Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Síða 55
552. febrúar 2018 „Ég held að
alltof margir
karlar geri þau
mistök að fara
fjær konum
sínum þegar þeir
ættu í raun að
fara nær þeim.
„Það er enginn skortur á
karlmennsku að vera ljúfur“
verkstjóri hjá Esso, hafi faðir hans,
Stefán Kristjánsson, verið mjög
blíður og ljúfur maður sem hikaði
aldrei við að sýna mjúku hliðarnar
á sjálfum sér.
„Pabbi var hávaxinn, grann-
ur og ilmandi af bensínlykt í
minningunni. Af honum lærði ég
samt að það er enginn skortur á
karlmennsku að vera ljúfur, sem
mér fannst mjög gott því það eru
margir haldnir þessum misskiln-
ingi að karlmennska gangi út á
einhverja hörku. Mamma var svo
alveg ótrúlega klár í grasafræðum.
Hún kunni að nota alls konar jurtir
og plöntur til að bæta heilsuna, auk
þess sem hún eldaði mjög góðan
mat úr baunum og öðru grænmeti.
Ég lærði alveg helling af henni í
þessum málum og ég held að þau,
sem foreldrar mínir, hafi verið mjög
góðar fyrirmyndir,“ útskýrir Matti
og bætir við að hann hafi í raun
lært margt annað gott af móður
sinni. Meðal annars hvernig maður
á að nálgast fólk sem er að takast á
við mikla erfiðleika.
„Þegar mamma var nítján ára
fæddi hún andvana son. Þessi
reynsla hafði djúpstæð áhrif á
foreldra mína, og að takast á við
sorgina sem fylgdi gaf þeim mikla
samkennd með öðrum. Þegar áföll
hafa dunið yfir, til dæmis sjálfsvíg,
ástvinamissir eða alvarleg veikindi,
þá verða vinir og kunningjar oft
vandræðalegir. Sumir forðast jafn-
vel syrgjandann – en það er einmitt
það sem maður á ekki að gera.
Þegar mamma var að takast á við
þennan missi þá voru það gömlu
konurnar sem komu til hennar,
tóku utan um hana og sýndu henni
hlýju. Hún sagði að þessar konur
hefðu bjargað andlegri heilsu sinni
með því að veita henni athygli og
sýna henni samúð og samkennd
og þetta kenndi hún mér.“
Hjálpar fólki að heyra í
sjálfu sér
Eins og fyrr segir
þurfti Matti
virkilega að
takast á við
sjálfan
sig
eftir meiðslin. Hann þurfti að
endurmeta eigin getu og hugar-
far, læra á sjálfan sig upp á nýtt,
eins og hann segir. Af þessu lærði
hann líka að setja sig betur í spor
annarra en segja má að starf hans
gangi einmitt út á að skilja það sem
Matti kallar „innra svæði“ þeirra
sem til hans koma til að geta mót-
að stefnu fyrir framtíðina.
„Stundum hefur fólk allt til
alls, þekkingu, færni, menntun
og svo framvegis en kann samt
ekki almennilega á sjálft sig. Starf
mitt gengur að mörgu leyti út á
að hjálpa fólki að heyra í sjálfu
sér. Ég spyr spurninga sem leiða
á endanum til þess að fólk heyrir
svörin mjög skýrt. Heyrir hvert það
vill fara og hvað það langar raun-
verulega til að gera og hvernig það
vill sjá líf sitt þróast til hins betra,“
útskýrir hann en nú eru liðin
þrjátíu ár frá því hann hóf námið í
Bandaríkjunum.
„Ef ég gæti farið aftur í tímann,
verandi sá sem ég er í dag, vitandi
það sem ég veit núna, þá er ég
ekki viss um að ég hefði endilega
valið mér þetta nám og þennan
starfsvettvang. Ég hugsa nefnilega
að ungi ég hefði getað byrjað að
stunda íþróttir aftur ef ég hefði
vitað allt sem ég veit núna. En
svo má aftur segja að ef ég hefði
aldrei farið á þessa braut þá hefði
ég auðvitað aldrei komist að þessu
öllu,“ segir hann og hlær. „Ég ætl-
aði alltaf að verða atvinnumaður
í körfubolta en þess í stað varð ég
atvinnumaður í að hjálpa fólki. Það
sem hefur haldið mér í starfinu í
öll þessi ár er einlægur áhugi minn
á fólki og hann verður bara meiri
og meiri með árunum. Mig langar
að vita yfir hvaða eiginleikum fólk
býr og hvað það getur gert við þá.
