Morgunblaðið - 24.02.2018, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2018
Auglýsing um sveinspróf
Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum
sem hér segir:
Í matvælagreinum í maí.
Umsóknarfrestur er til 10. apríl.
Í byggingagreinum í maí/júní.
Umsóknarfrestur er til 10 apríl.
Í prentgreinum í maí/júní.
Umsóknarfrestur til 10 apríl.
Í bíliðngreinum í maí/júní.
Umsóknarfrestur til 10 apríl.
Í hönnunar- og handverksgreinum
í maí/júní.
Umsóknarfrestur er til 10 apríl.
Í snyrtifræði í sept/okt.
Umsóknarfrestur auglýstur síðar.
Í Vélvirkjun í sept/okt.
Umsóknarfrestur auglýstur síðar.
Í hársnyrtiiðn í sept/okt.
Umsóknarfrestur auglýstur síðar.
Í ljósmyndun í sept/okt.
Umsóknarfrestur auglýstur síðar.
Dagsetningar prófanna verða birtar á
heimasíðu okkar um leið og þær liggja
fyrir.
Með umsókn skal leggja fram afrit af
námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og
burtfararskírteini með einkunnum eða
staðfestingu skóla á því að nemi muni
útskrifast í maí 2018.
Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er
mismunandi eftir iðngreinum.
Umsóknareyðublöð - www.idan.is og á
skrifstofunni.
IÐAN - fræðslusetur,
Vatnagörðum 20, 104 Reykjavík,
sími 590 6400, bréfsími 590 6401,
netfang idan@idan.is
AUGLÝSING
um listabókstafi stjórnmálasamtaka.
Við alþingiskosningarnar 28. október 2017 buðu eftirtalin stjórnmálasamtök fram lista og voru þeir merktir
sem hér segir:
A - listi Björt framtíð
B - listi Framsóknarflokkur
C - listi Viðreisn
D - listi Sjálfstæðisflokkur
F - listi Flokkur fólksins
M - listi Miðflokkurinn
P - listi Píratar
R - listi Alþýðufylkingin
S - listi Samfylkingin - jafnaðarmannaflokkur Íslands
T - listi Dögun - stjórnmálasamtök um réttlæti, sanngirni og lýðræði
V - listi Vinstrihreyfingin - grænt framboð
Þetta auglýsist hér með skv. 38. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000.
Dómsmálaráðuneytinu, 21. febrúar 2018.
AUGLÝSING
um sveitarstjórnarkosningar 2018.
Á grundvelli 1. mgr. 1. gr. laga um kosningar
til sveitarstjórna nr. 5/1998, með síðari breyt-
ingum, fara almennar sveitarstjórnarkosningar
fram 26. maí 2018.
Frestur til að skila framboðslistum til yfir-
kjörstjórnar í viðkomandi sveitarfélagi er til kl.
12 á hádegi laugardaginn 5. maí 2018. Sveitar-
stjórnarmenn sem hyggjast skorast undan
endurkjöri skulu tilkynna þá ákvörðun til
yfirkjörstjórnar fyrir lok framboðsfrests.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla getur hafist
31. mars 2018.
Þetta auglýsist hér með samkvæmt 2. mgr. 1.
gr. framangreindra laga.
Dómsmálaráðuneytinu, 21. febrúar 2018.
Kennsla
Breyting á Aðalskipulagi
Árneshrepps 2005-2025
Hreppsnefnd Árneshrepps samþykkti þann
30. janúar 2018 tillögu að breytingu á
Aðalskipulagi Árneshrepps 2005-2025.
Tillagan var auglýst frá 1. september til 16.
október 2017.
Breytingartillagan hefur verið send til Skipu-
lagsstofnunar til staðfestingar. Þeir sem óska
eftir nánari upplýsingum geta snúið sér til
skipulagsfulltrúa Árneshrepps.
Bogi Kristinsson Magnusen
skipulags- og byggingarfulltrúi
Nám í alþjóðlegum
menntaskóla í Noregi
Einstakt tækifæri á námi til
stúdentsprófs í alþjóðlegu umhverfi
(uwcrcn.no)
Mennta- og menningarmálamálaráðuneytið
auglýsir eftir umsóknum um skólavist við
Alþjóðlega menntaskólann, Red Cross
Nordic United World College (RCNUWC)
í Flekke, Noregi, skólaárið 2018 - 2019.
Umsækjendur skulu hafa lokið sem svarar einu
ári í framhaldsskóla, hafa gott vald á ensku og
vera á aldrinum 16-18 ára. Nánari upplýsingar
og umsóknareyðublöð er að finna á vef
ráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is.
Umsóknir berist mennta- og menningar-
málaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 101 Reykja-
vík, eða á netfangið postur@mrn.is í síðasta
lagi mánudaginn 19. mars 2018.
Auglýst eftir framboðum til kirkjuþings
Á grundvelli 11. gr. starfsreglna um kjör til kirkjuþings, nr. 1075/2017 auglýsir kjörstjórn þjóðkirkjunnar eftir
framboðum til kirkjuþings.
Á kirkjuþingi eiga sæti 29 þjóðkirkjumenn kjörnir til fjögurra ára í senn. Eru 12 þeirra úr hópi vígðra manna,
þ.e. presta og djákna og 17 leikmenn.
Kjörgengur til kirkjuþings er:
a. hver vígður maður sem á kosningarrétt skv. 3. gr. starfsreglna nr. 1075/2017
b. hver leikmaður sem hefur hlotið skírn í nafni heilagrar þrenningar, skráður er í íslensku þjóðkirkjuna, og
hefur náð 18 ára aldri.
Kjörgengisskilyrði skulu vera uppfyllt 1. apríl 2018.
Þeir sem hyggjast bjóða sig fram til kirkjuþings skulu hafa tilkynnt kjörstjórn framboð sitt skriflega eigi síðar
en 15. mars 2018. Tilkynningu um framboð skal senda til biskupsstofu, Laugavegi 31, 150 Reykjavík, eða í
tölvupósti á netfangið kirkjan@kirkjan.is
Kjörstjórn getur óskað eftir að sá sem hyggst bjóða sig fram, framvísi staðfestingu er sýni kjörgengi hans.
Ef ekki berast nægilega mörg framboð, sbr. 11. gr. starfsreglan um kjör til kirkjuþings nr. 1075/2017, skal
kjörstjórn svo fljótt sem auðið er gera uppstillingarnefnd kirkjunnar viðvart. Skal uppstillingarnefnd tilnefna
þá frambjóðendur sem á vantar. Skal sú tilnefning hafa borist kjörstjórn eigi síðar en 31. mars nk., ásamt
samþykki hlutaðeigandi.
Kosningarnar verða rafrænar og standa frá kl. 12:00 hinn 2. maí 2018 til kl. 12:00 hinn 7. maí s.á. Verða kos-
ningarnar auglýstar sérstaklega síðar.
Fyrir hönd kjörstjórnar,
Hjördís Stefánsdóttir, formaður.
Félagslíf
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund sunnudag kl. 14.