Morgunblaðið - 24.02.2018, Page 43

Morgunblaðið - 24.02.2018, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2018 Norconsult ehf, Hlíðarsmára 4, 210 Kópavogi Viltu hanna og teikna raforku flutningskerfi framtíðarinnar? Hæfniskröfur: Byggingarverk- eða tæknifræðingur og tækniteiknari Byggingarverk- eða tæknifræðingur • Þekking á hönnun raforkumannvirkja og BIM er kostur • Áhugi á að tileinka sér nýja þekkingu, miðla henni og leysa krefjandi verkefni • Þekking á norðurlandamáli er kostur Tækniteiknari • Viðurkennt próf í tækniteiknun • Þekking á ritvinnslu-, teikni- og hönnunarforritum • Hæfni í mannlegum samskiptum Þann 1. janúar sl. sameinaðist Ara Engineering ehf norska fyrirtækinu Norconsult. Norconsult er stærsta fyrirtæki sinnar tegundar í Noregi og eitt af leiðandi þverfaglegum ráðgjafafyrirtækjum á Norðurlöndum og á alþjóðavettvangi. Norconsult er alfarið í eigu starfsmanna þess. Öllum starfsmönnum gefst kostur á að kaupa hlut í félaginu með tíð og tíma. Verkefni vinnast að mestu leyti á Íslandi í samvinnu við starfstöðvar Norconsult erlendis. Verkefnin eru aðalega á Íslandi, Norðurlöndunum, í Póllandi, í Norður-Ameríku, í Vestur- og Austur-Afríku og í Austur Asíu. Norconsult er fjölskylduvænn vinnustaður með sveigjanlega vinnutíma og býður góð laun. Nánari upplýsingar um starfið veitir: Jóhannes Þorleiksson í síma 820 5915. Umsóknir sendist á: Birna.Eggertsdottir@norconsult.com fyrir 28. feb. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Allianz Ísland hf. Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is. Umsóknarfrestur er til og með 18. mars n.k. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Starfssvið • Ábyrgð á daglegum rekstri • Stjórnun starfsmanna og uppbygging fyrirtækjamenningar • Samræming verkferla, vinnubragða og stjórnun breytinga • Áætlanagerð og kostnaðareftirlit • Samskipti við viðskiptavini, eftirlitsaðila og hagaðila • Virk þáttaka í mótun framtíðarsýnar og stefnu fyrirtækisins • Fylgja eftir stefnu og ákvörðunum stjórnar • Framkvæmdastjóri heyrir undir stjórn Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólapróf sem nýtist í starfi • Reynsla af stjórnun og rekstri æskileg • Reynsla af sölumennsku æskileg • Leiðtogahæfni og færni í mannlegum samskiptum • Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og lausnamiðuð hugsun • Góð enskukunnátta nauðsynleg Framkvæmdastjóri Allianz Ísland hf. óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra fyrir félagið. Allianz opnaði skrifstofu á Íslandi í desember 1994 og býður Íslendingum persónutryggingar, þ.e. líf- og lífeyristryggingar, slysatryggingar og heilsu- og sjúkdómatryggingar í gegnum Allianz Lebensversicherung AG og Allianz Versicherung AG í Þýskalandi. Frá árinu 2002 hefur félagið haft heimild fjármálaráðherra til að bjóða hérlendis upp á samninga um viðbótarlífeyrissparnað, í samræmi við ákvæði laga. Hjá félaginu starfa 13 starfsmenn auk sex sjálfstætt starfandi ráðgjafa og þriggja tryggingamiðlana. Upplýsingar veita: Katrín S. Óladóttir - katrin@hagvangur.is Sverrir Briem - sverrir@hagvangur.is V E R T 8 2 6 4 ASKO hefur fært Norðmönnum matvörur frá árinu 1866 og er í dag með 3300 starfsmenn. Veltan árið 2017 mun verða yfir 55 milljarður norskra króna. ASKO starfrækir 13 útibú víða um Noreg, frá Lillesand í suðri til Tromsø í norðri. ASKO Rogland AS er leiðandi heildsölu- og dreifingarfyrirtæki með um 4,5 milljarða veltu árlega. Markaðurinn er matvöruverslanir, birgjar, mötuneyti og veitingahús innan svæðisins frá Bømlo í norðri og allt til Moi í suðri. Fyrirtækið sjálft er staðsett í Skurve í Gjesdal (ca. 30 mínútna akstur frá Stavanger). Blundar ævintýraþráin í þér? Við óskum eftir íslenskum atvinnubílstjórum í sumar Við bjóðum: • Örugga vinnu frá 1. júní og út ágúst, jafnvel fasta vinnu eftir sumarið • Flug til Noregs (svo fremi sem unnið er út samningstíma) • Húsnæði til leigu, í göngufæri við fyrirtækið • Aðgang að æfingasal, squashsal og sauna • Íslenskan tengilið Hæfniskröfur: • Ökuréttindaflokkur C og CE (meiraprófið) • Vandvirkni, þjónustulipurð og snyrtimennska • Reynsla • Góð norsku/sænsku/dönsku -kunnátta eða mjög góð enska Helstu verkefni: • Lestun og losun • Dreifing á vörum til viðskiptavina • Að vera góður fulltrúi ASKO fyrir viðskiptavini Nánari upplýsingar veitir Sigrid Thors í síma 0047 95 55 17 17 Áhugasamir sendi stutta ferilskrá ásamt nöfnum og símanúmerum hjá meðmælendum til: sigrid.thors@asko.no.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.