Jökull - 01.01.2013, Blaðsíða 139
Jöklarannsóknafélag Íslands
sóknafélagið og Jarðfræðafélagið tóku sig saman um
að gera 62. hefti Jökuls að safni greina um þau fræða-
svið sem Sigurður starfaði á. Einnig beitti JÖRFÍ sér
fyrir því að í heftinu yrðu nokkrar greinar á íslensku
um Sigurð og arfleifð hans. Ekki tókst að prenta heft-
ið fyrir árslok en því var dreift til skilvísra félags-
manna um síðustu mánaðamót. Ritstjórar sérheftisins
voru Helgi Björnsson, Guðrún Larsen, Ívar Örn Bene-
diktsson og Olgeir Sigmarsson. Styrkir fengust frá
nokkrum aðilum til að borga umframkostnað við þetta
þetta mikla hefti og er vert að þakka þann stuðning.
Einnig verður að minnast á þann stóra þátt sem aðal-
ritstjórinn, Bryndís Brandsdóttir á í Jökli. Hún legg-
ur ómælda vinnu í að ritstýra greinum auk umbrots
og að fylgja ritinu gegnum prentsmiðjuna. Mennta-
og Menningarmálaráðuneyti og Umhverfisráðuneyti
styrktu útgáfu Jökuls eins og áður.
FRÉTTABRÉF OG VEFSÍÐA
Þrjú fréttabréf komu út á árinu í febrúar, maí og októ-
ber en ritstjóri þess er Hálfdán Ágústsson. Vefsíð-
an var í höndum Hálfdáns Ágústssonar og Jóhönnu
Katrínar Þórhallsdóttur.
SKEMMTIFERÐIR
Í þetta sinn tókst að fara mjög góða sumarferð að
Langasjó helgina 6.–8. júlí. Jósef Hólmjárn var leið-
sögumaður og leiddi hópinn um fáfarnar ævintýra-
slóðir við Langasjó og Tungnáa ofanverða. Gist var
í tjöldum við skálann hjá Sveinstindi. Þátttakendur
voru 16.
GJÖRFÍ
Starf gönguhópsins GJÖRFÍ hefur verið með mikl-
um blóma. Farnar hafa verið stuttar göngur á öllum
árstímum í nágrenni Reykjavíkur, oftast á þriðjudags-
kvöldum. Þátttaka hefur verið góð þegar vel hefur
viðrað en færri mæta þegar veður er rysjótt eins og við
er að búast. Furðu fáar ferðir hafa fallið niður. Þóra
Karlsdóttir, Jósef Hólmjárn og Ástvaldur Guðmunds-
son hafa haft forystu fyrir GJÖRFÍ.
SKÁLAMÁL
Nokkuð var unnið að endurbótum í Jökulheimum.
Klárað var að klæða stærri skálann að utan, skipta
um einangrun og alla glugga og gler. Einnig var allt
málað og lakkað þar sem það átti við. Húsið er nú
allt miklu þéttara og hlýrra en áður. Á Grímfjalli var
í vorferð skipt um rör milli borholu við nýja skála
og vélageymslu og útfellingar hreinsaðar í lögn upp
í gufubað. Er það nú mun kröftugra en áður. Einnig
var rafstöðin á fjallinu tekin niður til byggða og hún
gerð upp. Vélin fór aftur uppeftir síðastliðið haust.
Fjarskipti hafa áfram verið erfið en nú hillir undir
lausn á því máli. Neyðarlínan vinnur að því að koma
upp tetra-sendi á fjallinu og á skálanefnd og stjórn í
samningum við hana um hvernig afl- og eldsneytismál
verða leyst, hvernig þessum búnaði verði best fyrir
komið og hvernig framkvæmdir verða fjármagnaðar.
Félagið vill eftir megni stuðla að því að auka öryggi
ferðamanna á Vatnajökli og efling fjarskipta er liður í
því. Á sama tíma er það ekki félagsins að leggja fé í
slíkar endurbætur enda snúa þær ekki beint að starf-
semi félagsins.
BÍLAMÁL
Bíll félagsins var nýttur í vorferð, ferðir á Mýrdals-
jökul og vinnuferðir í Jökulheima. Bíllinn reyndist
vel í alla staði og lenti ekki í bilunum það heitið getur.
Gerðar voru nokkar endurbætur á bílnum, t.d. var bætt
við olíutanki. Aðstaða fékkst til vinnunnar á verk-
stæði Gunnars Egilssonar á Selfossi. Nokkur kostn-
aður var af þessum endurbótum en verulegt hagræði
er af þeim í jöklaferðum.
ÁRSHÁTÍÐ
Árshátíð var haldin laugardagskvöldið 10. nóvember.
Fordrykkur var í boði Landsvirkjunar við Háaleitis-
braut en síðan var að venju farið út í óvissuna í rútu
frá Guðmundi Jónassyni. Í þetta sinn lauk óvissuferð-
inni í Esjustofu við Mógilsá þar sem matur, drykkur,
söngur og dans áttu kvöldið sem fór fram með mikl-
um ágætum. Þátttakendur voru tæplega 50 en þannig
er Esjustofa fullskipuð. Var það mál manna að ný
skemmtinefnd hefði staðið sig vel.
SAMÚT
Björn Oddsson hefur sótt fundi SAMÚT fyrir hönd
JÖRFÍ. Ástvaldur Guðmundsson situr í svæðis-
ráð Vestursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs sem fulltrúi
SAMÚT.
Magnús Tumi Guðmundsson
JÖKULL No. 63, 2013 139