Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Síða 17
Helgarblað 2. febrúar 2018 fréttir 17
armat. Bergljót fór þangað með
blaðamanni og ljósmyndara DV.
„Strákurinn talaði við mig að
kvöldi til, við komum hingað um
hádegið daginn eftir. Strákurinn
sagði þá að búið væri að taka einn
köttinn og kattarmatinn, og þessi
skófla væri komin í staðinn,“ seg-
ir Bergljót og bendir á skóflu sem
stendur við fjósvegginn á Frið-
arstöðum. „Þetta sagði mér bara
eitt, sá sem bar ábyrgð á þessu var
líklega inni í Facebook-hópnum.
Hann hefur verið fljótur að fara.“
Framhluti af einum ketti lá í fjós-
haugnum, Bergljót dró hann fram
og myndaði.
Lögreglan á Suðurlandi er ekki
sannfærð um að kattahræin á
Friðarstöðum tengist eitrunum á
köttum í bænum. Viðmælendur
DV segja augljóst af myndunum
að dæma að kötturinn hafi verið
skorinn í sundur með sög. Odd-
ur Árnason, yfirlögregluþjónn á
Selfossi, segir að það sé ekki hægt
að útiloka að um mink hafi ver-
ið að ræða. „Minkur getur slitið
allt í sundur. Hræin sem fundust
þarna voru búin að liggja rotin
mjög lengi og ekkert hægt að eltast
við það. Þarna voru kettir búnir að
liggja í mörg ár, villikettir margir.“
Réðist á nágranna
Yfirferð á fréttum af kattadráps-
málum á árunum 2013 til 2018
leiðir í ljós að yfir 40 kettir hafa
ýmist verið drepnir með eitri
eða barðir til dauða í Sandgerði,
Hveragerði og Selfossi, einnig eru
dæmi og sögur um að kettir hafi
drepist af völdum frost-
lagar á Egilsstöðum,
Hafnarfirði, Vesturbæ
Reykjavíkur og á Ísafirði.
Bergljót segir að katta-
drápin hafi slæm áhrif á
samfélagið í Hveragerði
og nefnir sem dæmi
mann sem missti kött af
völdum eitrunar og réð-
ist á nágranna sinn sem
lá undir grun.
Getur verið að málið sé
blásið upp?
„Nei, ég held ekki, því
miður virðist vera hér á
ferð níðingur sem einsk-
is svífst. Kattarhvörfin og
drápin á þeim hafa valdið fólki
áhyggjum og ég lít á þetta sem
samfélagslegt vandamál, sem ber
að taka á af hálfu bæjaryfirvalda
því þetta setur ljótan blett á þenn-
an annars ágæta bæ. Ég hef rætt
það við bæjarstjóra, Aldísi Haf-
steinsdóttur, en hún er ekki sömu
skoðunar. Mér finnst það alvarlegt
mál, þegar fólk er farið að nefna
nöfn á mönnum sem hugsanleg-
um kattaníðingum, án þess að
geta nokkuð sannað. Það er líka
alvarlegt mál ef saklaust fólk er
nefnt í þessu sambandi og við það
festist níðingsorð. Dæmi eru um
að þeir sem misst hafa ketti sína
hafa orðið svo reiðir að þeir hafi
viljað lúskra á ákveðnum mönn-
um og heimsótt þá. Þess vegna er
svo mikilvægt að taka á þessu máli
af alvöru og uppræta það,“ segir
Bergljót.
Alls búa rúmlega 1.200 manns
í Hveragerði, nokkur fjöldi er í
Facebook-hópnum kisur í Hvera-
gerði þar sem íbúi tók saman lista
yfir ketti sem hurfu haustið 2017.
Erfitt reyndist að fá kattaeigend-
ur til að stíga fram og segja sögu
sína, ríkir ótti um að það gæti haft
í för með sér hefndaraðgerðir. „Ég
get sagt þér sögur, en ég vil ekki
koma fram undir nafni því ég ótt-
ast að hinn kötturinn minn muni
líka hverfa,“ sagði einn viðmæl-
andi DV.
Bæjaryfirvöld geta lítið gert
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í
Hveragerði, kannast við þessar frá-
sagnir en segir að mál af þessu tagi
hafi ekki ratað formlega inn á borð
bæjaryfirvalda en nokkrir munu
hafa verið í sambandi við hana og
bæjarskrifstofuna. „Við getum aftur
á móti lítið gert en ég hef þó ítrek-
að rætt við lögregluna og beðið þau
um að taka fast á þessum málum og
rannsaka til hlítar það sem upp hef-
ur komið. Það hafa þau gert en þó án
þess að eitthvað handfast hafi kom-
ið út úr því,“ segir Aldís. Hún hefur
hins vegar ekki orðið vör við svona
mál í vetur og telur því að ástandið í
Hveragerði sé ekki verra en í öðrum
bæjarfélögum. DV gerði óformlega
könnun og hafði samband við nokk-
ur bæjarfélög víðs vegar um landið
en í engu þeirra vildu bæjarstarfs-
menn kannast við að þar hefði verið
eitrað fyrir köttum.
Óeðlilega mörg mál í
Hveragerði
Matvælastofnun, sem tek-
ur við tilkynningum um
illa meðferð á dýrum,
staðfesti að nánast öll þau
mál sem tengist eitrun-
um á köttum sem komið
hafi inn á borð stofnunar-
innar undanfarin ár komi
frá Hveragerði og Sel-
fossi. MAST gat ekki gefið
nánari útlistun á málun-
um sem komið hefðu á
borð stofnunarinnar en
þar innandyra er litið
á málin sem óeðlilega
mörg.
