Breiðfirðingur - 01.04.1986, Blaðsíða 43
BREIÐFIRÐINGUR
41
6. sýsluglíma fór fram 27. marz 1919. Þátttakendur úr
Stykkishólmi voru: Hermann Jónsson, Hjörtur Guðmunds-
son, Jón Eyjólfsson, Ragnar Einarsson, og sunnan fyrir fjall:
Eggert Kristjánsson, Dalsmynni, Eyjahreppi, Ágúst Óla-
Son, Stakkhamri, Bragi Jónsson, Hofgörðum. Glímukóngur
varð þá Eggert Kristjánsson. (f. 1897, d. 1965). Ágúst hlaut
fyrstu fegurðarverðlaun og Jón Eyjólfsson önnur. Séra
Ásmundur Guðmundsson afhenti verðlaunin og gleymdi
ekki í leiðinni að minna menn á gildi glímunnar.
7. sýsluglíma var haldin 21. marz 1920 fyrir nær fullu húsi
áhorfenda. Þátttakendur voru: Ágúst Ólason, Stakkhamri,
Ásberg Jóhannesson, Stykkishólmi, Halldór Erlendsson,
Hjarðarfelli, Hjörtur Guðmundsson, Stykkishólmi, Jón
Eyjólfsson, Ögri, Jóhann Jóhannesson, Ögri, Kristinn Á.
Sigurðsson, Stykkishólmi, Sigurður Kristmundsson, Stykkis-
hólmi. Þá glímdu í fyrsta skipti drengir í sýsluglímu, og voru
það þessir, allir úr Stykkishólmi: Björn Hildimundarson,
Guðmundur Ólafsson, Hallgrímur Oddsson, Haraldur
Ágústsson, Ólafur Porleifsson, Stefán Sigurgeirsson. Glímu-
kóngur varð Ágúst Ólason. Fyrstu verðlaun fyrir fagra glímu
fékk Halldór Erlendsson (f 1897) og önnur verðlaun Jón
Eyjólfsson. Fyrstu verðlaun drengja hlaut Haraldur Ágústs-
son og önnur verðlaun Hallgrímur Oddsson. Páll V. Bjarna-
son sýslumaður afhenti verðlaunin og flutti ágæta ræðu.
8. sýsluglíma var háð 12. febrúar 1921. Þátttakendur voru
10, þar af þessir úr Stykkishólmi: Ásberg Jóhannesson,
Einar Jóhannesson, Felix Eðvarðsson, Jón Eyjólfsson, Jón
Ólafsson, Kristinn Á. Sigurðsson, Kristinn S. Sigurðsson,
Ragnar Einarsson. Sunnanmenn voru: Halldór Erlendsson,
Hjarðarfelli og Jóhannes Þorgrímsson, Skógarnesi. Sýslu-
kóngur varð Jón Eyjólfsson. Fyrstu fegurðarverðlaun hlaut
Kristinn Á. Sigurðsson (f. 1898, d. 1964), en önnur Halldór
Erlendsson. Hildimundur Björnsson var skipaður í dóm-
nefnd af hálfu félagsins, Kristján Árnason af glímumönnum,
en þeir völdu sér Árna P. Jónsson. Páll V. Bjarnason sýslu-
maður afhenti verðlaunin.