Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Page 10
10 Helgarblað 2. febrúar 2018fréttir
Í varðhaldi með
barn á leiðinni
É
g vann í sjálfum mér. Loka-
hnykkurinn í bataferlinu var
að leggja fram kæru. Mín
barnslega trú var að ef ég
kærði myndi hann ekki sleppa ef
annar þolandi myndi stíga fram.
Samt slapp hann, slapp við að
missa vinnuna. Það er ótrúlegt og
á ekki að geta gerst.“
Þetta segir ungur maður sem
kærði Guðmund Ellert Björnsson,
starfsmann Barnaverndar Reykja-
víkur. Guðmundur, sem hefur
unnið með börnum og ungling-
um í tvo áratugi, situr nú í gæslu-
varðhaldi grunaður um að hafa
beitt skjólstæðing stofnunarinn-
ar kynferðisofbeldi. Ungi maður-
inn er nákominn ættingi og segir
að Guðmundur hafi brotið á hon-
um frá 9 ára aldri þar til hann varð
15 ára. Þá kveðst systir manns-
ins hafa látið Barnavernd vita að
meintur níðingur starfaði fyrir
stofnunina. Tveimur árum síðar
greindi móðir annars ungs manns
tveimur lögregluþjónum frá því
að Guðmundur Ellert hefði brotið
á syni hennar á hrottalegan hátt.
Í samtali við DV segir konan að
hún hafi greint lögreglumönnun-
um frá hvar Guðmundur starfaði.
Þolendur og ættingjar þeirra hafa
fullyrt við fjölmiðla að tilkynnt
hafi bæði verið til lögreglu og
Barnaverndar að Guðmundur
væri grunaður um skelfilegt
ofbeldi. Þrátt fyrir þessar við-
varanir starfaði Guðmundur
áfram eins og ekkert hefði í
skorist þar til í vikunni að
hann var loks úrskurðaður í
gæsluvarðhald. Guðmund-
ur var yfirmaður á skamm-
tímaheimili á vegum Barna-
verndar og átti þar heimili.
Hann svaf því með fullt hús
af börnum sem komu frá
brotnum heimilum. Þá hef-
ur frændi Guðmundar einnig
kært hann og sakar hann um
að hafa beitt hann ofbeldi á
heimili félagsþjónustunnar.
Fram hefur komið að Guð-
mundur var einnig kærður
í ágúst 2017. Sævar Þór
Jónsson, lögmaður
annars pilts sem hefur kært Guð-
mund, kveðst hafa rekið á eftir
kærunni við yfirvöld. Árni Þór Sig-
mundsson, yfirmaður kynferðis-
brotadeildar lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu, hefur sagt að
ekki hafi verið mögulegt að sinna
málinu vegna annríkis. Hefur lög-
regla verið harðlega gagnrýnd
vegna málsins. Þá er málið enn
eitt hneykslismálið sem upp er
komið hjá Barnavernd.
Samfélagið hefur leikið á reiði-
skjálfi eftir að málið komst í há-
mæli og á venjulegur leikmað-
ur erfitt með að átta sig á hvernig
maður grunaður um jafn skelfileg
brot hafi fengið að starfa óáreittur
með börnum og stýra heimilum
þar sem brotin börn eiga sitt skjól.
DV hefur rætt við þolendur og
ættingja sem og leitað svara hjá yf-
irvöldum og stofnunum sem hafa
bent á hvert annað. Lögreglustjóri
hefur nú viðurkennt að alvarleg
mistök hafi átt sér stað og að læra
þurfi af þessu skelfilega máli.
Ekki góður starfsmaður
„Ég kærði hann árið 2013. Það
sem var erfiðast voru fyrstu við-
brögð dómsmálaráðherra og lög-
reglustjóra. Það virtist sem enginn
ætlaði að bera ábyrgð á þessu
skelfilega máli.“
Móðir annars drengs sem
kærði Guðmund sakar hann um
að hafa gefið syni hennar svefn-
lyf og síðan nauðgað honum. Seg-
ir hún ofbeldið hafa staðið yfir í
mörg ár. Móðirin segir:
„Það er vont að verða vitni að
því að fólk sé að tala um að hann
hafi verið góður starfsmaður.
