Morgunblaðið - 24.02.2018, Side 53
DÆGRADVÖL 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú freistast til að leggja of mikla
áherslu á málstaði sem þú trúir á. Þú þarft að
venja þig af því að ætla að keyra skoðanir þínar
ofan í annað fólk.
20. apríl - 20. maí
Naut Vertu óhrædd/ur við að hrinda hug-
myndum þínum um umbætur á heimilinu eða
innan fjölskyldunnar í framkvæmd. Árangurinn
mun koma á óvart.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Nú er rétti tíminn til þess að láta
reyna á þær hugmyndir, sem þú hefur gengið
með í maganum að undanförnu. Góður und-
irbúningur tryggir góðan árangur og velgengni.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Reyndu að ná þeim áhrifum að þú get-
ir opnað þér nýjar leiðir í leik og starfi. Nú má
ekki slaka á, heldur halda ótrauður áfram uns
sigurinn vinnst.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú hefur lengi ætlað að koma málum þín-
um á framfæri en hefur ekki haft tækifæri til
þess. Reyndu að kynna þér málin sjálfur og
kveða upp dóm á þínum eigin forsendum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Einmitt þegar þú ert að verða ánægður
með stöðu þína í sambandinu, breytist allt.
Láttu þessar aðstæður ekki leiða þig út í hluti
sem þér eru á móti skapi.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það reynir á þig í samstarfi við vinnufélag-
ana. Haltu áfram að einblína á það jákvæða og
gættu þess að lenda ekki í skotlínunni heldur
haltu þig að þínu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er í lagi að láta sig dreyma
svo framarlega sem þið velkist ekki í vafa um
hvað er draumur og hvað raunveruleiki. Sinntu
þínu og varastu að dragast inn í deilur manna.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Leggðu spilin á borðið og láttu fólk
vita hvað þú vilt og til hvers þú ætlast. En að
berja höfðinu við steininn er það versta sem
þú getur gert.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Hugsaðu um heilsuna því hún er
lykillinn að lífshamingju. Farðu þér hægt í um-
gengni við hitt kynið en gefðu þér tíma til að
njóta samvista við aðra.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Fólki þykir mikið til vinnusemi þinn-
ar koma. Mundu bara að allt vald er vand-
meðfarið og í reynd eðlilegast að þurfa ekki að
beita því.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þótt þú vonist eftir sambandi sem veitir
þér fullnægju, er betra að leita fyrst fullnægj-
unnar og síðan sambandsins. Haltu þig við
þinn stíl.
Víkverji hefur afskaplega gamanaf plöntum; það er mjög
skemmtilegt að hafa grænar og
vænar pottaplöntur í stofunni. Þess
vegna verður hann alltaf jafn hissa á
því þegar hann sér plastblóm á
vinnustöðum eða opinberum bygg-
ingum. Þetta eru oft stór og vegleg
blóm sem líkja oftar en ekki frekar
nákvæmlega eftir ákveðnum
plöntum. Til dæmis sá Víkverji um
daginn stóra „rifblöðku“ á bóka-
safni. Þetta eru plöntur sem er
þægilegt að hugsa um svo mikið
væri það gaman að hafa heldur ekta
plöntu á safninu.
x x x
Það hefur marga kosti að hafa lif-andi plöntur á vinnustöðum en
samkvæmt rannsókn University of
Technology í Sydney í Ástralíu frá
árinu 2010 minnkaði stress og
þreyta um nærri því helming eftir að
plöntum var bætt í vinnuumhverfið.
Ennfremur hefur grænn litur róandi
áhrif svo vinnustaðir ættu e.t.v. að
hafa það í huga. Vísindamenn við
University of Exeter komust að því í
rannsókn árið 2015 að framleiðni
jókst um 15% þegar plöntum var
bætt við áður sterílt vinnurými. Þá
skipti mestu að hver og einn gæti
séð að minnsta kosti eina plöntu frá
skrifborðinu sínu.
x x x
Víkverji er einn af þeim heppnu,hann þarf ekki að óttast skort á
grænu umhverfi þar sem hann horf-
ir frá skrifborði sínu beint út á
Rauðavatn og skóginn þar í kring.
