Jökull - 01.01.2013, Blaðsíða 133
Society report
Jöklarannsóknafélag Íslands
Skýrsla formanns Jöklarannsóknafélags Íslands á aðalfundi 21. febrúar 2012
SKIPAN STJÓRNAR OG NEFNDA
Ekki var lognmollunni fyrir að fara á þessu 62. starfs-
ári Jöklarannsóknafélagsins. Stórt eldgos varð í
Grímsvötnum og jökulhlaup komu bæði í Múlakvísl
og Köldukvísl, það síðara úr ketilsigum sem ekki er
vitað um að áður hafi hlaupið. Jöklarnir voru ataðir
gjósku úr Grímsvatnagosinu allt sumarið og aðstæð-
ur til ferðalaga erfiðar. Starfsemi félagsins var þó að
mestu í föstum skorðum. Aðalfundur fór fram í Öskju
22. febrúar. Tómas Jóhannesson var fundarstjóri og
Finnur Pálsson fundarritari. Á fyrsta stjórnarfundi
eftir aðalfund skipti stjórnin með sér verkum og dreg-
ið var um röð varamanna. Stjórnin var þannig skipuð:
Stjórn JÖRFÍ 2011:
Magnús Tumi Guðmundsson, formaður,
Magnús Hallgrímsson, varaformaður,
Valgerður Jóhannsdóttir, gjaldkeri,
Þorsteinn Þorsteinsson, ritari,
Árni Páll Árnason, meðstjórnandi.
Varastjórn:
Aðalsteinn Svavarsson, Hálfdán Ágústsson, Þóra
Karlsdóttir og Vilhjálmur S. Kjartansson.
Nefndir JÖRFÍ:
Rannsóknanefnd: Magnús Tumi Guðmundsson for-
maður, Björn Oddsson, Bryndís Brandsdóttir, Finn-
ur Pálsson, Hannes Haraldsson, Hálfdán Ágústs-
son, Hrafnhildur Hannesdóttir, Magnús Hallgrímsson,
Oddur Sigurðsson, Steinunn S. Jakobsdóttir, Tómas
Jóhannesson og Þorsteinn Þorsteinsson.
Bílanefnd: Árni Páll Árnason formaður, Eiríkur Lár-
usson, Garðar Briem, Sigurður Vignisson og Hall-
grímur Þorvaldsson.
Skálanefnd: Guðbjörn Þórðarson formaður, Aðal-
steinn Svavarsson, Alexander Ingimarsson, Ástvaldur
Guðmundsson, Grétar Þorvaldsson, Leifur Þorvalds-
son, Ragnar Jörgensen, Snæbjörn Pálsson, Stefán
Bjarnason, Sverrir Hilmarsson, Vilhjálmur S. Kjart-
ansson og Þorsteinn Kristvinsson.
Ferðanefnd: Sjöfn Sigsteinsdóttir formaður, Árni
Páll Árnason, Eiríkur Lárusson, Hannes Haraldsson,
Magnús Tumi Guðmundsson, Þorsteinn Jónsson og
Hlynur Skagfjörð.
Fulltrúi í SAMÚT: Björn Oddsson, Árni Páll Árnason
til vara.
GJÖRFÍ-nefnd: Þóra Karlsdóttir formaður, Ástvald-
ur Guðmundsson og Jósef Hólmjárn.
Ritstjórar Jökuls: Bryndís Brandsdóttir, Gréta Björk
Kristjánsdóttir og Snævarr Guðmundsson.
Ritnefnd Jökuls: Christopher J. Caseldine, Fiona
Tweed, Gifford Miller, Haraldur Sigurðsson, Helgi
Björnsson, Karen Luise Knudsen, Karl Grönvold,
Kristján Sæmundsson, Robert S. Detrick, Tómas Jó-
hannesson og William H. Menke.
Skemmtinefnd: Eiríkur Lárusson, Hlín Finnsdóttir,
Sjöfn Sigsteinsdóttir, Snævarr Guðmundsson, Svein-
björn Steinþórsson.
Valnefnd: Jón E. Ísdal, Oddur Sigurðsson og Stefán
Bjarnason.
Félagatalið er nú í umsjón Jóhönnu Katrínar Þórhalls-
dóttur, Valgerðar gjaldkera og Alexanders Ingimars-
sonar en hann hefur einnig umsjón með geymslu fé-
lagsins í kjallara húss FÍ í Mörkinni 6. Björn Oddsson
sá um erlenda áskrift.
JÖKULL No. 63, 2013 133