Morgunblaðið - 24.02.2018, Side 54
54 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2018
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
Laugardaginn 24. febrúar kl. 14: Sýningaropnun í Bogasal
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
David Barreiro – Langa blokkin í Efra Breiðholti í Myndasal
Karl Jeppesen – Fornar verstöðvar á Vegg
Prýðileg reiðtygi í Bogasal
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Sunnudaginn 25. febrúar kl. 14: Leiðsögn með sérfræðingi Árnastofnunar
Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
grunnsýning Safnahússins
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Krossfestingarmynd á skinnblaði frá 14. öld
Spegill samfélagsins 1770 - Almúgi og embættismenn skrifa Danakonungi
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Julia&Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi.
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17.
Sunnudagsleiðsögn í umsjá Péturs Thomsen um sýninguna
Elina Brotherus - Leikreglur, 25. febrúar kl. 14
ELINA BROTHERUS - LEIKREGLUR 16.2. - 24.6.2018
KORRIRÓ OG DILLIDÓ 2.2. - 29.4.2018 - Þjóðsagnamyndir Ásgríms Jónssonar
FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR 7.4.2017 - 31.12.2019 - Valin verk úr safneign
ORKA 14.9. - 29.4.2018
Sýning á vídeóinnsetningunni Orka eftir Steinu í Vasulka-stofu
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Listasafn Íslands er opið alla daga kl. 11-17 nema mánudaga.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
TVEIR SAMHERJAR - ASGER JORN OG SIGURJÓN ÓLAFSSON
21.10.2017 - 13.5.2018
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Kaffistofa – heimabakað meðlæti
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
ÓGNVEKJANDI NÁTTÚRA 2.10.2016 - 1.3.2018
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ægir Sindri Bjarnason, trymbill
nokkurra sveita (t.d. Logn, World
Narcosis og Dead Herring) fer fyr-
ir merkinu og það er ágætt að
miðja þessa grein með því en út-
gáfur þess endurspegla eðlilega að
einhverju leyti þá grósku sem í
gangi er hvað hrátt og öflugt neð-
anjarðarrokk varðar. Sú sena býr
yfir nokkrum sprotum; Myrkfælni
er einn, Þórir Georg og hans fólk
reka nokkur verkefni og svo er það
virknin í kringum Börn, Dauðyfli
og tengdar sveitir. Og ég er alveg
ábyggilega að gleyma einhverju og
það vonandi (ábendingar um frek-
ari virkni sendist endilega á net-
fang).
Einbeitum okkur nú að Why
Not? og starfseminni þar sem hefur
verið með miklum ágætum und-
anfarin misseri. Fyrsta útgáfan var
fyrir margt löngu reyndar, sjö-
tomma með World Narcosis sem
kom út 2010. Tvöfalda platan
World Coda kom svo út 2015 og eft-
ir það hafa hjólin snúist nokkuð ört.
Sama sveit gaf þannig út plötu
2017, sama ár kom út sjötomma
með henni einnig og síðasta októ-
ber kom út plata sveitarinnar Grit
Teeth. Segja má að merkið hafi
sprungið út á síðasta ári en einnig
kom út plata með hinni mergjuðu
sveit Dead Herring og dómsdags-
rokkurunum í Godchilla. Einnig
hafa komið út stafrænar safn-
plötur.
Senur þrífast á fólki sem legg-
ur sjálft sig og tónlistina sína til en
einnig á rýmum sem hýsa reglulega
tónleika. Þegar þú ert kominn með
a) stað og b) reglubundna dagskrá
er hægt að næra senuna. Fólk hitt-
ist reglulega og hlustar ekki bara á
tónlist heldur spjallar saman, skipt-
ist á hugmyndum, treystir vin-
áttubönd og stofnar hljómsveitir.
Tónleikastaðurinn R6013, Ingólfs-
stræti 20, hefur reynst mikilvægt
skjól fyrir senuna. Ægir Sindri lýsti
hugmyndafræðinni svona í Fésbók-
arpósti: „Mér finnst mikilvægt að
það sé regluleg og fjölbreytt dag-
skrá í boði yfir allt árið, í rými sem
býður alla velkomna; er ekki ætlað
einum aldursflokki meira en öðrum
eða bundið skólum eða klúbbum ...
Ætlunin með R6013 er að bjóða upp
á svoleiðis rými, sem auk þess reyn-
ir ekki að selja þér neitt með gróða
að leiðarljósi (þótt vissulega séu
hljómplötur og annar hljóm-
sveitavarningur í boði) ... Plássið er
Grasrótin er í
góðum málum
Plötuútgáfan Why Not? er einn helsti merkisberi ærlegrar neð-
anjarðarrokktónlistar á Íslandi í dag. Plata Dead Herring var til
að mynda ein af allra bestu rokkskífum síðasta árs.
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Þegar gengið er inn á sýninguna
Þvílíkir tímar sem Kristinn H.
