Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2015, Qupperneq 13

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2015, Qupperneq 13
13Ljósmæðrablaðið - desember 2015 Ein rannsókn laut að áhrifum átröskunar á höfuðummál og höfuðsmæð og önnur að tengslum átröskunar við fæðingarþung- lyndi. Niðurstöður sýndu áhrif átröskunar á þessi atriði en erfitt er að fullyrða frekar um þau áhrif vegna þess hve fáar rannsóknirnar eru og í báðum voru frekar lítil úrtök. Hins vegar er mikilvægt að skoða þetta frekar. Hið sama má segja um samband átröskunar við þvag- færasýkingar, ófrjósemismeðferð, óráðgerðar þunganir og tvíbura- fæðingar, en erfitt er að fullyrða um áhrif átröskunar á þessa þætti út frá einni rannsókn. Hvað varðar aðrar útkomubreytur þessarar fræðilegu saman- tektar, svo sem blóðleysi, ógleði og uppköst á meðgöngu, sykursýki, meðgöngueitrun, háþrýsting, vaxtarskerðingu, fósturstreitu, fæðingu þungbura, burðarmálsdauða og fósturlát á meðgöngu þá voru niður- stöður enn meira misvísandi. Átröskun virðist ekki hafa áhrif á andvana fæðingar, aukna tíðni áhaldafæðinga eða blæðingu eftir fæðingu en mismargar rannsóknir liggja þarna að baki og erfitt að draga raunhæfa ályktun út frá þeim. Ljóst er að frekari rannsókna er þörf á áhrifum mismunandi tegunda átröskunar á meðgöngu og fæðingu. Hagnýting í klínísku starfi Að vera með átröskun er alvarlegt mál og geta átröskunarsjúkdómar haft fjölþætt áhrif á heilsuna. Öll frávik á heilsu verðandi móður geta haft áhrif á meðgöngu, í fæðingu og sængurlegu. Vísbendingar eru um að átröskun geti haft áhrif á fæðingarþyngd barns og er rökrétt að tengja það við næringarástand móðurinnar á meðgöngu. Rannsóknum ber hins vegar ekki saman um aðra útkomuþætti barneignarferlisins. Engu að síður er vert að huga að því hvernig staðið er að þjónustu við þennan hóp. Í klínískum leiðbeiningum um meðgönguvernd heil- brigðra kvenna (Embætti landlæknis, 2010) er mælt með að í upphafi meðgöngu finni ljósmóðir þær konur sem þurfa sérhæfða meðgöngu- vernd og skipuleggi áframhaldandi þjónustu fyrir þær. Það getur verið vegna líkamlegra, andlegra eða félagslegra þátta. Einnig er mælt með skimun á geðheilsuvanda, svo sem á alvarlegu þunglyndi, geðklofa, geðhvarfasýki eða sturlun eftir barnsburð. Gefnar eru leið- beiningar um spurningar til að greina hvort konan eigi hugsanlega við þunglyndi að stríða (Embætti landlæknis, 2010), en hvorki er rætt um skimun vegna átröskunarsjúkdóma né ráðleggingar um hvernig hægt sé að koma auga á þessa sjúkdóma. Hins vegar er bent á að heilbrigðisstarfsmenn verði að vera á varðbergi alla meðgönguna gagnvart einkennum eða ástandi sem gæti haft áhrif á heilsu móður og fósturs, svo sem næringarástandi. Til eru skimunarlistar fyrir átröskun, svo sem SCOFF skimunarlistinn (Morgan, Reid og Lacey, 1999b) og EDE-Q sjálfsmatskvarðinn (Fairburn og Beglin, 1994) en ekki hefur verið metið hvort þeir eru nothæfir á meðgöngu. Mælt er með að líkamsþyngdarstuðull kvenna sé reiknaður í fyrstu heimsókn en ekki er mælt með að vigta konur aftur nema rannsóknir og klínískt mat gefi tilefni til (Embætti landlæknis, 2010). Franko og Spurrell (2000) nefna að lítil eða engin þyngdaraukning á öðrum þriðjungi meðgöngu geti verið merki um