Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Qupperneq 46
46 Helgarblað 2. febrúar 2018
39 morð játaði brasilíski öryggisvörðurinn Tiago da Rocha að hafa framið. Hann fór um á mótorhjóli í Goiás-héraði, ók upp að fórnarlömbum sínum og kallaði: „Rán!“ áður en hann skaut
þau til bana. Tiago stal þó aldrei neinu. Hann beindi einkum spjótum sínum
að heimilislausum, konum og samkynhneigðum. Tiago var dæmdur í 25 ára
fangelsi árið 2016 fyrir ellefu morð.Sakamál
DauðaDeilDarSkálDið
William Bradford var dæmdur fyrir morð á tveimur konum, 15 ára og 21 árs
Þ
egar bandaríska
raðmorðingjanum William
„Bill“ Bradford varð ljóst
að hann myndi, um óá-
kveðinn tíma, dvelja á dauðadeild
í Kaliforníu, varð honum á orði:
„Veltið fyrir ykkur hve mörg [fórn-
arlömb] þið hafið engar upplýs-
ingar um.“
Bill fékk dauðadóm árið 1988
fyrir tvö morð, annars vegar á
Tracey Campbell, 15 ára ná-
grannastúlku hans, og hins
vegar, Shari Miller, 21 árs bar-
þjón.
Aðferð Bills við að krækja í
fórnarlömb var ekki flókin; með
fyrirheitum um aðstoð við að
hefja feril í fyrirsætustörfum
lokkaði hann þau heim til sín í
myndatöku.
Húsleit kom lögreglu á sporið
Bill var handtekinn eftir að í ljós
kom að hann hafði verið sá síð-
asti sem sást með Tracey, með-
an hún lifði. Í ljósi þess að hann
beið réttarhalda vegna nauðg-
unar fannst lögreglunni ekki úr
vegi að fá heimild til húsleitar á
heimili hans. Heimtur úr leitinni
innihéldu meðal annars 54 ljós-
myndir af hinum ýmsu konum,
þar á meðal Tracey og Shari. Lík-
ið af Shari Miller hafði fundist
árið 1984, hálfnakið fyrir aftan
teppaverslun í Los Angeles. Hún
hafði síðan þá verið nefnd „Jane
Doe nr. 60“ í gögnum lögreglu.
Shari hafði farið með Bill út í
Mojave-eyðimörkina í mynda-
töku. Síðar sama ár fannst líkið
af Tracey Campbell á tjaldstæði
fyrir norðan Los Angeles.
Höfuðlaust lík
Bill Bradford var ekki menntað-
ur ljósmyndari en greinilega af-
kastamikill. Í júlí 2006 ákvað lög-
reglan í Los Angeles að dusta
rykið af máli Bills og setti á vef-
síðu sína áðurnefndar myndir
í von um að borin yrðu kennsl
á konurnar og ljósi yrði varp-
að á örlög þeirra. Innan tíðar
varð ljóst að í það minnsta rúm-
lega 20 konur höfðu ekki beðið
bana af kynnum sínum af Bill.
Kennsl voru borin á Donna-
lee Duhamel, en höfuðlaust lík
hennar hafði fundist í Malibu
Canyon örfáum dögum eftir að
hún hitti Bill á bar árið 1978.
Óbærileg dvöl
Ray Peavy, þá lögreglustjóri í
Los Angeles, sagði: „Einhverjar
[konur] voru eiginkonur – fyrr-
verandi eiginkonur Bills. En að
mestu leyti erum við engu nær
um hvaða konur er að ræða.
Einhverjar kunna að hafa verið
„Vá,
ótrúlegt
að þeir skyldu
finna ljósmyndir
í eigu hans.
H
ann lét Texas Chainsaw
Massacre líta út eins og af-
þreyingartæki í Disneyworld.
Þessi orð hafa verið höfð
um Kanadamanninn Robert Pickt-
on sem verður væntanlega minnst
sem eins versta fjöldamorðingja í
sögu Kanada. Pickton þessi fæddist
í Port Coquitlam í Bresku Kólu-
mbíu, skammt austur af Vancouver,
árið 1949. Ekki fer mörgum sögum
af uppvaxtarárum Picktons en þó
var hann náinn bróður sínum, Dav-
id, enda ráku þeir saman svínabú í
heimabæ sínum.
Vændiskonur og Vítisenglar
Robert var lýst sem rólegum ná-
unga sem átti það til að hegða sér
einkennilega. Svo virðist vera sem
þeir hafi ekki beint verið mjög hæf-
ir svínabændur, enda vanræktu
þeir starfsskyldur sínar; svínabúið
var bæði skítugt og dýrin illa hirt.
