilis að Ásgarði, Skagaströnd, lést á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi mánudaginn 20. febrúar. Hann verður jarðsunginn í Hólaneskirkju á Skagaströnd föstudaginn 2. mars klukkan 14. Aðalheiður Guðmundsdóttir Jóna Árnadóttir Thomas Blackburn Guðjón Árnason Ellen Magnúsdóttir Börkur Hrafn Árnason Kristín Björk Ágústsdóttir Sigurgeir Snævar Árnason Ásta Björg Jóhannesdóttir og barnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, sonur og fyrrverandi eiginmaður, KRISTINN SVEINBJÖRNSSON byggingafræðingur, Kringlunni 87, lést á Landspítalanum Grensási þriðjudaginn 20. febrúar. Jarðarför verður auglýst síðar. Valgerður Bjarnadóttir Helga Kristinsdóttir Berglind Kristinsdóttir Elínóra Kristinsdóttir Herdís Kristinsdóttir Bjarni Kristinsson Helga Kristinsdóttir eldri tengdabörn og barnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, VALDÍS VALGEIRSDÓTTIR, Suðurgötu 4a, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mánudaginn 19. febrúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 1. mars klukkan 13. Vilhelm Sigmarsson Kristjana Vilhelmsdóttir Anton Kristinsson Sigmar Valgeir Vilhelmsson Bergþóra Vilhelmsdóttir Baldvin Gunnarsson Sigrún Vilhelmsdóttir Georg Georgsson barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, RÓSA SIGRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu í Neskaupstað sunnudaginn 18. febrúar. Útförin fer fram frá Norðfjarðarkirkju mánudaginn 26. febrúar klukkan 14. Börn, tengdabörn, ömmubörn og langömmubörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HREINN JÓNASSON rafmagnstæknifræðingur, Lundi 90, Kópavogi, lést þriðjudaginn 20. febrúar á hjúkrunar- heimilinu Skógarbæ. Útförin fer fram frá Seljakirkju mánudaginn 26. febrúar klukkan 15. Sigríður Halblaub Jónína Hreinsdóttir Jóhannes Guðmundsson Jónas Pétur Hreinsson Anna Katrín Hreinsdóttir Eiríkur Magnússon og barnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, RAGNA JÓHANNA MAGNÚSDÓTTIR frá Bolungarvík, Lækjasmára 2, Kópavogi, lést mánudaginn 19. febrúar á Landspítalanum. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn 2. mars klukkan 13. Jón Bjarni Geirsson Andri Jónsson Elsa Jónsdóttir Lilja Jónsdóttir tengdabörn og barnabörn Elsku afi. Það var erfitt símtalið sem við fengum í lok janúar því auðvitað er maður aldrei undirbúinn fyrir svona símtal. Við tóku stutt en erfið veikindi en við erum fegin að hafa getað hitt þig og hvatt þig. Margar góðar minningar koma upp í huga okkar þegar við hugsum til þín. Umhyggju- semi þín og áhugi á lífi og líðan barnabarnanna og sístækkandi hópi langafabarna var svo mik- ill. Það sást á öllum myndum af þér með afkomendum þínum, því augun ljómuðu af stolti. Æskuminningar úr Kross- holtinu eigum við margar, þar sem maður beið spenntur eftir að fljúga eða ferðast suður og dvelja daga og jafnvel vikur í ævintýraheiminum hjá ykkur ömmu. Þar sem barnabörnin hittust og fengu að leika lausum hala í garðinum fallega. Og ekki bara við leik heldur fengum við að læra heilmikið af ykkur ömmu í bílskúrnum, við neta- gerð, smíðar, pílukast o.fl. Við barnabörnin gátum líka Óli Jón Bogason ✝ Óli Jón Boga-son fæddist 17. apríl 1930. Hann lést 6. febrúar 2018 Útför Óla fór fram 15. febrúar 2018. endalaust skemmt okkur yfir því að biðja þig að hreyfa eyrun, og í hvert einasta skipti fannst okkur eins og um galdra væri að ræða. Aldrei virtist þú þreytast á þessari beiðni okkar og tókst svo þátt í hlátrasköll- unum sem því fylgdu. Á heimili ykkar Addýjar var alltaf jafn hlýlega tekið á móti okkur og eigum við saman margar minningar yfir dýrindis veitingum á borðstofuborðinu, þar sem rætt var um daginn og veginn – og fótbolta, þótt ekki hafi allir verið sammála um hverjir voru bestir enda varst þú harður Arsenal-maður! Við dáðumst alltaf að því hvað þið Addý voruð dugleg að ferðast um, bæði hérlendis og erlendis. Við nutum líka góðs af því með reglulegum heimsókn- um ykkar norðan heiða þar sem þið sögðuð okkur fréttir af ferðalögum ykkar, og fréttir af börnunum og barnabörnunum. Því þið fylgdust alltaf svo vel með því sem allir voru að gera. Elsku afi, þín er sárt saknað en við erum viss um að pabbi og amma hafi tekið á móti þér opn- um örmum. Þín barnabörn, Jóhann, Erla Ösp og Heiðar. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.