Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Síða 32
Fermingar Helgarblað 2. febrúar 2018KYNNINGARBLAÐ
Það sem gerist þegar þú færð þjón í veisluna er að þú færð loksins tækifæri til að taka
fullan þátt í eigin veislu. Þú nýtur
þess betur að halda veisluna, verður
betri gestgjafi sem blandar geði við
gestina og skemmtir þér með þeim í
stað þess að vera sífellt að hlaupa til,
fylla á veitingar og þess háttar.
Fólk sem fær þjóna til sín í fyrsta
skipti upplifir mikinn létti og oftar en
einu sinni hefur það spurt mig hvers
vegna í ósköpunum því hafi ekki dottið
þetta fyrr í hug! Óðagotið og stressið
við veisluhald hverfur og allt verður
svo mikið skemmtilegra og þægi-
legra,“ segir Eva Rós Gústavsdóttir,
eigandi fyrirtækisins Veisluþjónar.
Eins og margar góðar viðskipta-
hugmyndir fæddist hugmyndin að
fyrirtækinu fyrir tilviljun:
„Þetta byrjaði vorið 2014 með því
að við vinkona mín fórum fyrir tilvilj-
un að þjóna saman í fermingarveislu
í Garðabæ. Ég hafði unnið eitthvað
áður sem þjónn á veitingahúsum en
okkur fannst þetta eitthvað svo nota-
legt verkefni að við byrjuðum að velta
því fyrir okkur hvort hægt væri að
gera meira af þessu. Við bjuggum til
Facebook-síðu þar sem við auglýstum
þjónustu okkar. Upp frá því vorum við
bókaðar í fyrstu brúðkaupsveisluna og
svo fór boltinn að rúlla. Veisluþjónarnir
mæta í alls konar veislur og sam-
kvæmi og við sendum einnig þjóna
út á land ef þess er óskað,“ segir Eva,
sem hefur m.a. tekið að sér brúð-
kaupsveislur fyrir erlenda ferðamenn,
árshátíðir, stórafmæli og ótal ferm-
ingarveislur svo fátt eitt sé nefnt.
Aðstoða líka við undirbúning og frá-
gang ef þess er óskað
Eva Rós rekur fyrirtækið ein í dag
en er með allt að 30 manns á sínum
snærum, lipra og góða þjóna, sem
vinna mismikið eftir því hvað álagið er
mikið hverju sinni.
En hvað er innifalið í þjónustunni?
„Þegar þjónustan er pöntuð býð
ég upp á ráðgjöf varðandi ýmislegt
sem tengist veisluhaldinu. Til dæm-
is uppsetningu, innkaup, hvað á að
kaupa inn mikið af gosi og hvað mikið
af mat o.s.frv. Þjónninn getur mætt
fyrr á veislustaðinn, hvort sem um
er að ræða heimahús eða veislusal,
og aðstoðað við að stilla upp. Síðan
er bara gengið í þau verk sem þarf
að vinna. Uppvask og frágangur er
sjálfsagt mál og við höfum meira að
segja staðið yfir pottum í miðri veislu.
Við þjónum síðan auðvitað til borðs ef
það á við, ef það er hlaðborð sjáum
við um að fylla á það, stillum upp kaffi
og því sem þar fylgir, og einfaldlega
gerum það sem þarf að gera svo að
gestgjafarnir fái notið sín.
Við aðstoðum einnig við frágang
eftir veislu ef þess er óskað. Um þetta
allt má semja fyrir fram en ég held
því líka alltaf opnu að fólk geti samið
á staðnum um hve lengi manneskjan
á að vera til aðstoðar.“
Það hljómar óneitanlega eins og
veisluþjónn geti gert fermingarveisl-
una skemmtilegri, ánægjulegri og
miklu auðveldari í framkvæmd!
Nánari upplýsingar
eru á Facebook-síðunni
www.facebook.com/veislutjonar/,
einnig má senda fyrirspurn á
netfangið veislutjonar@veislutjonar.is
eða hringja í síma 692 8981.
Láttu þjóninn um atið og vertu
þátttakandi í eigin veislu
VEiSlUÞjÓnaR