Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Page 19
Helgarblað 2. febrúar 2018 fréttir 19
Lögfræðingarnir sem þú vilt
fá þér ef þú ert í vandræðum
Fjöldi %
Soffía Jónsdóttir 18 94%
Kristbjörg Stephensen 16 94%
Gizur Bergsteinsson 14 89%
Stefán A. Svensson 27 81%
Heiðar Örn Stefánsson 14 71%
Árni Ármann Árnason 15 70%
Björn L. Bergsson 16 66%
Einar Karl Hallvarðsson 31 58%
Ólafur Örn Svansson 19 58%
Andri Árnason 18 56%
Jóhannes Bjarni Björnsson 16 50%
Guðjón Ármannsson 21 45%
Sigurbjörn Þorbergsson 16 44%
Ragnar Aðalsteinsson 14 43%
Sigurður G. Guðjónsson 27 33%
Hjörleifur B. Kvaran 19 32%
Reimar Pétursson 24 31%
Tómas Jónsson 16 31%
Daníel Isebarn Ágústsson 16 29%
Steingrímur Þormóðsson 17 29%
n DV tekur út árangur lögmanna fyrir Hæstarétti n Konur fáar en sannfærandi n Einstaklingar eiga erfitt uppdráttar
fyllilega sanngjörn enda mæta
lögmenn fyrir dóminn með mis-
góðan málatilbúnað. Þá gefa
niðurstöðurnar vísbendingu um
að það skiptir máli hver sé um-
bjóðandinn. Þannig sést vel að
ríkinu og bönkum vegnar yfirleitt
vel fyrir Hæstarétti en einstak-
lingar eiga þar undir högg að
sækja.
Litlar breytingar í sakamálum síðustu árin
n Um einn af hverjum tíu sýknaðir að jafnaði n Fangelsisdómar að meðaltali 16 mánuðir
D
V kannaði nánar niðurstöð-
ur áfrýjaðra sakamála fyrir
Hæstarétti á síðustu þrem-
ur árum og komst að því að
í þeim málaflokki hefur lítið breyst.
Fyrr hefur verið nefnt að dóm-
um í áfrýjuðum sakamálum fækk-
aði umtalsvert á milli áranna 2017
og 2016, þeir voru 92 árið 2016 en
fækkaði niður í 66 árið 2017, og
hafa ekki verið færri síðan árið
2002. Hlutfallslega hafa niðurstöð-
ur málanna hins vegar haldist mjög
svipaðar síðustu þrjú árin.
Eins og fyrri ár var oftast sakfellt
fyrir kynferðisbrot og líkamsárásir
árið 2017 en þeim málum fækkaði
þó hlutfallslega nokkuð frá árinu
2016. Þyngd fangelsisdóma hefur
einnig haldist stöðug síðustu þrjú
árin en að meðaltali þurftu sakfelld-
ir einstaklingar að þola 16 mánaða
dóm árið 2017, 13 mánuði ef tekið
er tillit til skilorðsbundinna dóma.
Rúmlega 1 af hverjum 10 sýknaðir
Almennt er það svo í sakamálum að
líkur standa til að hinn ákærði verði
sakfelldur enda skal ákæruvaldið
fylgja þeirri meginreglu að leggja
aðeins fram ákæru ef það telur meiri
líkur en minni á að sakfelling náist
fram. Af þeim sökum meðal annars
snúast störf lögmanna í sakamálum
oft um að ná fram sem vægastri refs-
ingu fyrir hinn ákærða fremur en að
krefjast eða berjast fyrir sýknu.
Stundum er þó tilefni fyrir hina
ákærðu að krefjast sýknu og sé
tekið mið af niðurstöðum dóma
Hæstaréttar síðustu árin tekst rúm-
lega einum af hverjum tíu að knýja
fram sýknu fyrir réttinum. Eins og
sést í töflu hér á síðunni hefur það
hlutfall haldist nokkuð jafnt síð-
ustu þrjú ár. Á þessu tímabili hefur
Hæstiréttur oftast sýknað í málum
varðandi kynferðisbrot (8 mál) en
þar á eftir koma umferðarlagabrot
(6 mál) og líkamsárásir (5 mál).
Frelsarinn Kristján Stefánsson
Alls hafa 42 einstaklingar verið
sýknaðir af kröfum ákæruvaldsins
fyrir Hæstarétti síðustu þrjú árin.
