Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Síða 24
24 umræða
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
aðalnúmer: 512 7000
auglýsingar: 512 7050
ritstjórn: 512 7010
Heimilisfang
Kringlan 4-12, 4. hæð
103 Reykjavík
Sandkorn
Helgarblað 2. febrúar 2018
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Aðalritstjóri og ábyrgðarmaður: Kristjón Kormákur Guðjónsson
Aðstoðarritstjóri: Einar Þór Sigurðsson Ritstjóri: Sigurvin Ólafsson Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
fréttaskot
512 7070
abending@dv.is
Skyndilegur áhugi á
kynjajafnrétti
Sjálfstæðismenn vinna nú
hörðum höndum við að verja
Sigríði Andersen. Nú þegar ekki
er hægt að segja að allt sem
hún hafi gert sé löglegt er sagt
að hæfisnefnd dómara tryggi
ekki sjálfstæði dómstóla, það
hafi í raun verið Alþingi sem
tók ákvörðunina og að ráðherr-
ann hafi nú verið að tryggja
rétt kynjahlutföll í Landsrétti.
Vissulega er það rétt að hæf-
isnefndin valdi fimm konur
en þegar ráðherra var búin að
stokka bunkann voru konurnar
orðnar sjö. Eins mikið og hægt
er að hrósa Birni Bjarnasyni og
Páli Vilhjálmssyni fyrir þennan
skyndilega áhuga á kynjajafn-
rétti þá duga þau rök skammt
því þau útskýra ekki hvers
vegna tveir karlar voru látnir
fjúka fyrir tvo aðra karlmenn.
Já og amen
Öll spjót standa nú á Sigríði
Andersen dómsmálaráðherra.
Hæstiréttur dæmdi henni í
óhag í Landsréttarmálinu.
Stjórnarandstaðan hamast á
henni og saka hana um ger-
ræðisleg vinnubrögð. Stjórn-
skipunar- og eftirlitsnefnd fjall-
ar nú um málið og þingmenn
Vinstri grænna neita að tjá sig
á meðan þeir bíða eftir niður-
stöðunni. Það styttist því í van-
trauststillögu af hálfu stjórn-
arandstöðunnar sem getur
höggvið nokkra Vinstri græna
af meirihlutanum. Hvernig
sem fer þá afhjúpar málið veik-
leika Alþingis sem samþykkir
allt sem ráðherra dettur í hug,
ef stjórnarþingmenn hlaupast
undan er formönnum sínum
að mæta.
Nú þurfum við að vanda okkur
Þ
að er eins og menn fatti
ekki að fíkill hættir ekkert
að vera fíkill þó að honum
sé gert erfitt fyrir að fá efn-
in,“ segir Stefanía Óskarsdóttir í
viðtali við DV. Stefanía er heppin
að vera á lífi. Hún var 15 ára barn
þegar hún prófaði fyrst fíkniefni og
eftir því sem árin liðu jókst neyslan
og efnin urðu harðari. Undir það
síðasta var hún orðin háð heróíni.
Ljóst var að Stefanía átti ekki mik-
ið eftir þegar henni var bjarg-
að fyrir tæpum tveimur árum.
Á þessu ári hafa fimm einstak-
lingar látist vegna ofneyslu fíkni-
efna hér á landi. Fimm á ein-
um mánuði. Allt árið í fyrra dóu
32 einstaklingar undir fertugu af
sömu sökum. Ef fer sem horfir
gætu 60 manns dáið á þessu ári.
Við verðum að horfast í augu við
það að fíkniefnavandinn er ekki
að minnka. Í vikunni var greint frá
því að Svandís Svavarsdóttir heil-
brigðisráðherra ætlaði að skipa
starfshóp til að stemma stigu við
ofneyslu verkja- og geðlyfja. Eitt
af viðfangsefnunum verður að
skoða hvort ákveðnir læknar ávísi
óeðlilegu magni af lyfjum til sjúk-
linga. Þá vill Lyfjastofnun tak-
marka ópíóíða í umferð og hverj-
ir ávísa þeim. Þetta er allt gott og
gilt en því miður er vandinn stærri.
Eins og Stefanía bendir á dugar
skammt að leggja höfuðáherslu á
að takmarka aðgengi að lyfseðils-
skyldum lyfjum. Fíklar munu leita
í önnur efni. Ópíóíðafaraldurinn
í Bandaríkjunum byrjaði svona:
Læknar ávísuðu miklu magni
sterkra verkjalyfja til sjúklinga
sem ánetjuðust þeim. Afleiðingin
var sú að margir leituðu í ódýrari
og harðari efni, heróín til dæmis.
Það er mikil ábyrgð sem hvílir
á herðum íslenskra yfirvalda
varðandi næstu skref. Eigum
við að fara portúgölsku leiðina,
afglæpavæða alla fíkniefnaneyslu
og líta á neysluna sem
heilbrigðistengda áskorun? Það
eru margir sem hallast að því.
Portúgal hefur náð athyglisverðum
árangri; á tæpum 20 árum hefur
heróínneytendum fækkað úr 100
þúsund í 25 þúsund og á sama
tíma hefur dauðsföllum fækkað
um 85 prósent. Hér verður ekki
lagt mat á það hvaða leið skuli fara.
Eitt er þó víst að íslensk yfirvöld
þurfa að vanda verulega til verka
og jafnvel hlusta á fólk sem hefur
reynsluna, fólk eins og Stefaníu.