Þeir áttu það til að halda mikil og
stór partí á svínabúinu þar sem
vændiskonum og meðlimum Vít-
isengla var meðal annars boðið.
Þessi partí drógu til sín mikinn
fjölda fólks og voru dæmi um það
að allt að tvö þúsund manns hafi
mætt þegar mest var.
Konurnar birtust í fjölmiðlum síðar
Víkur nú sögunni til ársins 1997. Í
mars það ár var Robert handtekinn
vegna gruns um tilraun til mann-
dráps. Vændiskonan Wendy Lynn
Eistetter sagði farir sínar ekki slétt-
ar af samskiptum við Robert eftir
að hún heimsótti hann á svínabú-
ið. Sagði hún hann hafa bundið sig
og stungið. Í janúar 1998 var málið
látið niður falla.
Um þetta leyti starfaði maður að
nafni Bill Hiscox á svínabúinu. Bill
þessi var ýmsu vanur en veitti því
þó athygli að konur sem heimsóttu
Robert á svínabúið áttu það til að
birtast í fjölmiðlum skömmu síðar
þar sem þeirra var saknað. Bill velti
þessu ekkert meira fyrir sér, ekki
fyrr en löngu síðar að minnsta kosti.
Húsleit og hryllingur
Þann 6. febrúar árið 2002 fram-
kvæmdi lögregla húsleit á svínabú-
inu vegna gruns um að bræðurnir
væru með ólögleg vopn á búinu.
Óhætt er að segja að þá hafi hjólin
farið að snúast; á svínabúinu fund-
ust munir sem tengdust hinum
týndu konum en þar sem lögregla
hafði ekkert haldbært í höndun-
um var Robert sleppt. Óeinkenn-
isklæddir lögreglumenn fylgdust
þó með hverju skrefi Roberts og
þann 22. febrúar var hann hand-
tekinn vegna gruns um tvö morð.
Það reyndist aðeins toppurinn á
ísjakanum. Eftir því sem rannsókn
lögreglu vatt fram komu fleiri fórn-
arlömb upp úr krafsinu. Áður en
yfir lauk hafði Robert verið ákærð-
ur fyrir morð á 27 konum. Hann
játaði þó að hafa drepið 49 konur.
Mannakjöt og svínakjöt
Ekki er talið útilokað að Robert hafi
framið sitt fyrsta morð árið 1983,
sem þýðir að í tæp tuttugu ár gat
hann gengið um óáreittur og myrt
konur, oftar en ekki vændiskonur
eða konur úr kynlífsiðnaðinum.
Aðferðirnar sem Robert beitti
voru svívirðilegar. Hann er talinn
hafa ráðið konunum bana áður en
hann gaf svínunum á svínabúnu lík-
amsleifarnar. Hann er meira að segja
sagður hafa gengið svo langt að hafa
hakkað líkin niður, blandað þeim við
svínahakk áður en hann seldi kjötið,
ýmist til fyrirtækja, lögreglumanna
eða vina og vandamanna.
Robert neitaði alfarið að ræða
málið við lögreglu og var því brugð-
ið á það ráð að koma honum fyrir í
fangaklefa sem hann deildi með
öðrum fanga. Robert vissi ekki að
fanginn var í raun lögreglumaður
og fékk sá upp úr honum að fórn-
arlömbin hefðu verið 49.
Haft var eftir Pickton að hann
hefði viljað ná að fremja eitt morð
í viðbót til að ná 50 fórnarlömbum
en, að eigin sögn, kostaði kæru-
leysi hans það markmið.
Ítarleg DNA-rannsókn var gerð
á svínabúinu sem leiddi í ljós að
margar þeirra kvenna sem höfðu
horfið höfðu í það minnsta verið á
svínabúinu. Robert var ákærður fyr-
ir morð á 26 konum en dæmdur fyr-
ir sex morð. Þann 9. desember 2007
var Robert dæmdur í lífstíðarfang-
elsi og getur hann sótt um reynslu-
lausn í fyrsta lagi árið 2032. n
Í vinnugallanum
Robert Pickton
á svínabúinu þar
sem hann framdi
voðaverkin. Hann er
í dag 68 ára.
Í vinnunni
Robert er
sagður hafa
myrt konurnar
áður en hann
lét svínin
um að láta
líkamsleifarnar
hverfa.
Játaði Óeinkennisklæddur lögreglumaður sem
deildi klefa með Robert fékk það upp úr kra
fsinu
að hann hefði framið 49 morð. Robert var þ
ó ekki
dæmdur nema fyrir sex.
SvínabónDinn Sem
Drap ekki bara Svín
n Pickton var djöfull í mannsmynd n Játaði að hafa framið 49 morð