Morgunblaðið - 24.02.2018, Síða 50
50 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2018
Kolbrún Jóna Pétursdóttir, lögfræðingur og bæjarfulltrúi íReykjanesbæ, á 50 ára afmæli í dag. Hún fæddist og ólstupp í Keflavík og er keflvískrar ættar í móðurættina en
faðir hennar er frá Hellissandi.
„Það síðasta sem er að frétta af bæjarmálunum er að við fögn-
uðum samningum við lánardrottna á síðasta bæjarstjórnarfundi.
Við hefðum viljað fá meiri
afskriftir en ég held að
flestir séu nokkuð sáttir við
útkomuna, en þessi vinna
hefur tekið alltof mikla
orku. Helstu gæluverkefnin
sem mann hefur langað til
að komast í hafa þurft að
sitja á hakanum. Það er til
dæmis söguleg fjölgun íbúa
hjá okkur, miklu meiri en
annars staðar á lands-
byggðinni. Sveiflurnar á
Suðurnesjum virðast alltaf
vera ýktari, bæði upp og
niður.“
Kolbrún útskrifaðist sem
lögfræðingur árið 2016 og
er sérfræðingur í rafrænni
þjónustu hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu. „Ég
keyri því hina alræmdu
Reykjanesbraut á hverjum
degi en er að vinna við
mjög skemmtilegt umbótaverkefni. Við erum að innleiða rafræna
þjónustu, m.a. rafræn eyðublöð og erum náttúrlega að reyna að
koma sem flestu inn í rafrænan farveg. Möguleikarnir eru ansi
margir og það eina sem þarf er hugmyndaflugið til að finna út úr
því.“
Þegar vinnunni og bæjarmálunum sleppir þá hefur Kolbrún gam-
an af göngum. „Ég er í gönguhóp sem heitir Drykkjumannafélagið
Hallgrímur og við höfum gengið mikið, m.a. uppi í landi að Fjalla-
baki. Svo eigum við fjölskyldan sumarbústað í Holtunum sem við
notum mikið.“
Eiginmaður Kolbrúnar er Torfi Þór Torfason, trillusjómaður hjá
útgerðarfélaginu Nesfiski í Garði. „Við erum búin að vera saman í
35 ár sem er ákveðið afrek.“ Börn þeirra eru Andri Pétur 27 ára,
Stefanía 22 ára og Tinna sem verður 15 ára á næstunni. Barna-
barnið er Hrafn Orri Andrason sem er þriggja ára.
Kolbrún verður með opið hús heima hjá sér í allan dag í tilefni
afmælisins.
Hjónin Torfi og Kolbrún í göngu frá
Hólaskjóli í Álftavötn.
Ýktari sveiflur á
Suðurnesjunum
Kolbrún Jóna Pétursdóttir er fimmtug í dag
G
arðar Sævar Einarsson
fæddist á Hlíðarenda á
Ísafirði 24.2. 1938.
Hann ólst þar upp í
stóru fjölskyldubúi og
hefur átt heima á Ísafirði alla tíð.
Garðar gekk í Barnaskóla Ísa-
fjarðar og stundaði síðan nám við
Gagnfræðaskólann á Ísafirði.
Að loknu gagnfræðaskólanámi
vann Garðar ýmis verkamannastörf
á Ísafirði í rúmt ár, m.a. í bygging-
arvinnu við Mjólkárvirkjun. Hann
stundaði síðan verslunarstörf á Ísa-
firði, s.s. í Bókaverslun Matthíasar
Bjarnasonar og síðar í Bókhlöðunni
en svo kölluðu Ísfirðingar Bóka-
verslun Jónasar Tómassonar.
Garðar hóf störf hjá útibúi
Landsbanka Íslands á Ísafirði
1975. Þar var hann lengst af gjald-
keri og yfirgjaldkeri. Hann fór á
Garðar S. Einarsson, fyrrv. bankamaður á Ísafirði – 80 ára
Í heyskapnum Garðar á traktornum með Tryggva bróður til vinstri og systurdóttursoninn, Jón Kristinn, til hægri.
Félagslyndur og vina-
margur Ísfirðingur
Fjölskyldan Garðar með foreldrum og systkinum fyrir u.þ.b. 50 árum.
Reykjavík Jakob Ernir Svav-
arsson fæddist 27. apríl 2017 kl.
14.20. Hann vó 1586 g og var 41
cm langur. Foreldrar hans eru
Hjördís Anna Benediktsdóttir
og Svavar Sigurður
Guðfinnsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is