átröskunarsjúkdóm á meðgöngunni. LOKAORÐ Frekari rannsókna er þörf á áhrifum átröskunar á fylgikvilla meðgöngu og fæðingar. Konur með átröskun bera það ekki endilega utan á sér og tilhneiging er til að fela sjúkdóminn. Mikilvægt er að rannsaka betur hvort gagnlegt væri að taka upp skimun fyrir átrösk- unareinkennum og með hvaða hætti sú skimun færi fram. Velta má fyrir sér hvort æskilegt sé að fylgjast betur með þyngdaraukningu á meðgöngu, heldur en klínískar leiðbeiningar segja til um, þar sem of lítil þyngdaraukning getur verið merki um átröskunarsjúkdóm. Ljós- mæður eru í lykilhlutverki þegar kemur að því að greina hvaða konur þjást af átröskun á meðgöngu og veita þeim viðeigandi stuðning. HEIMILDASKRÁ American Psychiatric Association. (2000). Diagnostic and statistical manual of mental disorders, text revision, DSM-IV-TR (4. útgáfa). Washingtonborg: American Psychiatric Association Press. Anna Sigurðardóttir, Sigurður Páll Pálsson og Guðlaug Þorsteinsdóttir. (2010). Lystarstol 1983‒2008 – innlagnir, sjúkdómsmynd og lifun. Læknablaðið, 96, 747‒753. Bansil, P., Kuklina, E.V., Whiteman, M.K., Kourtis, A.P., Posner, S.F., Johnson, C.H. o.fl. (2008). Eating disorders among delivery hospitalizations: prevalence and outcomes. Journal of Women’s Health, 17(9), 1523‒1528. Blais, M.A., Becker, A.E., Burwell, R.A., Flores, A.T., Nussbaum, K.M., Greenwood, D. o.fl. (2000). Pregnancy: Outcome and impact on symptomatology in a cohort of eating-disordered women. International Journal of Eating Disorders, 27(2), 140‒149. Bulik, C.M., Sullivan, P.F., Fear, J.L., Pickering, A., Dawn, A. og McCullin, M. (1999). Fertility and reproduction in women with anorexia nervosa: a controlled study. Journal of Clinical Psychiatry, 60(2), 130‒135. Bulik, C.M., Von Holle, A., Hamer, R., Berg, C.K., Torgersen, L., Magnus, P. o.fl. (2007). Patterns of remission, continuation and incidence of broadly defined eating disorders during early pregnancy in the Norwegian Mother and Child Cohort Study (MoBa). Psychological Medicine, 37(8), 1109‒1118. Bulik, C.M., Von Holle, A., Siega-Riz, A.M., Torgersen, L., Lie, K.K., Hamer, R.M. o.fl. (2009). Birth outcomes in women with eating disorders in the Norwegian Mother and Child cohort study (MoBa). International Journal of Eating Disorders, 42(1), 9‒18. Conti, J., Abraham, S. og Taylor, A. (1998). Eating behavior and pregnancy outcome. Journal of Psychosomatic Research, 44(3), 465‒477. Crow, S.J., Agras, W.S., Crosby, R., Halmi, K. og Mitchell, J.E. (2008). Eating disorder symptoms in pregnancy: a prospective study. International Journal of Eating Disorders, 41(3), 277‒279. Dagný Sif Stefánsdóttir, Katla Hildardóttir, Lára Kristín Jónsdóttir og Sunna Sævarsdóttir. (2011). Líf með átröskunarsjúkdóm, stöðug barátta: Upplifun kvenna af átröskun á meðgöngu. Óbirt BS lokaverkefni í hjúkrunarfræði. Háskólinn á Akureyri. Eagles, J.M., Lee, A.J., Raja, E.A., Millar, H.R., og Bhattacharya, S. (2012). Pregnancy outcomes of women with and without a history of anorexia nervosa. Psychological medicine, 42(12), 2651‒2660. Easter, A., Bye, A., Taborelli, E., Corfield, F., Schmidt, U., Treasure, J., og Micali, N. (2013). Recognising the symptoms: how common are eating