Verjendur þeirra voru 33 talsins
og því hefur sumum lögmönnum
auðnast að ná fram sýknu oftar en
einu sinni á þessu tímabili. Lög-
maðurinn Kristján Stefánsson hef-
ur verið þar fremstur í flokki með
5 sýknudóma á ferilskránni. Sá ár-
angur lítur enn betur út þegar litið
er til þess að Kristján flutti alls 15
sakamál fyrir Hæstarétti á þessu
tímabili og náði því fram sýknu í
þriðja hverju máli.
Rétt er að árétta að þessi úttekt
einskorðast við þau sakamál sem
hafa ratað fyrir Hæstarétt en utan
þeirra er aragrúi sakamála sem
hafa verið dæmd í héraðsdómi og
ekki verið áfrýjað. Úttektin sýnir því
ekki heildarmynd af sakamálum
almennt, til dæmis varðandi hvers
eðlis málin almennt eru, hversu
þungar refsingar eru dæmdar að
jafnaði eða hversu oft ákærðir eru
sýknaðir. Úttektin varpar aðeins
ljósi á hvaða viðfangsefnum hef-
ur verið beint til Hæstiréttar að
glíma við á þessu sviði síðustu árin
og einnig hvað tölfræðin og sagan
segir okkur um hversu líklegt er að
ákærðir hljóti náð fyrir dómurum
Hæstaréttar, skyldu þeir áfrýja mál-
um til réttarins.
Allar upplýsingar og tölur
sem koma fram í þessari úttekt
voru sóttar og safnað saman af
heimasíðu Hæstaréttar.
Þau brot sem oftast var sakfellt
fyrir í Hæstarétti árin 2015–2017
Brot Fjöldi Hlutfall
Kynferðisbrot 38 19%
Líkamsárás 38 19%
Umferðarlagabrot 18 9%
Fíkniefnalagabrot 11 5%
Brot gegn valdstjórninni 9 4%
Umboðssvik/markaðsmisnotkun 9 4%
Skattalagabrot 8 4%
Þjófnaður 8 4%
Hafa náð fram sýknu
í tveimur málum eða
fleiri árin 2015–2017
Lögmaður Sýknur
Kristján Stefánsson 5
Björgvin Jónsson 2
Guðmundur Ágústsson 2
Jón Egilsson 2
Sveinn Andri Sveinsson 2
Þorsteinn Einarsson 2
Niðurstöður áfrýjaðra sakamála 2015–2017
2015 2016 2017 Öll árin
103 mál 92 mál 66 mál 261 mál
78 sakfellingar (76%) 71 sakfelling (77%) 50 sakfellingar (76%) 199 sakfellingar (76%)
12 sýknudómar (12%) 9 sýknudómar (10%) 8 sýknudómar (12%) 29 sýknudómar (11%)
13 ómerkingar (13%) 8 ómerkingar (9%) 8 ómerkingar (12%) 29 ómerkingar (11%)
4 sekt/sýkna (4%*) 4 sekt/sýkna (2%)
*Tilfelli þar sem ákærðu voru fleiri en einn og sumir voru sýknaðir en aðrir sakfelldir
Fangelsisrefsingar samkvæmt dómum 2015–2017
Ár Mánuðir Skilorðsbundnir Fjöldi sakfelldra Meðalrefsing Með skilorði
2015 1598 244 90 18 mánuðir 15 mánuðir
2016 1751 352 106 17 mánuðir 13 mánuðir
2017 918 151 57 16 mánuðir 13 mánuðir
Fjöldi mála og vinningshlutfall lögmanna 2015–2017
Ríkið og ríkisstofnanir
Reykjavík og
barnaverndarnefnd
Reykjavíkur
Ríkið, Samkeppnis-
eftirlitið, Íbúðalánasjóður
Bankar
VÍS, fyrirtæki
Lýsing
Vörður
Ríkið
Landsbankinn, fyrir-
tæki og einstaklingar
Landsbankinn
Fyrirtæki og
einstaklingar
Einstaklingar,
fyrirtæki, Sjóvá
Einstaklingar
Fyrirtæki og
einstaklingar
TM, fyrirtæki og
einstaklingar
Fyrirtæki og
einstaklingar
Einstaklingar og
fyrirtæki
Einstaklingar og
fyrirtæki
Einstaklingar
LÍN og fyrirtæki
Helstu umbjóðendur