Það að fimm ungmenni í blóma
lífsins hafi dáið á einum mánuði
er fimm ungmennum of mikið. n
„ Íslensk yfirvöld
þurfa að vanda
verulega til verka og
jafnvel hlusta á fólk sem
hefur reynsluna
Spurning vikunnar Á að leyfa auglýsingar á áfengi, tóbaki og veðmálafyrirtækjum?
„Nei. Ekki auglýsingar á áfengi og tóbak.“
Júlía Kelevi
„Já, já. Fólk á að fá að taka ákvarðanir sjálft.“
Telma Jónsdóttir
„Já. Frelsi einstaklingsins.“
Þór Adam Rúnarsson
„Nei, ég vann lengi sem skipstjóri á togurum og sá
hversu skaðlegt áfengi er.“
Kristján Andrésson
S
jónvarpsauglýsingar eru
gjarnan þær auglýsingar
sem eru dýrastar í saman-
burði við aðrar tegundir
auglýsinga í fjölmiðlum. Það þýð-
ir að aðrar tegundir auglýsinga
þurfa að vera verðlagðar í sam-
ræmi við og gjarnan lægra en sú
tegund sem leiðir markaðinn.
Eðli málsins samkvæmt þá mun
sá fjölmiðill sem hefur yfirburða-
stöðu á sjónvarpsmarkaði og nær
þannig bestri dekkun og tíðni í
auglýsingum, verða leiðandi í
allri verðmyndun á markaðnum.
Í okkar tilfelli er um RÚV að ræða.
Dekkun RÚV fer nærri 90%
í hverri viku, sem er sannköll-
uð yfirburðastaða. Verðskrá RÚV
er þannig líkleg til að mynda
þak á verðlagningu á auglýsinga-
markaði. Einkareknu miðlarnir
hljóta því að standa frammi fyrir
því að erfitt er að verðleggja aðr-
ar tegundir auglýsinga hærra og
nýsköpun í tekjuöflun fjölmiðla
á erfiðara uppdráttar í skugga
dreifingarmáttar RÚV. Það er auð-
veldara fyrir auglýsandann að fá
allt sem hann vill fyrir lítið fé hjá
RÚV.
Þær auglýsingatekjur sem núna
renna til RÚV munu sjálfsagt ekki
skila sér nema að hluta til annarra
fjölmiðla ef ákveðið verður að fara
þess leið. Erlendir keppinautar
munu þar taka sinn skerf og meira
mun renna til nýrri gerða auglýs-
inga og efla nýbreytni á því sviði.
Þarna er þó vert að hafa í huga að
Ísland hefur ekki orðið fyrir sömu
áhrifum erlendis frá og nágranna-
lönd okkar. Það má meðal annars
rekja til þess hversu lítið okkar
málsvæði er. Auglýsingaveitur eins
og Google hafa ekki farið af fullum
krafti inn á markaðinn hér og lýs-
ir sér meðal annars í því að Google
birtir ekki auglýsingar á vefsíð-
um sem skrifaðar eru á íslensku.
Við eigum þess kost að nýta okk-
ur þetta forskot og sjá til þess að
íslenskir fjölmiðlar nái vel að fóta
sig í þessari samkeppni, án þess að
búa við ójafna stöðu á samkeppn-
ismarkaði innanlands.
A
uglýsingar munu alltaf
rata til þeirra sem þurfa
á upplýsingunum að
halda. Auglýsingabann
hjá RÚV mun því ekki færa aug-
lýsingafé til annarra sjónvarps-
stöðva ef auglýsandi vill ná til
þeirra sem horfa á RÚV. Eins og
fram kemur í nýrri skýrslu um
rekstrarumhverfi einkarekinna
fjölmiðla má finna nýleg dæmi
frá Frakklandi og Spáni þegar
auka átti markaðshlutdeild
og tekjur einkarekinna sjón-
varpsstöðva með því að skerða
verulega eða taka alfarið ríkis-
fjölmiðla af auglýsingamark-
aði. Orðrétt segir í skýrslunni:
„Reynslan frá þessum ríkjum
sýnir að þetta virtist ekki hafa
haft þau jákvæðu áhrif á einka-
reknu sjónvarpsstöðvarnar sem
til var ætlast.“
Hröð þróun hefur verið
undanfarin ár í tilfærslu auglýs-
ingafjár frá hefðbundnum miðl-
um, eins og sjónvarpi, yfir á netið.
Undanfarin tvö ár hefur færsla
auglýsingafjár verið sérstaklega
mikil til erlendra netmiðla eins
og Facebook og Google.
Það er mat sérfræðinga sem
vinna við að skipta niður aug-
lýsingafé að ef RÚV færi af aug-
lýsingamarkaði myndi sú leið
að auglýsa í sjónvarpi skerð-
ast mikið þar sem miklar lík-
ur eru á að það fé sem annars
hefði farið til RÚV endi að stór-
um hluta hjá erlendum netmið-
lun. Breytingin myndi hugsan-
lega hafa þau áhrif að sjónvarp
breytist úr leiðandi miðli í jaðar-
miðil fyrir auglýsendur á fáum
árum. Þar af leiðir að það sem
fjölmiðlar og almenningur fær út
úr breytingunni er aukinn kostn-
aður við rekstur RÚV fyrir skatt-
greiðendur, rekstur annarra sjón-
varpsstöðva gæti jafnvel versnað
til lengri tíma litið auk þess sem
mun meira af birtingarfé færðist
frá íslenskum fjölmiðlum til er-
lendra.
Elín Helga Sveinbjörnsdóttir, formaður Sambands íslenskra auglýsingastofa Soffía Haraldsdóttir, stjórnandi og ráðgjafi hjá First Class
Með á MóTi
Leiðari
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Með og á MóTi – RÚV á AuglýSiNgAmARkAði