Ef ekki væri fyrir þennan ein-
læga áhuga þá væri ég örugglega
fyrir löngu búinn að gefast upp og
farinn að snúa mér að einhverju
öðru.“
Hefur aldrei gefið sig út fyrir að vera
sálfræðingur
Árið 1993, þegar Matti kom heim
frá Bandaríkjunum, beið hans það
verkefni að plægja það sem þá var
algjörlega óplægður starfsakur,
enda höfðu fáir heyrt um heild-
ræna heilsumeðferð, og enn voru
áratugir í að fólk vissi hvað mark-
þjálfun var enda birtist það orð
ekki á prenti fyrr en eftir síðustu
aldamót, þegar orðið „coaching“
var þýtt sem markþjálfun í grein
sem birtist í Markaðinum, fylgiriti
Fréttablaðsins, í desember 2005.
Fyrstu árin gekk starf hans
aðallega út á hefðbundnar nudd-
og líkamsmeðferðir en fljótlega
kom í ljós að undirbúnings-
samtöl við viðskiptavinina
skiluðu meiri árangri. Hann
kom því fyrir hægindastól-
um á stofunni og byrjaði
á samtali, áður en fólk
lagðist á nuddbekkinn.
„Heildræn
heilsumeðferð felur
í sér að andlegt og
líkamlegt jafnvægi
fer hönd í hönd.
Maður þarf að
skoða líkamlega
partinn, eins og til
dæmis mataræði, sem getur oft
verið grunnurinn að streitunni,
en svo þarf einnig að skoða önnur
persónulegri mál eins og til dæmis
sambönd, fjármál, vinnuna og
hvort fólk sé almennt sátt við þann
stað sem það er á í lífinu og hvert
það stefnir. Eftir að ég byrjaði að
leggja aukna áherslu á samtöl tók
ég eftir því að líkamsmeðferðirnar
voru fljótari að skila árangri.“
Samtalsmeðferðir Matta gáfu
svo góða raun að sumir báðu jafn-
vel um að setjast bara í stólinn og
sleppa nuddinu en eðli starfs síns
vegna mætti hann áskorun þar.
„Ég er jú ekki sálfræðingur og
hef aldrei gefið mig út fyrir að vera
það þótt sumir hafi haldið mig
slíkan. Starf sálfræðinga gengur að
mörgu leyti út á að greina uppeldi
og æsku og setja í samhengi við
líðan einstaklingsins en það sem ég
var að gera snerist um annað. Þó
að viðskiptavinir mínir hafi verið
mjög ánægðir þá fannst mér eins
og mig vantaði betra kerfi til að
fara eftir. Samtalstækni og aðferðir
sem gætu sýnt mælanlegan árang-
ur, enda er ég mjög árangursmið-
aður sjálfur. Með því að
gerast markþjálfi
fékk ég nákvæm-
lega það sem
mig vantaði
til að ramma
inn og full-
komna það sem ég hafði verið að
gera í mörg ár.“
Ákvað að láta óttann ekki hafa
yfirhöndina
Veistu hvað það er í sjálfum þér
sem veldur þessum áhuga á öðru
fólki og því sem það er að fást
við? „Líklegast er hann sprottinn
af þeirri upplifun minni að hafa
óstöðvandi sjálfstraust og finnast
ég ósigrandi, fara svo í gegnum
meiðslin, missa sjálfstraustið og
finnast ég ekki geta neitt. Ákveða
svo upp úr því að láta aldrei óttann
koma í veg fyrir að ég gæti haldið
áfram. Láta aldrei óttann taka frá
mér lífið sem ég vildi lifa.“
Hvað óttaðist þú þá mest?
„Það sama og allir aðrir. Að
standa mig ekki. Að vera ekki
nóg og verða fyrir höfnun. Allir,
sem hafa upplifað það að verða
fyrir alvarlegum veikindum og
komast ekki áfram, fara í gegnum
sorgarferli sem tengist því að geta
ekki verið maður sjálfur eins og
áður. Maður þarf að greina og
skilja hvað það var sem gerðist og
svo þarf maður að læra á sjálfan sig
upp á nýtt. Á endanum þarf maður
alltaf að geta umbreytt erfiðri lífs-
reynslu í eitthvað sem nýtist. Eða
eins og Óli Stef orðaði þetta svo
skemmtilega: „Reynsla er eitt-
hvað sem maður fær oftast rétt
eftir að maður þarf á henni að
halda.“
Karlar hlaða batteríin með þögn
Undanfarinn áratug hef-
ur Matti haft umsjón með
námskeiðum, fyrirlestrum og
fræðslufundum í Ljósinu,
„Auðvitað eru karlmenn ekki allir eins,
og kynin eru bæði lík og ólík á sama
tíma, en það er vissulega algengara að
karlmenn séu lengur að tengjast tilfinningum
sínum og átta sig á hvað er að gerast innra
með þeim. Svo velja þeir flestir þögnina til
að hlaða batteríin og þá halda konur oft
að það sé eitthvað að.