Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Qupperneq 4
4 Helgarblað 2. febrúar 2018fréttir
Láttu þér ekki vera kalt
Sími 555 3100 www.donna.is
hitarar og ofnar
Olíufylltir ofnar 7 og 9
þilja 1500W og 2000 W
Keramik hitarar
með hringdreifingu
á hita
Hitablásarar
í úrvali
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Þ
ann tíma sem ég starfaði
í Krýsuvík þá skildi ekki
nokkur maður í bílakaup-
um samtakanna. Það var
sífellt verið að fjárfesta í einhverj-
um druslum sem dugðu aðeins
í skamman tíma. Það sama gilti
ekki um yfirstjórnendurna. Ég
upplifði þetta sem gegndarlaust
bílabrask,“ segir fyrrverandi starfs-
maður meðferðarheimilisins í
Krýsuvík í samtali við DV. Þann
tíma sem viðkomandi starfaði á
meðferðarheimilinu segir hann að
starfsmenn hafi verið ósáttir við þá
staðreynd að gamlar druslur voru
keyptar til þess að ferja starfsmenn
og skjólstæðinga til og frá Krýsu-
vík á meðan yfirstjórnendurnir,
mæðginin Lovísa Christiansen,
framkvæmdastjóri Krýsuvíkur-
samtakanna, og Þorgeir Ólason,
forstöðumaður meðferðarheim-
ilisins, hafi fjárfest í mun veglegri
ökutækjum til eigin afnota. Þá
kemur margt einkennilegt í ljós
þegar bílaviðskipti samtakanna
eru skoðuð. Meðal annars hefur
Þorgeir bæði keypt og selt samtök-
unum bíla og þá fékk 18 ára barna-
barn Lovísu bíl sem áður var í eigu
samtakanna.
Of dýr bíll við nánari athugun
Í síðust viku greindi DV frá því
að Lovísa Christiansen, fram-
kvæmdastjóri Krýsuvíkursamtak-
anna, hefði fjárfest í splunkunýrri
Dodge Ram-bifreið handa syni
sínum, Þorgeiri Ólasyni, forstöðu-
manni samtakanna. Bifreiðin
kostaði tæpar 10 milljónir króna
þegar allt var tekið með í reikn-
inginn. Þegar DV spurðist fyrir um
kaupin og hvort þau væru eðli-
leg þá var bíllinn þegar í stað aug-
lýstur til sölu á bílasölu. Útskýr-
ing samtakanna á þeirri ákvörðun
var á þá leið að við nánari athugun
hafi bíllinn verið of dýr fyrir sam-
tökin.
Þegar DV spurði út í bílakaup
samtakanna sagði stjórnarfor-
maður Krýsuvíkursamtakanna,
Sigurlína Davíðsdóttir, að stjórn-
in hefði ekki verið með fingurna
í bílaumsvifum stofnunarinnar.
Hún hafi þó verið upplýst um þau
umsvif þegar eftir því var óskað.
Einkennileg viðskipti
Ýmislegt athyglisvert kemur í
ljós þegar bílaviðskipti Krýsu-
víkursamtakanna eru
skoðuð. Þannig fjár-
festi Lovísa í glænýrri
Skoda Octavia-bifreið
fyrir sjálfa sig í nóvem-
ber 2012. Kaupverðið
var 4,7 milljónir króna.
Það verður að teljast
einkennileg ráðstöfun
á meðferðarheimili,
sem að sögn forsvars-
manna nær varla end-
um saman. Sérstaklega
í ljósi þess að skrifstofa
Krýsuvíkursamtak-
anna, þar sem Lovísa
starfar dagsdaglega, er
300 metrum frá heim-
ili hennar í Hafnar-
firði. Samkvæmt
heimildum DV á hún
afar sjaldan erindi á með-
ferðarheimilið sjálft í Krýsuvík.
Þá hafa ýmisleg einkennileg
viðskipti átt sér stað. Til dæmis
keypti títtnefndur Þorgeir Ólason
Dodge Ram 250 af Krýsuvíkur-
samtökunum í júní árið 2001 en þá
höfðu samtökin haft afnot af bif-
reiðinni í þrjú ár. Þorgeir átti bif-
reiðina í tæp átta ár áður en hann
seldi hana áfram í byrjun árs 2008.
Þá keypti hann einnig Chevrolet-
bifreið af samtökunum um mitt
ár 2004 en áframseldi hana síð-
an nokkrum mánuðum síðar. Þá
keypti meðferðarheimilið drátt-
arvél af Þorgeiri í desember
2005 en þá hafði hann ein-
göngu átt vélina í rúma
þrjá mánuði.
Þá eignaðist
barnabarn
Lovísu for-
láta Suzuki
Vitara-bif-
reið sem
var áður í
eigu sam-
takanna.
Samkvæmt
heimildum DV var sá gjörningur
sagður vera laun til piltsins sem
þá var 18 ára gamall. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Beint úr kassanum Framkvæmdastjóri Krýsuvíkursamtakanna fjárfesti í glænýrri Skoda Octavia-bifreið árið 2012 til eigin afnota. Kaup-
verðið var 4,7 milljónir króna. Forsvarsmenn samtakanna hafa ítrekað talað opinberlega um að fjárhagsstaða félagsins sé afar slæm og því
gæti þurft að loka meðferðarheimilinu. Um þrjú hundruð metrar eru frá heimili framkvæmdastjórans og að skrifstofu samtakanna. Mynd dV Ehf
/ Sigtryggur Ari
Þrjú hundruð metrar Lovísa býr að Kirkjuvegi 15
í Hafnarfirði en skrifstofa Krýsuvíkursamtakanna er
að Austurgötu 8. Vegna einstefnu er aksturfjarlægð-
in um 1,1 kílómetri en fótgangandi er vegalengdin um
300 metrar.
Þorgeir Ólason
Lovísa Christiansen
KrýsuvíK: Lovísa féKK
nýjan bíL á 4.7 miLLjónir
n 7 prósent af fjárveitingu ríkisins það árið n 30 bílar á 20 árum