Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Síða 28
28 Helgarblað 2. febrúar 2018
Gamla
fréttin
Vísir, október, 1978Tímavélin
Sædýrasafnið
D
agblaðið greindi frá því
fimmtudaginn 29. janúar
árið 1976 að rafvirki hjá Lýsi
og mjöli í Hafnarfirði hafi
mætt ógnvænlegu dýri þegar hann
klifraði upp rafmagnsrennu. Dýr-
ið sperrti upp hárin og rafvirkinn
forðaði sér niður enda taldi hann
að um illvígan ref væri að ræða.
Hann talaði við samstarfsmann
sinn í verksmiðjunni sem sótti
byssu og skaut dýrið. En þá kom í
ljós að þetta var alls ekki refur.
Skoffín í verksmiðju Lýsis og mjöls
Félagarnir stóðu nú á gati og köll-
uðu til blaðamann. Að sögn þeirra
virtist höfuð dýrsins vissulega
vera af ref en búkurinn af ketti og
fæturnir af apa. Að öllum líkind-
um hafði dýrið verið í verksmiðj-
unni í einhvern tíma. Starfsfólkið
hafði orðið vart við undarleg fót-
spor og bæði húskötturinn og allar
rotturnar voru flúnar.
Leitað var til Náttúrufræðistofn-
unar Íslands en þar fengust engin
handbær svör strax. Samkvæmt
stofnuninni var sennilega um að
ræða hálfvaxinn ref, útileguhund
eða skoffín. Skoffín er þjóðsagna-
vera, sögð afkvæmi refs og kattar-
læðu.
Slapp úr einangrun
Degi seinna upplýstist gátan því
um var að ræða þvottabjörn sem
stóð til að vista í Sædýrasafninu
í Hafnarfirði. Sápugerðin Frigg
keypti slíka birnina af Dýragarðin-
um í Kaupmannahöfn og flutti þá
inn í nóvember árið 1975. Tveir
þeirra komust í Sædýrasafnið en
einn slapp úr einangrun í fiskihúsi
í Hvaleyrarholti.
Lögreglunni hafði verið gert
viðvart um flótta bjarnarins og
til hans hafði sést við Hafnar-
fjarðarhöfn innan um stórgrýti. Í
nokkur skipti hafði verið reynt að
handsama bangsa en hann var of
snöggur. Á einhverjum tímapunkti
fann hann skjól í verksmiðju Lýs-
is og mjöls og hafði þar greinilega
eitthvert æti. Þegar hann var skot-
inn var hann þó orðinn nokkuð
horaður enda hafði hann aldrei
þurft að sjá um sig sjálfur og auk
þess á framandi slóðum um miðj-
an vetur.
Þvottabirnir eru alætur og geta
virst illvígir séu þeir hræddir. Þeir
eru þó í flestum tilvikum sára-
meinlausir. n
Keiko
Keiko var og er, ásamt Björk
og Eiði Smára Guðjohnsen,
einn þekktasti Íslendingurinn.
Árið 1976 hófust háhyrninga-
veiðar og -sala sem fjáröfl-
unarleið fyrir Sædýrasafnið.
Keiko var veiddur árið 1979
við Reyðarfjörð og gefið nafnið
Siggi. Árið 1982 var hann seld-
ur til sædýragarðsins Marin-
eland við Niagara-fossa. Um
tíma var hann í Mexíkó en
öðlaðist heimsfrægð árið 1993
þegar hann kom fram í kvik-
myndinni Free Willy. Keiko
vakti mikla fjölmiðlaathygli
um allan heim og hafið var
átak til að sleppa honum laus-
um. Það var gert árið 2002 og
dó hann við Noregsstrendur
rúmu ári síðar úr lungnabólgu.
Ragnhildur Jónsdóttir, sem
vann með háhyrningum í Sæ-
dýrasafninu, segir: „Að sleppa
honum var auðvitað grimmd.
Hann hefði átt að fá að vera í
dekri og umönnun og fá sína
feitu síld á sínum tíma.“
Goldie
Einn af merkustu gripum Sæ-
dýrasafnsins var stór og mikil
kyrkislanga af tegundinni Boa
Constrictor sem fékk nafnið
Goldie. Ragnhildur Jónsdótt-
ir segir að faðir sinn, Jón Kr.
Gunnarsson safnstjóri, hafi
sótt Goldie til New York en þar
hafi hún verið í einkaeigu. Jón
flutti slönguna í ferðatösku í
handfarangri til baka og var
með uppáskrifað skjal um inni-
haldið. „Tollararnir báðu um
að fá að kíkja í töskuna. Pabbi,
sem var svolítill prakkari, sagði
þeim að þetta væri kyrkislanga
en þeim væri velkomið að
kíkja. Því þorðu þeir náttúrlega
ekki.“ Goldie dvaldi á heimili
fjölskyldunnar í Skúlaskeiði á
meðan verið var að smíða búr.
Ragnhildur segist hafa strítt
saumaklúbbsvinkonum móður
sinnar með slöngunni. „Það var
eins gott að engin var hjartveik
þarna.“
M
argir eiga góðar minn-
ingar frá Sædýrasafn-
inu í Hafnarfirði, dýra-
garði sem starfræktur
var í nærri tvo áratugi þar sem
nú er golfvöllurinn Keilir. Jón Kr.
Gunnarsson kom Sædýrasafninu
á laggirnar og stýrði því alla tíð
en þar starfaði einnig kona hans,
Ragnhildur Guðmundsdóttir, og
fjögur börn þeirra. Eitt af þessum
börnum, Ragnhildur Jónsdóttir
myndlistarkona, ræddi við DV um
þessi merkilegu ár.
