Breiðfirðingur - 01.04.1986, Blaðsíða 133
BREIÐFIRÐINGUR
131
sálarrannsóknum hcfur komið út hjá Skuggsjá, og má þar
nefna meðal höfunda: Hafstein Björnsson, Elínborgu Lár-
usdóttur, Guðrúnu Sigurðardóttur, Jónas Porbergsson, Ólaf
Tryggvason og Guðmund Jörundsson.
Loks er að geta Styrktarfélags aldraðra í Hafnarfirði, sem
stofnað var 1968. Oliver var þegar í upphafi kosinn í stjórn
þess og sat í henni æ síðan. Hann sparaði hvorki tíma né
fyrirhöfn til þess að geta orðið þar að sem beztu liði. Asamt
konu sinni tók hann t.d. tvívegis að sér fararstjórn af hálfu
félagsins fyrir hóp aldraðra Hafnfirðinga, er fóru í sumar-
dvöl í Bifröst í Borgarfirði. Vinur hans einn, sem mælti eftir
hann látinn, minnist þess sérstaklcga:
„Eru mér minnisstæð ummæli fullorðinna hjóna um
þá eiginleika Olivers að laða að sér fólk. Þau sögðust
æ minnast þessara samverustunda með mikilli gleði og
þakklæti til þeirra hjóna, svo mjög höfðu þau gert sér
far um, að ferðin yrði fólkinu til ánægju á allan átt.“
VIII
Oliver kvæntist á gamlaársdag 1946 eftirlifandi konu sinni
Sigríði Pórdísi, dóttur Bergs Jónssonar bæjarfógeta í Hafn-
arfirði og fyrri konu hans Guðbjargar Lilju Jónsdóttur. Þau
byrjuðu búskap sinn í Hafnarfirði, en fluttust til Reykja-
víkur 1948 og voru þar unz þau settust endanlega að í Hafn-
arfirði 1957. Oliver hafði þá reist þar myndarlegt íbúðarhús,
svo sem fyrr var að vikið. Þau hjón voru einstaklega
samhent. Sigríður tók mikinn beinan þátt í umsvifum bónda
síns, vissi ávallt gerla hvað þeim leið, enda mun Oliver
sjaldan hafa verið svo með ráðagerðir á prjónum, að hann
fýsti ekki að vita hennar hug til þeirra, að ekki sé talað um
þegar að framkvæmdinni kom.
Börn Sigríðar og Olivers eru: Guðbjörg Lilja gift Sævari
Erni Stefánssyni lögregluþjóni, Jóhannes bókasafns-
fræðingur og Bergur Sigurður, héraðsdómslögmaður,