Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Síða 23
Helgarblað 2. febrúar 2018 fréttir 23
Þ
orsteinn Halldórsson situr
í gæsluvarðhaldi grun-
aður um hrottalegt kyn-
ferðisofbeldi gegn ung-
lingspilti. Þorsteinn sætti áður
nálgunarbanni gagnvart öðrum
pilti vegna gruns um kynferðis-
brot og áreiti. Í gæsluvarðhalds-
úrskurði yfir Þorsteini kemur
fram að pilturinn segi hann hafa
borið fíkniefni í sig með þeim
afleiðingum að hann var nán-
ast meðvitundarlaus í viku. Þor-
steinn er formaður Baldurs, eins
af félögum Sjálfstæðismanna í
Kópavogi, um árabil og þá hef-
ur hann starfað á Sjónvarpsstöð-
inni Hringbraut þar sem hann
stýrði þáttum um klassíska tón-
list.
Þorsteinn hefur verið úr-
skurðaður í gæsluvarðhald til 16.
febrúar næstkomandi en aðal-
meðferð í málinu fer fram mánu-
daginn 5. febrúar. Í því máli er
Þorsteinn sakaður um að hafa
brotið ítrekað á piltinum í um
tvö ár og hófst meint brot þegar
drengurinn var fimmtán ára.
Þorsteinn er sakaður um að hafa
gefið piltinum peninga, tóbak og
farsíma og nýtt sér yfirburði sína
gagnvart honum til að hafa við
sig samræði og önnur kynferðis-
mök. Þá á Þorsteinn að hafa tek-
ið klámmyndir af piltinum og
geymt í læstri möppu í farsíma
sínum.
Sjálfstæðisflokkurinn
og klassísk tónlist
Þorsteinn hefur unnið fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn á undanförnum
árum. Eftir því sem DV kemst
næst hefur hann verið formaður
fyrrnefnds félags í Kópavogi frá
aldamótum. Til marks um það
skrifaði hann innsenda grein árið
2001 í Morgunblaðið þar sem
hann kom Árna Johnsen til varn-
ar og titlaði sig formann Baldurs.
Hann er enn skráður sem for-
maður félagsins á vef Sjálfstæð-
ismanna í Kópavogi. Þorsteinn
hefur verið tíður gestur á ýmsum
viðburðum Sjálfstæðismanna en
sumir muna ef til vill eftir Þor-
steini af sjónvarpsskjánum en
hann stýrði um hríð þættinum
Eðaltónar á Hringbraut þar sem
fjallað var um klassíska tónlist.
Lögregla vitni að týndri viku
Mál Þorsteins hefur vakið upp
mikinn óhug, ekki síst þar sem
lögreglu var tilkynnt þann 9. jan-
úar að Þorsteinn væri í fylgd með
piltinum. Fylgdi sögunni að Þor-
steinn væri ákærður fyrir kyn-
ferðisbrot gegn piltinum. Lög-
regla fór á vettvang og bókaði
að Þorsteinn hafi verið flóttaleg-
ur og reynt að fela sig. Lögreglu-
menn náðu þó tali af piltinum
sem var í mjög annarlegu ástandi
og sagði hann að þeir væru vinir.
Tveimur dögum síðar er
pilturinn sagður hafa rankað við
sér sárkvalinn eftir margra daga
rænuleysi og náð að kalla á hjálp.
Lögregla varð með öðrum orðum
vitni að því að drengurinn væri
týndur í viku en ekki var gripið til
aðgerða. Grímur Grímsson yfir-
lögregluþjónn sagði í samtali við
RÚV að lögregla hafi talið sig ekk-
ert geta aðhafst þar sem piltur-
inn væri sjálfráða. Þorsteinn var
handtekinn og svo færður í gæslu-
varðhald eftir að pilturinn náði að
flýja úr aðstæðunum.
Xanax og gras
Rétt er að undirstrika að ákæra
gegn Þorsteini snýr að meintum
brotum hans undanfarin ár gegn
piltinum en ekki því sem gerðist í
upphafi þessa árs. Pilturinn seg-
ir að þann 6. janúar síðastliðinn
hafi hann hitt Þorstein og taldi
allar líkur á því að Þorsteinn hafi
haft samband við hann. Piltur-
inn sagðist hafa verið í vímu og
að Þorsteinn hafi keypt handa
honum Xanax og gras eftir að þeir
hittust.
Því næst man pilturinn lítið
hvað gerðist vegna lyfjamóks en
sagðist muna eftir því að hafa
verið á hóteli og hafa séð andlit
Þorsteins í litum. Hann sagðist
hafa sent móður sinni skilaboð
á Snapchat um að sækja sig eft-
ir að Þorsteinn sagði honum að
þeir hafi stundað kynlíf en hann
mundi ekki eftir því og hafi því
verið rænulaus meðan á því stóð.
Vikan „eins og ein mínúta“
Pilturinn sagði að Þorsteinn hefði
beðið hann um að falla frá mál-
inu sem hann hafi verið ákærð-
ur fyrir. „Brotaþoli hafi sagt að
hann hefði verið nánast með-
vitundarlaus í viku og dagarnir
hefðu bara týnst hjá honum og í
raun hafi þetta verið bara eins og
ein mínúta. Brotaþoli kvaðst ekki
bera neinar tilfinningar til kærða
og hafi aðeins sótt í hann vegna
vímuefnafíknar sinnar,“ segir í
gæsluvarðhaldsúrskurði.
Við skýrslutöku bar Þorsteinn
fyrir sig að hann og pilturinn
væru raunar kærustupar. Hann
sagði að þeir hefðu stundað mök í
um sex skipti að frumkvæði pilts-
ins. „Kvað hann kynlífið hafa far-
ið fram með rólegum og ljúfum
hætti,“ segir í dómi en Þorsteinn
er grunaður um hrottalegt kyn-
ferðisofbeldi eins og áður segir.
Einnig er Þorsteinn grunaður um
kynferðisbrot gegn öðrum pilti. n
Grunaður um hrotta-
leGt kynferðisofbeldi
n Þorsteinn Halldórsson ákærður fyrir kynferðisbrot gegn einum pilti
og í rannsókn vegna annars n Sendi móður sinni skilaboð á Snapchat
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
„Brotaþoli
hafi sagt að
hann hefði verið
nánast meðvit-
undarlaus í viku
og dagarnir hefðu
bara týnst hjá
honum og í raun
hafi þetta verið
bara eins og ein
mínúta
Skilaboð á Snapchat
Drengurinn sendi móður sinni skilaboð og b
að hana að sækja sig.
Í gæsluvarðhaldi
Þorsteinn bar fyrir sig að
hann og pilturinn væru
raunar kærustupar.