Jökull - 01.01.2013, Blaðsíða 130
hitakerfinu við Hverahlíð, Ragna Karlsdóttir, Íslensk-
um Orkurannsóknum, fjallaði um Sleggju og Meitil,
Sigurður G. Kristinsson, Íslenskum Orkurannsóknum,
fjallaði um jarðfræði í innanverðum Hvalfirði, Árný
E. Sveinbjörnsdóttir, Jarðvísindastofnun Háskólans,
fjallaði um uppruna og aldur jarðhitavatns og Guð-
mundur Ómar Friðleifsson, Nordic HS Orka HF, fjall-
aði um jarðhitaglefsur úr Torfajökli og öðrum merkum
eldstöðvum.
Í lok ráðstefnunnar var móttaka til heiðurs
Kristjáni Sæmundssyni 75 ára. Um 90 manns sóttu
ráðstefnuna sem tókst í alla staði mjög vel, Kristjáni
og öðrum sem hana sóttu til mikillar ánægju.
Af öðrum viðburðum ársins ber hæst að nefna
að Jarðfræðafélagið undirbjó af miklum krafti 30.
Vetrarmót Norrænna jarðfræðinga sem fer fram í jan-
úar 2012. Undirbúningsnefnd var sett saman og starf-
aði hún af miklum dugnaði. Í nefndinni voru: Þor-
steinn Sæmundsson, Náttúrustofu Norðurlands vestra
formaður, Ívar Örn Benediktsson, Háskóla Íslands
varaformaður, Anette K. Mortensen, ÍSOR, Ármann
Höskuldsson, Háskóla Íslands, Björn Harðarson,
ÍSOR, Börge Johannes Wigum, Mannvit / NTNU,
Daði Þorbjörnsson, ÍSOR, Guðrún Larsen, Háskóla
Íslands, Kristján Jónasson, Náttúrufræðistofnun Ís-
lands, Ólafur Ingólfsson, Háskóla Íslands, Sigrún
Hreinsdóttir, Háskóla Íslands, Steinunn Sigríður Jak-
obsdóttir, Veðurstofu Íslands og Þorsteinn Þorsteins-
son, Veðurstofu Íslands. Öllum þessum aðilum eru
færðar þakkir fyrir vel unnin störf.
Þann 29. ágúst árið 2011 voru 80 ár liðin frá fæð-
ingu Þorleifs Einarssonar jarðfræðings. Þorleifur var
flestum jarðfræðingum vel kunnur og mikils met-
inn. Hann var án efa einn af frumkvöðlum íslenskrar
jarðfræði, var ötull við að benda á mikilvægi jarð-
fræðimenntunar og skapa störf fyrir jarðfræðinga, og
var auk þess brautryðjandi í náttúruvernd. Í tilefni af
80 ára fæðingarafmæli Þorleifs vildi Jarðfræðafélag
Íslands heiðra minningu hans. Minningu Þorleifs var
haldið á lofti á Vorráðstefnu félagsins, en auk þess
var leitað til félagsmanna um að skrifa greinar tengd-
ar Þorleifi og fræðasviðum hans sem munu birtast í
Náttúrufræðingnum árið 2012.
Nefndir
Eftirfarandi nefndir störfuðu á vegum félagsins á ár-
inu 2011.
Ritnefnd Jökuls – fulltrúar félagsins í ritnefnd Jökuls:
Gréta Björk Kristjánsdóttir og Leó Kristjánsson. Í rit-
nefnd eru: Karl Grönvold og Kristján Sæmundsson.
Sigurðarsjóður – Þorsteinn Sæmundsson (formaður),
Freysteinn Sigmundsson og Kristín S. Vogfjörð.
Sigurðarmedalía – Olgeir Sigmarsson (formaður),
Ármann Höskuldsson og Þorsteinn Sæmundsson.
Orðanefnd – Haukur Jóhannesson (formaður), Stein-
þór Níelsson og Ívar Örn Benediktsson.
Siðanefnd – Ívar Örn Benediktsson (formaður), Daði
Þorbjörnsson og Kristín S. Vogfjörð.
IUGS (nefnd skipuð af umhverfisráðherra) – Þorsteinn
Sæmundsson situr í stjórn fyrir hönd JFÍ.
Þorsteinn Sæmundsson
130 JÖKULL No. 63, 2013