Ævintýrið byrjar
Ragnhildur segir að ævintýrið hafi
byrjað með fiskasýningu Hjálp-
arsveitar skáta í Hafnarfirði árið
1964. Þeir seldu ekki flugelda á
þeim tíma og því var þessi fjár-
öflunarleið farin og gekk vel. Sjó-
menn komu með fiska sem sýnd-
ir voru lifandi í búrum og nokkur
önnur dýr svo sem trönu sem
fangaðist við björgunarstörf. Jón
Kr. Gunnarsson, skipstjóri og
bókaútgefandi í Rauðskinnu, var
virkur í hjálparsveitinni og fékk
hann þá hugmynd að koma alvöru
dýragarði á laggirnar. Sumir töldu
hann hálfbilaðan að láta sér detta
þetta í hug en engu að síður opn-
aði Sædýrasafnið árið 1969.
Það var áhugamannafélag sem
hélt utan um safnið með skipaðri
stjórn en Jón var framkvæmdastjóri
og sá um daglegan rekstur. Safnið
var reist á berangri neðan við Holtið
í Hafnarfirði. Til að byrja með var
það í ætt við fiskasýninguna. Þar
voru sjávardýr í búrum og sel-
ir í laug. Skömmu eftir opnunina
fékk safnið að gjöf ísbjarnarhún
frá dýragarðinum í Kaupmanna-
höfn sem misst hafði móður sína á
Grænlandi. Ekki leið á löngu áður
en hrafnar og refir bættust í fánuna
og svo koll af kolli.
Jón var í góðum samskiptum
við dýragarða víða um heim en
mest við dýragarðinn í Kaup-
mannahöfn. Dýr voru keypt
af öðrum görðum en einnig
stunduð býtti, til dæmis voru
sendir út selir fyrir framandi
fugla. Einnig fékk safnið mik-
ið af litlum gæludýrum að gjöf
frá fólki sem hafði gefist upp á
þeim. Svo sem kanínur, páfa-
gauka og skjaldbökur. Þá voru
sum dýr veidd, til dæmis hrein-
dýr, og öðrum bjargað. Ragnhild-
ur minnist helst selkópanna sem
komu í misgóðu ásigkomulagi.
„Þeir voru kallaðir undanvill-
ingar, höfðu týnt mömmu sinni og
hefðu drepist í náttúrunni.“
Ljónsungar viðraðir í Hellisgerði
Fjölskyldan bjó í Skúlaskeiði við
Hellisgerði í Hafnarfirði og heim-
ilishaldið þar var líflegra en á
flestum öðrum stöðum. Dýr sem
ekki var hægt að vista í safninu
af einhverjum ástæðum höfðu
tímabundið athvarf þar. Ragnhild-
ur var á níunda ári þegar safnið
var opnað og framandi dýr byrj-
uðu að streyma inn á heimilið.
„Ætli við höfum ekki alltaf þótt
pínu skrítin. Það voru alltaf ljón
eða selir heima hjá mér. Það var
samt ábyggilega gaman að koma í
heimsókn. En ég pældi ekkert í því
af því að þetta var svo eðlilegt fyrir
mér, ég þekkti ekkert annað.“
Ljónsungarnir voru geymd-
ir í vaskahúsinu og voru gæf-
ir eins og hundar. Þeir fengu pela
og reglulega hreyfingu. „Við sett-
um hundaól á þá og fórum með
þá í göngutúr um Hellisgerði til
að viðra þá. Auðvitað yrði þetta
ekki gert í dag. Það er svo margt
sem maður þarf að skoða út frá
þessum tíma. Í dag myndi mað-
ur hafa ljón í stærra plássi og
maður myndi ekki fara með þau
í göngutúr í Hellisgerði. Þetta var
allt annar tími.“ Um helgar var far-
ið með ljónsungana í safnið og
gestirnir fengu að klappa, knúsa
og taka myndir af þeim.
Sjaldnast var hægt að fara í bað
í Skúlaskeiðinu því að þar var yfir-
leitt eitthvert dýr. Oft voru geymd-
ir kópar þar. „Við gáfum þeim
hakkaða síld, lýsi og rjóma.
Þetta var ógeðsblanda sem
þeim fannst æðisleg.“
Í eitt skiptið kom kona í
heimsókn í Skúlaskeiðið og
fór inn á bað. „Þá voru hund-
rað álar í baðkarinu og kon-
an æpti þegar hún sá þá. Hún
vissi að von var á öllu og hélt
jafnvel að þetta væru slöngur.
Við sjáum hana koma hlaup-
andi niður stigann og einn ál
á eftir henni.“
Heilsaði gestum á dönsku
Ótal tegundir áttu við-
komu á safninu. Þar voru
íslensku húsdýrin, hestar,
kálfar, kindur, geitur og fleira. Ís-
lenska geitin hafði verið í útrým-
ingarhættu á undanförnum ára-
tugum og Jón passaði upp á að
hafa sem flestar litategundirnar af
geitum. Þær voru einnig ein vin-
sælustu dýrin vegna skapgerðar
sinnar, sérstaklega hjá börnum.
Skutu dýr í verksmiðju: Refur, köttur eða api?
Þegar ljón, apar, kyrkislöngur
og ísbirnir bjuggu í Hafnarfirði
n Hugsjónastarf Jóns Kr. n Með ljón í labbitúr n Glerflaska felldi björninn
Þvottabjörn slapp úr einangrun og gerði starfsmönnum Lýsis og Mjöls í Hafnarfirði lífið leitt
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Ragnhildur Jónsdóttir Getur ekki hugsað sé
r
að vera án dýra.
Jón Kr. Gunnarsson
„Ég man eftir tveimur skipt-
um sem pabbi grét, þegar
ísbjörninn dó og þegar
sonarsonur hans dó.“
Ráðgáta Refur, köttur eða api?