Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Page 27
27Helgarblað 2. febrúar 2018
Sum fyrirtæki senda bara
starfsmann út í búð.
Það kostar ekkert því hann er
hvort sem er í vinnunni
Ávextir alla daga vinnuvikunnar
kosta um 550 kr. á mann.
Hamborgaratilboð kostar hátt
í 2.000 kallinn, einu sinni.
Ávaxtabiti um miðjan morgun
eða um nónið, getur bjargað
deginum þegar starfsmenn eru
orðnir orkulausir. Vinnuveitendur
geta hagnast nokkuð á því.
Þegar fyrirtæki eru í áskrift hjá
Ávaxtabílnum, þurfa þau aldrei
að muna að panta – ávextirnir
koma bara.
Ef fyrirtæki í áskrift vill breyta
pöntun sinni, er hún kölluð fram
á heimasíðu okkar, breytt og send
inn – gæti ekki verið einfaldara.
Fyrirtæki í áskrift
fá 20% afslátt af
veislubökkum okkar.
Starfsmenn Múlalundar
sjá um alla tiltekt ávaxtanna
fyrir Ávaxtabílinn og fá svo
að sjálfsögðu ávexti upp á borð
hjá sér alla vikuna
ódýr
Nú eru
góð ráð
www.avaxtabillinn.is • avaxtabillinn@avaxtabillinn.is • 517 0110
Ávaxtaðu betur
10 valkostir sem KSÍ gæti
skoðað ef Heimir hættir
Lars Lagerbäck
Væri án efa kostur fyrir KSÍ að reyna við ef Heimir ákveður að
halda á önnur mið. Lagerbäck þekkir liðið út og inn og fær ótrú-
lega virðingu í leikmannahópnum og innan veggja KSÍ. Lagerbäck
er í dag þjálfari norska landsliðsins og því hungrar hann enn í að
vinna við þjálfun. Er mögulegt að fá Lagerbäck til liðs við íslenska
landsliðið á ný?
Morten Olsen
Var í 15 ár þjálfari danska landsliðsins en hefur ekki verið í starfi í tæp þrjú ár. Ótrúleg reynsla
hans af þjálfun landsliða gæti komið sér vel fyrir íslenska liðið. Olsen er mikils virtur í heimi
þjálfunar enda ekki oft sem sami þjálfari er með landslið í 15 ár. Það virkaði að láta Svía stýra
liðinu en hvernig yrði það með Dana?
Ólafur
Kristjánsson
Líkt og Rúnar er Ólafur mættur
heim til að þjálfa en hann tók
við FH í fyrrahaust eftir að
hafa sagt upp störfum hjá
Randers í Danmörku. Ólafur
hefur gríðarlega þekkingu
á leiknum og fáir þjálfarar
frá Íslandi jafn góðir að lesa
andstæðinga sína. Hann
gæti verið góður kostur
ef KSÍ horfði til íslenskra
þjálfara.