Breiðfirðingur - 01.04.1946, Síða 59
BREIÐFIRÐINGUR
49
stað 3 klst. ferð í burtu, til að fylgja látnum návini sín-
um til grafar.
IV. Á skömmu tíma liafa tveir héraðslæknar flutt úr
héraðinu. Nægilegar ástæður fyrir brottför þeirra gætu
verið þær, að hvorugum þeirra tókst að fá viðunandi
húshjálp.
begar aðstæður manna, sem byggja sveitirnar, eru
orðnar þessu áþekkar, er fyllilega kominn tími til að
gera sér það ljóst, að líkur benda allar í þá átt, að flótt-
inn úr sveitunum eigi enn eftir að aukast hröðum skref-
um, svo fremi sem eigi verður hafin markvís barátta
allra Dalamanna, innan héraðs sem utan, til að sporna
við flóttanum.
Lögmál byggðarsögu er líkt steinbyggingu: Falli einn
steinninn í burtu, er byggingunni allri hættara við falli.
Það er oss öllum hollt, sem enn byggjum hinar gróð-
ursælu og söguríku byggðir þessa héraðs, að horfast
í augu við staðreyndirnar, hversu andstæðar sem þær
hynnu að vera óskum vorum og framtíðardraumum.
Á þeim lærum vér að þekkja hvert stefnir i byggða-
sögu þessa héraðs, einmitt á þeim tíma, þegar fara á
uÓ gefa út sögu þess á prenti og í gylltu skrautbandi.
III.
Eigum vér þá ekki að leggja niður laupana?
Er ekki nóg komið, að mæðiveiki hafi drepið niður
fé bænda, þótt armæða sveitalífsins leggist ekki líka
á mannfólkið?
Þannig spyrja margir sjálfa sig. Þeim er vorkunn.
En er ekki allt landið vort fjallaland — brattans land
°g öll vor saga baráttusaga við brattann, sem ýmist
hræðir til flótta og undanhalds, eða eggjar til uppgöngu
°g baráttu, eftir lífsorku og lyndiseinkunn þeirra, sem
landið byggja á hverjum tíma?
Mæðiveiki er engin nýjung í lífsreynslu þeirrar þjóð-
4