Hann var ekki góður starfsmað-
ur. Hann þóttist vera góður starfs-
maður.“
Guðmundur Ellert hefur starf-
að á skammtímaheimili fyr-
ir unglinga í Breiðholti frá árinu
2010. Yfirmaður hans var Sigurð-
ur Hólm Gunnarsson. Samkvæmt
heimildum DV voru Guðmund-
ur og Sigurður Hólm félagar eða í
sama vinahóp á yngri árum.
„Voru þið vinir áður en þú réðst
hann í vinnu?“
„Nei, ég myndi ekki orða það
þannig. Við vorum saman í FB,“
svarar Sigurður Hólm. „Við vor-
um kunningjar þar, en ég var ekki
í neinu sambandi við hann frá ár-
inu 1997 þangað til ég hóf störf
hjá Barnavernd 2010. Ég var ekki í
neinu sambandi við hann á þessu
þrettán ára tímabili,“ segir Sig-
urður.
Grunaði fólk ekki neitt?
„Nei, ekki neitt,“ segir
Sigurður. „Fólk er náttúr-
lega í áfalli að hann skuli
vera grunaður um þetta,
það má segja að hér inn-
andyra sé sorgarstemn-
ing.“
Sigurður Hólm réð
Guðmund í vinnu þegar
heimilið í Breiðholti var
opnað í breyttri mynd.
Guðmundur hafði starfað
á heimilinu sem hýsir brot-
in börn og unglinga, sem
eiga erfitt heima fyrir. Þá
bjó Guðmundur með ung-
lingunum og svaf í húsinu
í viku í senn á móti annarri
konu.
„Þau bjuggu hér á meðan
þau voru að vinna hérna
og sváfu hérna
eðlilega,
einn
á vakt, og héldu heimili hér. Svo
var tekin ákvörðun af Barnavernd
að breyta starfseminni, gera hana
faglegri og víðtækari. Þá var aug-
lýst eftir forstöðumanni til að taka
við og móta þá starfsemi og ég var
ráðinn til þeirra verka. Mitt fyrsta
hlutverk var að auglýsa og ráða inn
starfsfólk. Báðir starfsmennirnir
sem voru að vinna hérna áður en
þessu var breytt sóttu um, þar á
meðal þessi maður.“
Var Guðmundur ráðinn og
starfaði á heimilinu um árabil og
svo síðar á öðru heimili. Í viðtali
við Stöð 2 beygði Sigurður Hólm
af þegar hann ræddi um málið.
Lét lögreglu vita árið 2008
Þolandi Guðmundar kveðst hafa
leitað til Stígamóta og sagt fólki
þar á bæ sem og lögfræðingi sín-
um að Guðmundur væri í vinnu
með börnum. Þá hafi hann greint
lögreglu frá því að þannig væri í
pottinn búið.
„Lögregla fékk að heyra þetta,
hvort sem þeir finna það í skránni
eða ekki. Systir mín lét Barna-
vernd vita árið 2008, eða þegar ég
trúði henni fyrir því ofbeldi sem ég
var beittur. Þá var ég sjálfur á milli
19 og 20 ára.“
Árið 2009 veiktist ungi maður-
inn af kvíða og þunglyndi. Hann
ákvað að vinna í sínum málum og
takast á við það sem hafði gerst í
fortíðinni. Lokahnykkurinn var,
eins og áður segir, að leggja fram
kæru í þeirri von að ef fleiri myndu
stíga fram þá væri möguleiki að
stöðva Guðmund. Þrátt fyrir fleiri
kærur og tilkynningar gerðist það
ekki.
