Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Side 40
Fermingar Helgarblað 2. febrúar 2018KYNNINGARBLAÐ
Þegar fermingarbörnum líður
vel þá myndast þau best!
Jón Páll lJósmyndari
Ég legg áherslu á að hafa myndatökuna afslappaða og skemmtilega því þegar ferm-
ingarbörnum líður vel þá verða til
bestu myndirnar,“ segir ljósmyndar-
inn Jón Páll Vilhelmsson sem býður
fermingarbörnum upp á fjölbreytta
og vandaða ljósmyndatöku
„Foreldrum er alveg bannað að
rexa í krökkunum rétt fyrir myndatök-
una,” segir Jón Páll og hlær.
Jón Páll hefur verið mjög virkur
í ljósmyndun hér á landi allt frá því
hann lauk námi í faginu frá Brooks
institute of Photography í Kaliforníu
árið 1995. Einnig hefur hann starfað
á erlendri grundu, meðal annars sem
ljósmyndari í mílanó, hjá tískukóngin-
um Giorgio armani.
Viðfangsefni Jóns Páls eru afar
fjölbreytt, allt frá því að mynda börn
og fjölskyldur upp í stórar og flóknar
auglýsingamyndatökur fyrir stærstu
fyrirtæki landsins.
Jón Páll veitir sérstaklega víð-
tæka, fjölbreytta og góða þjónustu til
fermingarbarna: „Oftast er mynda-
takan tvískipt. annars vegar tökum
við klassískar myndir í nútímalegum
stíl. Þetta eru nauðsynlegar myndir,
s.s. nærmyndir af fermingarbarninu,
myndir af systkinum, foreldrum og
fermingarkyrtlinum. Hinn hlutinn er
skemmtilegi hlutinn. Þá leikum við
okkur og gerum frjálslegri myndir.
stundum verða það myndirnar sem
standa upp úr en maður veit aldrei
fyrirfram hvað virkar best. Þá koma
oft áhugamál, gæludýr, íþrótta-
föt, hversdagsföt og leikmunir við
sögu. Þau hafa komið með blöðrur,
regnhlífar, myndavélar og allskonar
áhugaverða hluti sem er gaman að
mynda. svo er það rólan. Frægasta
fermingarróla í heimi!“ segir Jón
Páll en meðfylgjandi er ein mynd af
rólunni frægu.
Þegar vel viðrar eru teknar úti-
myndir en ef ekki kemur stúdíóið sér
vel því Jón Páll er með eitt stærsta
og fullkomnasta ljósmyndastúdíó
landsins, að snorrabraut 56a (inn-
gangur baka til) og þar líður fólkinu
sem hann myndar vel.
„Ég legg áherslu á að fólk fái
myndabækur sem eru vandaðar og
innbundnar, en svo má líka sleppa
þeim fyrir þá sem vilja bara hafa
þetta stafrænt. Oft eru myndirnar
það flottar og foreldrarnir svo stoltir
og ánægðir að þeir vilja sínar mynda-
bækur og engar refjar,“ segir Jón Páll.
Nánari upplýsingar um fermingar-
myndatökur og starfsemi Jóns Páls er
að finna á vefsíðunni ljosmyndastofa.
is. Ljósmyndastofa hans að Snorra-
braut 56a er opin virka daga frá kl. 9
til 18. Símanúmer er 848 9870.