Gunnar Þorkelsson, yfirdýra-
læknir á Suðurlandi, segir að málin
í Hveragerði og á Selfossi séu litin
mjög alvarlegum augum. „Það hafa
komið upp þrjú og fjögur svona til-
felli á hvorum stað, Hveragerði og
á Selfossi. Það kom upp svipað mál
á Egilsstöðum í fyrra. Þann 8. janú-
ar í ár fáum við niðurstöðu krufn-
ingar af ketti héðan af Selfossi, það
var frostlagareitrun.“ Gunnar segir
að það þurfi ekki að vera að í öllum
tilfellum hafi verið vísvitandi eitrað
fyrir kettinum. „Frostlögur er sæt-
ur á bragðið og ef að þetta lekur af
bíl þá getur verið að þeir lepji þetta.
Við getum ekki alveg 100% útilok-
að það.“
Það sem sker Hveragerði úr er
fiskstykkið sem fannst sem vísvit-
andi hafði verið eitrað með frost-
legi. „Þau höfðu legið í þessu og
þau voru það gegnsýrð að þegar
voru geymd í -18 frosti þá frusu
þau ekki. Þannig að þar var um að
ræða beinan ásetning. Við höfum
ekki fundið neitt æti á Selfossi, en
þetta er nú í höndum lögreglunn-
ar.“ Gunnar segir að kettirnir hafi
verið krufnir á sínum tíma þegar
málið rataði í fjölmiðla, þá hafi
lögreglan haft samband. Gunnar
segir málin andstyggileg. „Þetta
er andstyggilegt, í einu orði sagt
andstyggilegt. Eigendurnir eru oft
eldra fólk og börn, það gerir þessi
mál enn þá verri.“
Þrjú mál til rannsóknar
Þrjú mál eru nú til rannsóknar hjá
Lögreglunni á Suðurlandi, tvö í
Hveragerði og mál sem kom upp
um jólin á Selfossi. Oddur Árna-
son, yfirlögregluþjónn á Selfossi,
segir erfitt fyrir lögreglu að henda
reiður á þessum málum þar sem í
mörgum tilfellum séu atvikin ekki
tilkynnt til lögreglu eða kötturinn
finnst ekki. Oddur segir útilokað
að nefna hugsanlega tölu á mál-
um tengdum köttum í umdæm-
inu. „Það er útilokað. Við kannski
fáum tilkynningu um að köttur-
inn sé týndur og eigandinn held-
ur allt það versta, en svo kemur
kötturinn heim og skammast sín
ekki einu sinni fyrir að hafa farið
án þess að láta vita.“
Tvær krufningar liggja fyrir, ein
frá ágúst 2016 og ein frá 29. des-
ember síðastliðnum, svo er ver-
ið að rannsaka málið þar sem
fiskflökin voru vætt í frostlegi.
„Við erum með staðfest þessi tvö
mál, þar sem krufningar liggja fyr-
ir, það er það eina sem við höfum
staðfest í höndunum. Við höfum
grunsemdir en ekkert í hendi.“ n
„Eigendurnir
eru oft
eldra fólk og börn,
það gerir þessi
mál enn þá verri
Kattadráp
í fréttum
2013 til 2015 Minnst 10 kettir í
Sandgerði.
Ágúst 2015 6 kettir í Hveragerði.
Desember 2016 3 kettir í Hafnarf-
irði. 11 kettir á Suðurlandi.
Október 2016 Einn köttur á
Selfossi.
Apríl 2017 Tveir kettir á Ísafirði.
Júní 2017 8 kettir víðs vegar um
landið, Vesturbæ Reykjavíkur, Suður-
landi og á Austurlandi.
Ágúst 2017 Þrír kettlingar finnast
dauðir í plastpoka í Hveragerði
September 2017 Bergljót
finnur hálfan kött á Friðarstöðum í
Hveragerði.
Jólin 2017 Einn köttur á Selfossi.
Fiskbiti Fiskbiti sem legið hafði í
frostlegi fannst árið 2015 í Hveragerði.
Kötturinn á Friðarstöðum Piltur í Hveragerði mun hafa verið að leika sér á staðnum
og fundið dauða ketti. Þegar hann mætti á staðinn með Bergljótu daginn eftir fannst þessi
köttur í fjóshaugnum. Lögreglan á Suðurlandi vill ekki útiloka að um mink hafi verið að ræða.
Mynd BeRgljÓt davíðsdÓttiR
Friðarstaðir Bergljót fór með blaðamann og ljósmyndara DV að skoða eyðibýlið þar sem
hálfur köttur fannst. Mynd sigtRygguR aRi
Það er hægt að
bjarga köttum
Dýraspítalinn í Garðabæ hefur tekið
á móti köttum sem eitrað hefur verið
fyrir með frostlegi. Hanna Arnórsdóttir
dýralæknir segir að ef dýrið kemur
innan 3 til 4 tíma eftir að hafa innbyrt
frostlög eða frostlagarmengaða fæðu
þá á hann möguleika. Eftir það er það
of seint og dýrið fer í bráða nýrnabilun
sem er óafturkræf og líður miklar kvalir.
Fyrstu 3 tímana eftir að kötturinn hefur
innbyrt frostlög er mögulegt að greina
sérstaka kristalla í þvagi sem eru sterk
vísbending um frostlagareitrun.
M
y
n
d
p
ix
a
B
ay
.c
o
M