Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Page 37
FermingarHelgarblað 2. febrúar 2018 KYNNINGARBLAÐ
Þetta er heitasta fermingar-gjöfin,“ segir Magnús Þór Sveinsson, hjá Nítró Sport,
um vespurnar sem selst hafa afar
grimmt undanfarin ár. Um er að
ræða bensínvespur frá Znen og
rafmagnsvespur frá Z-Tech. Engin
réttindi þarf til að aka þessum
vespum, ökuþórarnir þurfa einungis
að vera orðnir 13 ára gamlir og bera
hjálm. Ekki þarf að skrá farartækin
frekar en reiðhjól en hámarkshraði
þeirra er 25 km/klst.
Að sögn Magnúsar eru foreldrar
ekki síður ánægðir með vespurnar en
eigendur þeirra, unglingarnir: „Þau
losna nefnilega við endalaust skutl
með krakkana í skólann, á æfingar og
fleira. Krakkarnir verða sjálfstæðari
og meira sjálfbjarga um sínar ferðir.
Sumir foreldrar þurftu áður jafnvel að
bregða sér úr vinnu til að skutla krökk-
unum en vespan bjargar þessu fyrir þá
í dag. Vespan er líka svo skemmtilegur
fararskjóti að unglingurinn kýs frekar
að fara á henni en biðja um far.“
Vespa er ekki dýr fjárfesting en
góðar rafmagnsvespur af gerðinni Z-
Tech kosta aðeins 149.000 krónur og
bensínvespurnar kosta 229.000 krón-
ur. Þrátt fyrir þenn-
an verðmun segir
Magnús að bens-
ínvespurnar séu
vinsælli: „Hleðslan
á rafmagnshjólinu
endist í um 25 kíló-
metra en sé bens-
íntankurinn á vespunni fylltur endist
hann í allavega 200 kílómetra. Hægt
er að hlaða rafmagnsvespuna með því
einfaldlega að stinga henni í venjulega
rafmagnsinnstungu en það tekur um
sex klukkustundir að fullhlaða hana. En
hins vegar, og það er held ég meginá-
stæða vinsældanna, er
bensínvespan einfald-
lega stærra og veg-
legra farartæki með 50
kúbíka fjórgengismótor.“
Báðar gerðirnar fást í þremur lit-
um; rauðum, hvítum og svörtum.
Nítro Sport hefur selt vesp-
ur í fjölda ára og segir Magnús að
reynslan af þeim sé feikilega góð.
Viðhald á þeim er til dæmis afar
lítið. „Núna vorum við að fá
nýja týpu af bensínvespu í
hús, Znen R8. Hún er með
LED-ljósum og rafmagns-
blöndungi en það síðar-
nefnda gerir hana umhverfi-
svænni,“ segir Magnús.
Nítró Sport er til húsa að
Urðarhvarfi 4 í kjallara. Þar eru auk
vespnanna meðal annars til sölu
vandaðir mótorhjólahjálmar sem
algjör skylda er að bera við aksturinn.
Þá er öll viðgerðarþjónusta varð-
andi vespurnar á staðnum. Opið er
virka daga frá kl.10 til 18. Sjá nánar
á Facebook-síðunni www.facebook/
nítró og nitro.is. Hesja, Glerárgötu 36,
er umboðsaðili Nítró á Akureyri.
Draumafarartæki
fermingarbarnsins
VESpUR FRá NíTRO SpORT
HAFA SLEGið RæKiLEGA í GEGN
Mi iceland er viðurkennd-ur endursöluaðili á ís-landi fyrir kínverska
snjalltækjaframleiðandann
Xiaomi, Mi. Þó að merkið sé
ekki ýkja þekkt eru tækin
gífurlega vinsæl. „Mi hafa
verið að rokka frá 3. upp
í 5. sæti sem stærstu
farsímaframleiðendur
í heiminum síðustu ár.
Þeir hafa átt Asíumark-
aðinn nokkurn veginn frá
byrjun en í seinni tíð eru þeir
einnig að verða mjög stórir í
Evrópu og Bandaríkjunum,“ segir
Örvar Blær Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Mi iceland.
Mi framleiðir miklar gæða-
vörur en þar sem merkið er
ekki jafnþekkt og til dæmis
Samsung eða Apple þá eru
þessar vörur yfirleitt mun
ódýrari en þekktari merki í
sama gæðaflokki: „Þú ert að
fá þrefalt meiri gæði miðað
við annað tæki í sama verð-
flokki,“ segir Örvar. Mi-farsím-
ar nota Android-stýrikerfið en
eru oft kallaðir Apple of China
enda er hönnunin mjög í anda Apple.
Mi-vörurnar eru afskaplega hag-
stæðar og heppilegar fermingargjafir.
Snjallsímarnir eru í nokkrum verðflokk-
um og hægt er að fá mjög góðan snjall-
síma fyrir aðeins um 25.000 krónur.
Með slíkum síma er hægt að gera allt
sem maður notar hefðbundinn snjall-
síma í, rafhlaðan er endingar-
góð og myndavélin er sérlega
góð, sem er mjög eftirsóttur
kostur í snjallsímum í dag.
Þá má nefna hinn vin-
sæla farsíma Mi Max 2 sem
er svo stór að hann minnir
helst á spjaldtölvu þar sem skjárinn
er 6,44 tommur. Þessi sími sker sig frá
öðrum á markaðnum fyrir einstak-
lega endingargóða og stóra rafhlöðu.
Þetta gerir Mi Max 2 mjög heppilegan
til að spila leiki á, nokkuð sem er mjög
eftirsóknarvert fyrir marga unglinga á
fermingaraldri.
Svo má nefna hið frábæra Mi TV
Box sem er sambærilegt við Apple
TV en kostar aðeins tæplega 15.000
krónur. Tækið er tengt við
sjónvarpið með HDMi-
snúru og því er stjórnað
með lítilli fjarstýringu. Með
þessu tæki getur þú á
einfaldan hátt notað forrit
eins og Netflix, plex, Kodi,
Youtube og Spotify.
Ein áhugaverð vara í ódýrari kantin-
um er síðan snjallúrið Mi Band 2 sem
er smágert og afskaplega snoturt í út-
liti. Úrið fæst á innan við 8.000 krónur
en hefur til að bera gæði sambærileg
við snjallúr á um 20.000 krónur.
Mi iceland er vefverslun sem sendir
hvert á land sem er og er enginn
sendingarkostnaður. Nánari upplýs-
ingar eru á vefsíðunni www.mii.is.
Þreföld gæði miðað við sam
bærileg tæki í sama verðflokki
Mi iCELAND
Mi Band 2
Mi TV Box