Einstaklega fallegt umhverfi sem er
síbreytilegt eftir veðri. Sólarupprás-
irnar voru til að mynda ævin-
týralegar fyrr í vetur. Þetta gerir
það að verkum að maður er líka í
beinu sambandi við veðrið; núna byl-
ur regnið á glugganum þannig að
Víkverji hefur sjaldan séð annað
eins og há trén vagga til og frá.
x x x
Þeir sem sitja þar sem útsýni erekkert ættu að hafa það í huga
að setja upp stóra landslagsmynd.
Samkvæmt nýjustu rannsóknum
getur slík mynd haft jákvæð áhrif á
andlega heilsu. vikverji@mbl.is
Víkverji
En það er hið eilífa líf að þekkja þig,
hinn eina sanna Guð, og þann sem þú
sendir, Jesú Krist.
(Jóh: 17.3)
LISTHÚSINU
Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050
Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl. 11-15
Húfur, sjöl, hálsklútar og teppi í hæsta
gæðaflokki úr cashmere, silki og Apalca
ull frá finnska fyrirtækinu BALMUIR.
Núttúruleg efni og fallegir litir.
Einnig ný sending af ilmkertum og
hágæða handsápum frá BALMUIR.
Ný sending
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Dauði manns og dýrs er það.
Dramb er jafnan þessu næst.
Hreyfing sjávar sitt og hvað.
Svo við messu getur bæst.
Harpa á Hjarðarfelli á þessa
lausn:
Drótt og dýrin falla.
Drambi næst er fall.
Sístraum sjávarfalla.
Svo er messufall.
Helgi R. Einarsson svarar:
Konu ég þekki og kall,
kannast við svik og brall,
speki og heimskulegt spjall,
en spurt er hérna um fall.
Þessi er lausn Knúts H.
Ólafssonar:
Dapurleg eru dauðsföllin.
„Dramb er falli næst“ minn kall.
Seiða hugann sjávarföllin,
á sunnudaginn varð messufall.
Guðrún Bjarnadóttir leysir
gátuna þannig:
Í valinn falla dýr og drótt
og dramb er gjarnan falli næst.
Sjávarföll þangið móta mjótt.
Sé messufall er kirkjan læst?
Ráðning Sigrúnar á Sjónarhóli:
Falla að lokum fólk og dýr.
Fellir dramb menn af stalli.
Við aðfall syngur sjávargnýr.
Spáð er hér messufalli.
Helgi Seljan svarar:
Oft er fallið tjáð sem dauði dýra.
Drambið kallar jafnan fallið á.
Sjávarföllin ýmsum straumum stýra
stöðugt prestar messufallið þrá.
Þannig skýrir Guðmundur
gátuna:
Dauðsfall hendir dýr og menn.
Drambið falli næst er enn.
Sjávarföllin merkja má.
Messufall varð presti hjá.
Þá er limra:
Hann Glímu-Gestur lagði
Guttorm á leggjarbragði
og varðist falli
fyrir Halli,
en féll loks á eigin bragði.
Og að lokum ný gáta eftir
Guðmund:
Til mín horfir stjarna stök
stillt og rótt, í eigin sök
blindur nú ég berst í vök,
birtast mun því gáta slök:
Fögrum rómi syngur sá..
Sveinar allir bera.
Ef depla auga, drep ég þá.
Drengstauli mun vera.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Þeim er falls von sem flasar
Í klípu
„FYRST ÞARFTU AÐ UNDIRRITA ÞETTA
HANDSAL.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG HÉLT ÉG HEFÐI SAGT ÞÉR AÐ TAKA
JAKKANN AF ÞÉR.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar starfslokin
hjálpa ykkur að finna
hvort annað að nýju.
ÉG ÆTLA AÐ SETJA
GRETTI Í ÞESSA
SKYRTU .
EKKI
SATT!
LATUR
ÉG ER EKKI
HVAÐ SVO SEM
ÞAÐ ÞÝÐIR.
LATUR
KLUKKAN ER 4 AÐ NÓTTU!
ÞAÐ ER OF SNEMMT TIL
AÐ BORÐA!
ÉG VEIT, EN ÉG VIL EKKI
DREKKA Á FASTANDI
MAGA!
HELGA! GEMMÉR
MORGUNMAT!