Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Blaðsíða 18
18 Helgarblað 2. febrúar 2018fréttir
Lögfræðingarnir sem þú vilt
fá þér ef þú ert í vandræðum
G
óður lögmaður þekkir lög-
in, frábær lögmaður þekk-
ir dómarann.“ Þannig
hljómar þekkt orðatiltæki
eftir ókunnan höfund sem oftar
en ekki er kastað fram í hálfkær-
ingi fremur en alvöru enda mun
réttlætisgyðjan vera blind. Það
er þó þannig að lögmaður með
sannfæringarkraft hlýtur að vera
líklegri til að fá dómara til að fall-
ast á hans sjónarmið. DV tók sig
til og kannaði hvernig einstök-
um lögmönnum hefur gengið að
sannfæra dómara fyrir Hæstarétti
síðustu þrjú ár, 2015 til 2017.
Úttektin miðast við þau einka-
mál sem lögmenn hafa flutt
munnlega fyrir Hæstarétti. Op-
inber mál eða sakamál eru ekki
talin með enda hallar þar eðli
máls samkvæmt verulega á lög-
mann hins ákærða. Um saka-
mál er fjallað sérstaklega á næstu
síðu. Jafnframt voru undanskilin
öll kærumál enda eru þau skrif-
leg.
Fáar konur en sigursælar
Alls voru skoðuð 683 dómsmál
en þau fluttu 214 lögmenn. Af
þeim lögmönnum voru aðeins
36 konur, eða rétt tæplega 17%.
Það hlutfall er lágt en þarf ekki
að koma á óvart þegar litið er til
þess að af skráðum hæstarétt-
arlögmönnum á heimasíðu Lög-
mannafélagsins er fjöldi kvenna í
svipuðu hlutfalli, eða um 16%.
DV ákvað að finna þá 20 lög-
menn sem fluttu flest málin og
skoða árangur þeirra. Eins og má
sjá á töflunni voru aðeins tvær
konur á þeim lista en þær tróna
hins vegar í efstu tveimur sætun-
um yfir vinningshlutfall. Þó þær
hafi starfað fyrir sterka umbjóð-
endur, annars vegar ríkið og hins
vegar Reykjavíkurborg, er ekki
hægt að segja annað en að skor-
kortin þeirra séu tilkomumikil.
Úttekt sem þessi verður aldrei
n DV tekur út árangur lögmanna fyrir Hæstarétti n Konur fáar en sannfærandi n Einstaklingar eiga erfitt uppdráttar
Sigurvin Ólafsson
sigurvin@dv.is
Fækkun mála fyrir Hæstarétti á síðasta ári
n Enn frekari fækkun með tilkomu Landsréttar n Ólafur Börkur með fæst mál en flest sératkvæði
D
æmdum málum fyrir
Hæstarétti árið 2017 fækk-
aði um rúm 13% frá árinu
2016. Mestu munar þar um
mikla fækkun dóma í áfrýjunar-
málum, sem fækkaði um tæplega
þriðjung, fóru úr 356 málum í 256
mál. Hafa dómar í áfrýjuðum saka-
málum ekki verið færri síðan árið
2002 og dómar í áfrýjuðum einka-
málum voru síðast færri árið 2007.
Undanfarin misseri hefur tölu-
vert verið fjallað um mikið vinnuá-
lag í Hæstarétti enda hafði málum
fjölgað mjög ört síðustu ár. Meðal
annars til að bregðast við því hefur
verið komið á fót millidómsstigi,
Landsrétti, sem tók til starfa nú í
ársbyrjun. Ætla má að Landsréttur
muni taka mesta hitann af Hæsta-
rétti í framtíðinni. Ekki liggur skýrt
fyrir hvaða málum Hæstiréttur
mun sinna hér eftir en sú breyting
hefur þó verið lögfest að áfrýjun
mála til réttarins verður í öllum til-
vikum háð leyfi Hæstaréttar. Mun
Hæstiréttur í þeim tilvikum með-
al annars meta hvort úrslit máls-
ins hafi verulegt almennt gildi eða
varði sérstaklega mikilvæga hags-
muni.
Hversu mikið málum fyrir
Hæstarétti mun fækka er því óvíst
en eitt viðmið sem má líta til er
hversu mörg mál hafa verið flutt
fyrir 5 dómurum eða fleiri síðustu
ár, en það teljast jafnan vera mikil-
vægari og fordæmisgefandi mál. Á
síðasta ári voru slík mál rúmlega 60
talsins og voru síðustu 5 árin þar á
undan álíka mörg að meðaltali.
Meiri samstaða meðal dómara
Eins og sést á töflunni hér til hliðar
var annríkið mismikið hjá hverj-
um dómara fyrir sig á síðasta ári.
Afkastamestur var Helgi I. Jóns-
son, varaforseti réttarins, en hann
var viðriðinn rúmlega 300 mál á
árinu. Ólafur Börkur Þorvalds-
son dæmdi fæst mál allra dóm-
aranna og virðist hafa verið í leyfi
fyrsta helming ársins. Það breytti
því ekki að hann var engu að síð-
ur sératkvæðamestur, hann skilaði
flestum sératkvæðum allra dóm-
ara á árinu, alls þremur. Raunar
virðist sem dómarar réttarins séu
orðnir nokkuð samstilltir því sér-
atkvæði voru aðeins lögð fram í sjö
málum á árinu. Á heimasíðu rétt-
arins er að finna tölulegar upp-
lýsingar um fjölda sératkvæða á
hverju ári allt aftur til ársins 1999
og hafa þau aldrei verið eins fá og
síðasta ár. Mögulega má þó rekja
það til leyfis Ólafs Barkar því hann
hefur síðustu ár borið höfuð og
herðar yfir aðra dómara hvað sér-
atkvæði varðar. Af þeim málum
þar sem sératkvæði hafa verið lögð
fram síðastliðin þrjú ár hefur Ólaf-
ur Börkur staðið á bakvið tæplega
helming þeirra.
Fjöldi dæmdra mála í
Hæstarétti 2015–2017
Tegund 2015 2016 2017
Áfrýjuð einkam. 229 264 190
Áfrýjuð sakam. 103 92 66
Kærumál 429 407 405
Samtals 761 763 661
Skipting mála á milli dómara árið 2017
Dómari Dæmd mál Þar af kærumál Þar af einkamál
Helgi I. Jónsson 304 217 87
Benedikt Bogason 290 195 95
Karl Axelsson 266 169 97
Greta Baldursdóttir 221 129 92
Viðar Már Matthíasson 171 79 92
Markús Sigurbjörnsson 163 69 94
Þorgeir Örlygsson 155 68 87
Eiríkur Tómasson 111 55 56
Ólafur Börkur Þorvaldsson 92 56 36
Þrátt fyrir þennan mun á milli dómara í dæmdum málum virðist sem miðað sé við að einkamál-
um sé skipt nokkuð jafnt á milli dómara.
Sératkvæði árin 2015–2017
Dómarar 39 mál, 46 sératkvæði Hlutfall
Ólafur Börkur Þorvaldsson 19 41%
Benedikt Bogason 7 15%
Viðar Már Matthíasson 6 13%
Karl Axelsson 4 9%
Eiríkur Tómasson 4 9%
Helgi I. Jónsson 3 7%
Þorgeir Örlygsson 1 2%
Markús Sigurbjörnsson 1 2%
Ingveldur Einarsdóttir 1 2%
Ólafur Börkur Þorvaldsson