Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Side 42
Fermingar Helgarblað 2. febrúar 2018KYNNINGARBLAÐ
Skemmtilegu, klassísku
tómstundagræjurnar sem
fá fólk til að hreyfa sig
PingPong.is
Eitt það jákvæðasta sem fólk sér við að gefa krökkunum sínum þessi tæki er sú að þau
fá krakkana frá tölvuskjánum og til
að hreyfa sig,“ segir sigurður Valur
sverrisson, eigandi verslunarinnar
Pingpong.is en þar er mikið úrval af
klassískum tómstundatækjum, til
dæmis billjardborð, borðtennisborð,
pílukastsvörur, fótboltaspil og þyt-
hokkíborð. Mörg af þessum tækjum
henta vel til fermingargjafa og þeim
fylgir allt sem sem þarf til að stunda
þessa leiki, svo sem spaðar og kjuðar.
Ein afar vinsæl græja í Pinpong.
is er hinn stórskemmtilegi Borðtenn-
isvinur (Buddy), tæki sem dælir borð-
tenniskúlum út úr sér. Kostar aðeins
28.500 kr.
„Billjardinn er vinsælastur hjá mér
núna en ég er með gott úrval af billj-
ardborðum, meðal annars meðfæri-
leg borð sem henta í heimahús og eru
góðar fermingargjafir. Ég er til dæmis
með sex feta eða 180 cm billjardborð
sem hægt er að reisa upp að vegg
þegar það er ekki í notkun og því fylgir
líka borðtennisplata, þannig að þetta
er sambyggð billjard- og borðtennis-
græja. Í settinu er allt meðfylgjandi
sem þarf, til dæmis billjardkjuðar og
borðtennisspaðar. Þessi græja kostar
73.000 krónur,“ segir sigurður.
Pingpong.is er með toppmerki í
billjardvörunum, til dæmis Riley og
Buffalo.
Pílukast er afar vinsæll leikur sem
hefur verið að sækja mjög í sig veðrið
aftur á undanförnum árum. Ping-
pong.is er með pílukastsskífur frá
hinum þekkta framleiðanda Unicorn.
Pílukastsskífur eru fyrirferðarlitlar
og auðvelt að festa upp í heimahús-
um en Pingpong.is býður líka upp á
frístandandi skífur sem ekki þarf að
festa á vegg. Pílukastssettin (spjald
og pílur) kosta á bilinu 12–30 þúsund
krónur. Borðtennisborð og meðfylgj-
andi sett kosta síðan á bilinu 50 til
140 þúsund.
gömlu fótboltaspilin með stöngun-
um eru sígild og njóta enn mikilla
vinsælda.
sigurður Valur er fyrrverandi
formaður Borðtennissambandsins
og hefur góð tengsl inn í íþrótta-
hreyfinguna. „Pingpong er með mjög
breytt úrval af borðtennisvörum
sem henta fyrir jafnt byrjendur sem
keppnisfólk en flest keppnisfólk hér á
landi kaupir spaðana sína í Pingpong.
is enda erum við með mjög góð og
þekkt merki – Butterfly- sTigA- DHs
og JooLA.“
Pingpong.is hefur starfað í yfir
30 ár og hefur þann tíma ávallt lagt
áherslu á að hafa allt fáanlegt sem
þarf í félagsmiðstöðvar.
Félagsmiðstöðvarnar
eru góðir kúnnar verslun-
arinnar og kunna jafnframt
vel að meta það sem þar
er á boðstólum og ekki síður
þjónustuna, en hægt er að fá
varahluti í þau tæki sem bila, til
dæmis stangir í fótboltaspilin
og ef kúlan týnist færð þú nýja í
Pingpong.is Það er líka hægt að
fá nýjan dúk á billjardborðið og
margt fleira sem kann að slitna
og skemmast eftir mikla notkun.
Pingpong.is er til húsa að
Síðumúla 35 (gengið inn að
aftanverðu). Verslunin er opin
virka daga frá kl. 12.30 til 18.
Símanúmer er 568 3920
og netfang pingpong@
pingpong.is. Vefsíða er á
slóðinni pingpong.is.