Breiðfirðingur - 01.04.1986, Blaðsíða 112
110
BREIÐFIRÐINGUR
Guðmundur ólst upp með foreldrum sínum á Leiðólfs-
stöðum, ásamt tveimur alsystkinum sínum, þeim Jófríði, er
síðar varð húsfreyja á Saurum í Laxárdal og Guðbrandi
skósmið, er einnig bjó um skeið á Saurum en fluttist seinna
til Hvammstanga. Margrét á Leiðólfsstöðum missti Guð-
brand mann sinn árið 1917. Seinni maður hennar var Bjarni
Hallgrímsson frá Laxárdal í Hrútafirði, Bjarnasonar. Pau
Margrét og Bjarni á Leiðólfsstöðunr eignuðust einn son,
Jóhann, verslunarmann í Búðardal unr langt skeið og verður
hans síðar getið hér.
Snemma beygist krókurinn
Á þeim árum þegar Guðmundur á Leiðólfsstöðum var að
alast upp áttu unglingar ekki greiða leið til skólafræðslu.
Snemma bar á hagleik hans og mjög umfram það, er
almennt gerist. Á þessum tíma urðu bændur og búalið í
sveitunr að bjarga sér af eigin ranrnrlcik á flestum sviðum,
þar á nreðal smíði algengustu handverkfæra og búsgagna.
Menn töldust að vísu nrisjafnlega búhagir og nokkrir urðu
að leita til annarra eins og gengur. Eftir að Guðnrundur
konrst á legg, þurfti Leiðólfsstaðaheimilið ekki að leita til
annarra nreð snríðar.
Unr þctta leyti settist að í Búðardal maður að nafni
Sunrarliði Hannesson. (Bjó í Búðardal 1901-1923). Hann
var hagleiksmaður og stundaði mest járnsmíði, en var einnig
ágætur trésmiður. Hjá honunr nrun Guðmundur hafa unnið
unr skeið. Eftir það fer hann að stunda alls konar smíðar. Til
nrarks unr smíðahæfileika hans, og hversu honunr notaðist af
að vinna með Sumarliða í Búðardal, má geta þess, að árið
1906, þegar hann stendur á tvítugu, er hann ráðinn til að
byggja upp á tveinrur bæjunr í sveitinni, þ.e. á Hornsstöðum
og Lambastöðum. Eað konr í ljós fimmtíu árum síðar, þegar
bærinn á Hornsstöðum var rifinn ófúinn að kalla, hversu
frábær frágangur hafði verið á allri burðargrind hans. T.a.m.
voru öll samskeyti á grind lásuð saman og negld með tré-
nöglum eins og þá mun hafa verið venja. Á þessum árum