„Það var erfitt skref að kæra þar
sem við erum náfrændur. En mér
tókst það og öðlaðist ró. Ég lauk
námi og er nú í góðri vinnu þar
sem ég á góða að. En eftir að málið
blossaði upp í fjölmiðlum hrundi
ég niður. Ég á góða vinnufélaga og
vini sem standa eins og klettur við
bakið á mér. Þá veitir fjölskyldan
mér einnig mikinn stuðning.“
Ungi maðurinn leitaði sér að-
stoðar hjá Stígamótum í vikunni
til að styrkja sig eftir að málið kom
upp á nýjan leik.
„Hann brýtur á mér á heim-
ili félagsþjónustunnar. Öll brotin
eru á heimili félagsþjónustunn-
ar í skjóli Reykjavíkurborgar,“ seg-
ir maðurinn. Ofbeldið stóð yfir í
mörg ár. Hann hefur ekki hitt önn-
ur meint fórnarlömb mannsins.
„Hann notaði engin lyf á
mig. Hann þurfti þess ekki.
Hann hafði fullkomið traust,
hann var frændi minn.“
Lagður í einelti
Guðmundur átti að
sögn litla frænda
hans erfiða æsku og
var lagður í einelti
í grunnskóla og menntaskóla. Var
Guðmundi strítt vegna útlits hans.
Hann var stór, rauðhærður, talinn
skrítinn og með gleraugu.
Sigurður Hólm, sem þekkti
Guðmund á unglingsárum og
kynntist honum aftur þegar hann
réð hann í vinnu, lýsir Guðmundi
sem rólegum, reglusömum manni
sem drekki ekki áfengi.
„Hann var rólegur og náði vel
til krakkanna. Þetta eru alls kon-
ar einstaklingar sem koma hingað
inn og þau stundum kvarta undan
starfsfólki. „Hann er leiðinlegur“...
og eitthvað slíkt. Ég hef aldrei feng-
ið slíka kvörtun gagnvart honum.
Það töluðu margir um að hann
væri skemmtilegur, biðu eftir því
að hann kæmi á vakt. [...] Ég er bú-
inn að vera í áfalli, þetta er svolítið
eins og maður upplifir að einhver
hafi dáið, skilurðu. Ég er að syrgja
þennan mann sem ég er búinn að
þekkja í mörg ár. Ef þetta reynist
rétt þá er hann einhvern veginn
horfinn og nýr einstaklingur blasir
við sem að við þekktum ekki.“
Ef þetta reynist allt satt þá er
Guðmundur búinn að misnota
traust og blekkja til að ná fram því
versta sem þekkist.
„Ég er búinn að sveiflast mik-
ið. Ég er búinn að vera í sjokki. Ég
er búinn að vera reiður gagnvart
honum, að hann skuli vera þessi
maður, en svo er ég aðallega búinn
að vera sorgmæddur, þetta er svo
gríðarlega sorglegt. Ég finn gríðar-
lega mikið til með þolendum hans
og aðstandendum, þetta er svo
hræðilegt.“
Þú sagðir við Stöð 2, eins og
þú sagðir við mig, maður getur
ímyndað sér að þolendur séu ósátt-
ir við að honum sé lýst á svona já-
kvæðan hátt.
„Hafi hann gert þessa hluti þá er
hann ekki sá maður sem við upp-
lifðum hann vera, en ég er bara að
lýsa því hvernig hann birtist okk-
ur, samstarfsmönnum. Auðvitað
er hann ekki þessi ljúfi góði mað-
ur sem við þekktum, hafi hann
gerst sekur um þetta, auðvitað
ekki. En þetta er svona sem hann
birtist okkur. Þetta er ömurlegt. Á
tímabili hef ég brotnað niður og
grátið yfir þessu. Þetta tekur svo á,“
segir Sigurður og bætir við: „Hann
var kærður í ágúst og ég hafði ekki
heyrt af því fyrr en daginn áður en
hann var handtekinn. Ég bara
„Hann notaði engin
lyf á mig. Hann
þurfti þess ekki. Hann
hafði fullkomið traust,
hann var frændi minn.“
Björn Þorfinnsson
Ari Brynjólfsson
Kristjón Kormákur Guðjónsson
n Lögregla og Barnavernd harðlega gagnrýnd n Þolandi sagði honum að leita sér hjálpar