Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Page 26
26 sport Helgarblað 2. febrúar 2018
10 valkostir sem KSÍ gæti
skoðað ef Heimir hættir
Þ
að eru líkur á að Heimir
Hallgrímsson muni láta
af störfum sem lands-
liðsþjálfari Íslands eft-
ir heimsmeistaramótið í Rúss-
landi. Heimir hefur beðið KSÍ
um að bíða með allar viðræð-
ur um nýjan samning á meðan
hann veltir hlutunum fyrir sér.
Það er því ljóst að KSÍ þarf að
byrja að velta hlutunum fyrir sér
ef Heimir ákveður að kveðja eft-
ir HM.
Heimir tók við landsliðinu árið
2011 og var þá aðstoðarþjálfari
Lars Lagerbäck en hefur frá 2013
stýrt liðinu, fyrst með Lagerbäck
og síðan einn sem aðalþjálfari.
Heimir hefur vakið mikla athygli
sem þjálfari og því ljóst að mörg
stærri lið hafa áhuga á að krækja
í hann. Möguleiki er á að Heimir
verði áfram en ef hann fer, hver á
að taka við? Hér má sjá tíu valkosti
sem gætu komið til greina. n
Heimir Hallgrímsson hefur ekki ákveðið hvort hann vilji halda áfram
með íslenska landsliðið eftir HM. KSÍ þarf að skoða aðra kosti á meðan.
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is Louis
van Gaal
Hollendingurinn knái hefur
verið án starfs frá sumrinu
2016. Hann vill ekki binda sig of
mikið og því gæti starf landsliðs-
þjálfara heillað Van Gaal. Hann hafn-
aði þjálfun belgíska landsliðsins því hann
vildi halda launum sínum frá Manchester
United. Blaðamannafundir með Van Gaal
yrðu mikil skemmtun.
Rúnar Kristinsson
Einn af líklega tveimur íslensku þjálfurunum sem kæmu til
greina í dag til að taka við landsliðinu. Hann er leikjahæsti
leikmaður í sögu landsliðsins og hefur náð ágætis árangri
sem þjálfari. Rúnar tók við KR í vetur og því er ekki líklegt
að hann hoppi frá borði strax, það væri samt erfitt fyrir
Rúnar að afþakka starf landsliðsþjálfara.
Sven-Göran Eriksson
Sænskur refur sem hefur séð allt í fótboltanum.
Eriksson hefur þjálfað þrjú landslið en þekktastur er
hann fyrir starf sitt með enska landsliðið. Eriksson hef-
ur eytt síðustu árum í Kína en er án starfs núna og þyrfti
að sætta sig við lægri laun en hann á að venjast.
Helgi Kolviðsson
Ekki líklegur kostur en Helgi þekkir liðið út og inn eftir samstarf sitt við Heimi síðasta
eina og hálfa árið. Gott orð fer af Helga innan leikmannahóps liðsins en hann er
skipulagður og góður að lesa andstæðinga sína. Þýski aginn sem er í blóði hans gæti
hentað landsliðinu vel.
Gary Neville
Eftir að hafa verið aðstoðarþjálf-
ari Englands í nokkur ár hefur
Neville reynslu úr alþjóðlegum
fótbolta. Hann hefur mikla
reynslu sem leikmaður og ætti að
koma inn með mikla reynslu til
KSÍ. Neville hefur hins vegar sagt
að hann sé ekkert sérstaklega
spenntur
fyrir því að
vinna aftur við
þjálfun.
Thierry
Henry
Langar mikið að fara á fullt í
þjálfun og er í dag aðstoðar-
þjálfari landsliðs Belgíu. Það
gæti verið gott skref fyrir
hann að taka við íslenska
landsliðinu og sanna sig
sem aðalþjálfari. Henry
átti magnaðan feril sem
leikmaður en hvort hann
sé efni í góðan þjálfara á
eftir að koma í ljós.
Rene Meulensteen
Kannski ekki þekktasti maðurinn í bransanum en
Meulensteen hefur gríðarlega reynslu. Hann starf-
aði sem aðstoðarmaður Sir Alex Ferguson um
nokkurt skeið og hefur síðan þá farið víða. Hann er
sagður öflugur þjálfari og gæti verið góður kostur
með íslenskan aðstoðarmann sér við hlið.