Hrafnsson myndhöggvari opnar í
Hverfisgalleríi á Hverfisgötu 4 í dag,
laugardag, kl. 16, þá tekur á móti
gestunum á vegg orðið „Endalaust“,
skrifað með skjálfandi rithendi gam-
als, hálfblinds manns sem Kritsinn
fékk til verksins. Og þegar litið er
inn í salinn eru fleiri setningar með
sömu hendinni á veggjum og fjalla
allar um tímann og mörk hans: „Eft-
ir upphafið og fyrir endinn“, „Frá
upphafi til enda“, „Fyrir upphafið og
eftir endinn“…
„Ef þetta allt, heimurinn, hefur
alltaf verið til, þá er tíminn alveg
svakalegur. Menn eiga iðulega erfitt
með að ná utan um það hvað tíminn
er áhugavert fyrirbæri,“ segir Krist-
inn sem hefur hér gert þetta erfiða
en heillandi viðfangsefni, tímann, að
miðju vel mótaðrar sýningarinnar.
Í gólfi salarins er einskonar öfug-
ur pendúll sem hnitar óútreikn-
anlega hringi ef hreyft er við honum
og í miðjum sal er setbekkur í anda
módernískrar hönnunar með inn-
felldri áletrun, „Þvílíkir tímar“.
„Á þetta við tímann sem við erum
staddir í eða tíma sem við erum að
hugsa um?“ spyr Kristinn. „Það býð-
ur upp á skapandi augnablik að setj-
ast hér niður og hugsa um það.“
Stór hnullungur hefur verið klof-
inn í fjóra hluta og er einn fjórð-
ungur í hverju horni salarins. „Við
erum inni í steininum eða utan við
hann, eftir því hvernig þú lítur á
það,“ segir Kristinn. „Þetta verk
heitir „Fjórir hornsteinar“ og er til-
einkað Þorsteini frá Hamri. Hér
frammi er einnig verk tileinkað Sig-
urði Pálssyni, „Aftur og enn og aft-
ur“, en bæði skáldin voru ágætir vin-
ir mínir og voru í svipuðum
pælingum og ég hér í þessum verk-
um. Fyrir mér er Sigurður skáld
hafsins og sjóndeildarhringsins en
Þorsteinn hinsvegar skáld jarðar-
innar, sögunnar og menningarinnar.
Það er sorglegt að vera að tileinka
þeim verk hér en eðlilegt.“
Um massífan stálöxul sem stend-
ur ennfremur á gólfinu segir Krist-
inn að það sé fasti punkturinn þar
sem maður getur velt fyrir sér
hvernig heimurinn snýst. „Sá staður
er alltaf miðja og öll okkar heimssýn
byggist á henni – nema við séum trú-
uð, þá er búið að taka það frá okkur.
Öll okkar afstaða mótast af eigin lífs-
reynslu; veraldarmiðjan er í okkur
sjálfum.“
Kristinn hefur gert nokkur ný
grafíkverk, þar sem hann hefur snú-
ið við myndum af geimnum úr
Hubble-sjónaukanum; mykrið er
orðið hvítt en stjörnurnar svartar.
Svo leggst handskriftin yfir: „Ekk-
ert upphaf“ eða „Enginn endir“.
„Vísindamenn og listamenn geta
mæst á áhugaverðan hátt í kosmó-
lógíunni,“ segir Kristinn. „Það þarf
bara sköpunarkraft og hugmynda-
auðgi til að vinna úr öllum upplýs-
ingunum – og reyna að komast nær
spurningunum um upphafið.
Við listamenn þurfum að snúa
hlutunum á hvolf og þá fær maður
oft aðra og nýja sýn á hlutina.“
Morgunblaðið/Einar Falur
Tímapælingar „Við listamenn þurfum að snúa hlutunum á hvolf,“ segir Kristinn. Hann er hér hjá nokkrum verkum.
„Veraldarmiðjan er
í okkur sjálfum“
Kristinn E. Hrafnsson opnar sýningu í Hverfisgalleríi
Strengjasveitin Spiccato heldur
tónleika í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar í dag, laugardag, kl.
17.15. Þessi 12 manna sveit mun
flytja tónverk eftir Georg Philipp
Telemann (1681-1767), Pietro Ant-
onio Locatelli (1695-1764), Giu-
seppe Torelli (1658-1709) og Unico
Wilhelm van Wassenaer greifa
(1692-1766).
Strengjasveitin Spiccato var
stofnuð árið 2012 af hópi strengja-
leikara sem vettvangur til að flytja
tónverk fyrir strengi, ekki síst frá
barokk-tímanum, þar sem jafnræði
ríkir milli hljóðfæraleikarana og
enginn einn stjórnar. Á æfingu
skiptast menn á skoðunum um túlk-
un tónverkanna og allir fá tækifæri
til að koma fram sem einleikarar.
Á þeim rúmum fimm árum sem
Spiccato hefur starfað hefur sveitin
haldið ellefu tónleika, flesta í
Reykjavík. Sveitina skipa þau Mart-
in Frewer, Hlíf Sigurjónsdóttir,
Sigurlaug Eðvaldsdóttir, Ágústa
Jónsdóttir, Kristján Matthíasson,
María Weiss, Sigrún Harðardóttir
og Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir á
fiðlur, lágfiðluleikararnir Sarah
Buckley og Eyjólfur Bjarni Al-
freðsson, Þórdís Gerður Jónsdóttir
leikur á selló og Páll Hannesson á
bassa.
Barokktónlist Strengjasveitin Spiccato, sem hér sést leika í Dómkirkjunni,
heldur tónleika í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í dag, laugardag.
Strengjasveitin Spiccato
í Listasafni Sigurjóns