disorders in pregnancy? European Eating Disorders Review, 21(4), 340‒344. Ekéus, C., Lindberg, L., Lindblad, F. og Hjern, A. (2006). Birth outcomes and pregnancy complications in women with a history of anorexia nervosa. BJOG: an International Journal of Obstetrics and Gynaecology, 113(8), 925‒929. Embætti landlæknis. (2010). Meðgönguvernd heilbrigðra kvenna í eðlilegri meðgöngu. Sótt 1. apríl 2013 af http://www.landlaeknir.is/servlet/file/store93/item2548/4407.pdf Embætti landlæknis. (2006). Átraskanir – Samantekt leiðbeininga um meðferð og umönnun sjúklinga með lystarstol, lotugræðgi og skyldar átraskanir. Sótt 1. apríl 2013 af http://www.landlaeknir.is/servlet/file/store93/item2341/version4/2019.pdf Fairburn, C. G., & Cooper, Z. (1993). The eating disorder examination (12th ed.). In C. Fairburn & G. Wilson (Eds.), Binge eating: Nature, assessment, and treatment (pp. 317–360). New York: Guilford Press. Franko, D.L. og Spurell, E.B. (2000). Detection and management of eating disorders during pregnancy. Eating Disorders and Pregnancy, 95(6), 942‒946. Ingibjörg Ásta Claessen og Sigrún Jensdóttir. (2010). Líkamsmynd og tíðni átraskanaeinkenna meðal stúdenta við Háskóla Íslands. Óbirt BS-ritgerð í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands, Heilbrigðisvísindasvið. Koubaa, S., Hällström, T., Lindholm, C. og Hirschberg, A.L. (2005). Pregnancy and neonatal outcomes in women with eating disorders. Obstetrics & Gynecology, 105(2), 255‒260. Lemberg, R. og Phillips, J. (1989). The impact of pregnancy on anorexia nervosa and bulimia. International Journal of Eating Disorders, 8(3), 285‒295. Linna, M.S., Raevuori, A., Haukka, J., Suvisaari, J.M., Suokas, J.T. og Gissler, M. (2013). Reproductive health outcomes in eating disorders. International Journal of Eating Disorders, 46(8), 826‒833. Linna, M.S., Raevuori, A., Haukka, J., Suvisaari, J.M., Suokas, J.T., og Gissler, M. (2014). Pregnancy, obstetric, and perinatal health outcomes in eating disorders. American Journal of Obstetrics and Gynecology. Micali, N., dos-Santos-Silva, I., De Stavola, B., Steenweg-de Graaf, J., Jaddoe, V., Hofman, A., ... & Tiemeier, H. (2014). Fertility treatment, twin births, and unplanned pregnancies in women with eating disorders: findings from a population-based birth cohort. BJOG: An International Journal of Obstetrics & Gynaecology, 121(4), 408‒416. Micali, N., De Stavola, B., dos-Santos-Silva, I., Steenweg-de Graaff, J., Jansen, P. W., Jaddoe, V.W.V., ... og Tiemeier, H. (2012). Perinatal outcomes and gestational weight gain in women with eating disorders: a population-based cohort study. BJOG: An International Journal of Obstetrics & Gynaecology, 119(12), 1493‒1502. Micali, N., Simonoff, E. og Treasure, J. (2007). Risk of major adverse perinatal outcomes in women with eating disorders. The British Journal of Psychiatry, 190(3), 255‒259. Morgan, J.F., Lacey, J. og Sedgwick, P. (1999a). Impact of pregnancy on bulimia nervosa. The British Journal of Psychiatry, 174(2), 135‒140. Morgan, J. F., Reid, F., & Lacey, J. H. (1999b). The SCOFF questionnaire: assessment of a new screening tool for eating disorders. Bmj, 319(7223), 1467‒1468.

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.