Breiðfirðingur - 01.04.1986, Qupperneq 32
30
BREIÐFIRÐINGUR
Hjörleifsson frá Hofstöðum (f. 1893, d. 1959) varð hlut-
skarpastur og hlaut fyrstu verðlaun, en önnur verðlaun fékk
Hallgrímur Sigurðsson frá Látravík í Eyrarsveit (f. 1891, d.
1981). Sá Staðsveitingur, sem mest kom við glímusögu Snæ-
fellinga var Bragi Jónsson í Hofgörðum (Refur bóndi) (f.
1900, d. 1980). Hann gekk 16 ára gamall í glímufélagið
„Hjaðninga“, glímdi á íþróttamóti í Skógarnesi 1925 og tók
tvívegis þátt í sýsluglímu.
Glímufélagið „Jökull“ í Ólafsvík
í Ólafsvík var starfandi glímufélag í nokkur ár. Miklar líkur
eru til þess, að það hafi verið stofnað um líkt leyti og fyrst
var efnt til sýsluglímu á Snæfellsnesi. Glímufélagið í Ólafs-
vík efndi til kappglímuskemmtunar einu sinni á vetri í
nokkur ár, venjulega í febrúar eða marz. Fullvíst er, að
glímumót var í Ólafsvík veturinn 1912. Sigurvegari reyndist
Danilíus Sigurðsson (f. 1895, d. 1961), sem þá var búsettur
í Ólafsvík, en átti lengst af síðar heima á Hjallasandi. Verð-
launin voru sérstakur peningur, og hlaut hann sá, sem flesta
lagði að velli.
Þann 22. febrúar 1913 fór fram kappglíma í „Jökli“. Dani-
líus tók þátt í þeirri glímu, en varð nú af verðlaunum, því að
þau hlaut Magnús Sigurðsson í Flateyjarhúsi, Ólafsvík.
Magnús var eini félaginn úr „Jökli“ sem tók þátt í sýsluglímu
í Stykkishólmi, en það var veturinn 1914, eins og síðar
verður greint frá.
Um það leyti vetrar, sem glímumót „Jökuls“ voru haldin,
fórst bátur með níu mönnum úr Ólafsvík 1914, og varð því
af þeirri ástæðu ekkert glímumót það árið. Dagbókar-
höfundur Magnús Kristjánsson, sem hér er eingöngu stuðzt
við varðandi sögu glímufélagsins „Jökuls“, segir 27. febrúar
1915: „í kvöld fór ég á kappglímu, sem var haldin í samkomu-
húsinu af glímufélaginu „Jökli“. Þar vann Brandur Sigurðs-
son (f. 1892, d. 1919) verðlaunapening félagsins. Og svo
voru veitt 1. og 2. verðlaun fyrir fegurðarglímu. Hlutu þau