Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Side 56
56 2. febrúar 2018
endurhæfingarstöð fyrir fólk sem
hefur greinst með krabbamein.
Þar stýrir hann jafnframt sérstök-
um markþjálfunarfundum fyrir
karlmenn sem hafa notið mikilla
vinsælda og í raun orðið til þess
að krabbameinsveikir karlmenn
hika síður við að sækja sér styrk og
stuðning í Ljósinu.
„Konur eru mikið fljótari að
sækja sér aðstoð en karlar þegar
eitthvað bjátar á. Við Erna Magn-
úsdóttir hjá Ljósinu vildum gera
eitthvað sem höfðaði til karlmanna
og fórum því að skoða hvert karlar
sækja styrk. Almennt séð eru konur
duglegri en við karlarnir að hittast
og spjalla og eru því með meira
stuðningsnet en karlar. Karlarnir
leggja ekki jafn mikið upp úr því
að sinna vinum sínum og þess
vegna er konan þeirra stundum
eini vinurinn sem er eftir,“ útskýrir
hann og bætir við að margir karlar
sæki styrk sinn annars vegar í ein-
veru og hins vegar í einveru með
öðrum körlum.
„Auðvitað eru karlmenn ekki
allir eins, og kynin eru bæði lík
og ólík á sama tíma, en það er
vissulega algengara að karlmenn
séu lengur að tengjast tilfinningum
sínum og átta sig á hvað er að ger-
ast innra með þeim. Svo velja þeir
flestir þögnina til að hlaða batteríin
og þá halda konur oft að það sé
eitthvað að. Vilja toga orðin upp úr
þeim og við það skapast stundum
erfitt andrúmsloft. Þegar karlar
koma saman þá ríkir gagnkvæm
virðing og skilningur fyrir því
hversu nærandi þögnin getur verið
og þetta hefur reynst mörgum
alveg ótrúlega vel. Svo vel að nú eru
stundum fleiri karlar en konur í
Ljósinu, sem var alveg óþekkt áður
en við hófum þetta starf.“
„Þegar maður er með konunni sinni þá
er maður ekki alltaf í lagi“
Hann segir muninn á samtölum
karla og kvenna stundum áberandi.
Karlar greini frekar frá atburðum
og upplýsingum og reyni að létta
lund hver annars. Þeir tali til dæmis
ekki eins mikið um annað fólk og
konur gera. „Þeir eru ekkert að
spá í hjónaböndin hjá öðrum eða
hvernig einhverjum kunningjum
kann að líða. Þeir tala kannski
um þetta en það er ekki alltaf á
yfirborðinu. Stundum erum við allt
að tuttugu manns samankomnir í
Ljósinu á föstudögum og þetta er
mjög gefandi samvera fyrir alla.
Þeim finnst mjög mikill styrkur í
því að hitta aðra karlmenn sem eru
að ganga í gegnum það sama en
það gefur bæði von og styrk,“ segir
hann.
„Það er eitthvað rosalega gott
sem gerist þegar karlmenn koma
saman og það er mjög mikilvægt að
þeir rækti vináttu við aðra karl-
menn sem þeir treysta og tengjast
af einfaldri ástæðu, og hún er þessi:
Þegar maður hittir strákavini sína
þá er maður alltaf í lagi en þegar
maður er með konunni sinni þá er
maður ekki alltaf í lagi,“ segir Matti
og hlær. „Konur halda vanalega
utan um allt sem tengist heimilinu
og fjölskyldunni og vita hvað það
er sem þarf að laga. Karlmenn fá
þannig oft að heyra hvað sé að og
hvað þurfi að verða betra en meðan
þeir koma saman þá er bara Siggi
góður, Nonni góður og Gummi
góður. Þeir upplifa sig eins og allt sé
bara í himnalagi og koma svo betri
inn í hjónabandið aftur,“ útskýrir
hann.
„Þegar konan fer, þá fer allt þetta
góða með henni“
„Rannsóknir úr Háskólanum hafa
sýnt fram á að mikið fleiri ekklar
sækja í félagsskap nýrra kvenna
innan tveggja ára. Öfugt við það
sem margir halda þá þurfa þeir
samt ekki endilega meira á konum
að halda en þær á karlmönnum.
Vandinn er sá að karlmenn láta
yfirleitt konurnar sínar um að
viðhalda stuðningsnetinu í lífinu
og þegar konan fer þá fer allt
þetta góða með henni: Heimilið,
brosið, jólin, gjafirnar, fjölskyldan,
kynlífið ... allt sem er gott tengist
einni manneskju og þegar hún fer
þá hverfur það. Þegar konur verða
ekkjur þá gerist þetta mikið sjaldn-
ar af því þær hafa skapað þetta
stuðningsnet og haldið því við,“
útskýrir Matti.
Hann segir að það sé meðal
annars vegna þessa sem það sé
mjög mikilvægt að konur séu
ánægðar í hjónabandinu. Ef konan
sé ekki ánægð verði hún reið og
pirruð og í kjölfarið fari eigin-
maðurinn oft að forðast að eiga
samskipti við hana. Eigi maðurinn
athvarf í góðum vinahópi annarra
karla gefst honum tækifæri til
að hlaða batteríin, meta stöðuna
og koma svo heim, hressari og
orkumeiri.
Karlar fara fjær konum sínum þegar
þeir ættu að fara nær
„Þegar ég held fyrirlestra fyrir bæði
konur og karla þá varpa ég stund-
um fram þessari spurningu; hvort
það sé einhver munur á kynjunum.
Yfirleitt fara allir að hlæja en á
endanum eru flestir mjög sammála
því að karlar og konur eru ekki
eins. Auðvitað geta einstaklingar
verið líkir hver öðrum og það er
líklegast meira líkt með okkur en
hitt, en það er hins vegar mismunur
á konum og körlum í sambandi
við margt og hann er bæði fallegur,
góður og á rétt á sér, enda oft
ástæða þess að kynin laðast hvort
að öðru. Svo höfum við orðið mis-
munun, sem er næstum því alveg
eins en það er hvorki fallegt né
rétt og hefur engan rétt á sér. Þessi
tvö orð, mismunur og mismunun
... oft finnst mér eins og hluti af
umræðunni um jafnrétti kynjanna
gangi út á að eyða mismuninum til
að eyða mismunun. Sjálfum finnst
mér að karlar og konur eigi að fá
meira svigrúm til að vera bara eins
og þau eru – en þá þarf skilningur-
inn að koma fyrst. Til dæmis bara
í sambandi við þessa þögn sem ég
var að tala um,“ segir hann. Hann
segir að konur þegi oft þegar það er
eitthvað að trufla þær en karlar velji
þögnina til að hlaða sig andlega. Þá
fari konur oft að ýta á menn sína,
spyrja hvað þeir séu að hugsa og
halda að það sé eitthvað að angra
þá.
„Í samskiptum við konur erum
við karlar reyndar stundum of
gjarnir á að bakka frá okkar mein-
ingu og segja ekki hvað við viljum
og hvað við þurfum. Þeim finnst
mörgum betra að koma þessum
hlutum að í lokuðum karlahópum
þar sem þeim finnst þeir geta sagt
sína meiningu og talað út á óþving-
aðri hátt ef þeim finnst þeir þurfa
þess með. Um leið ná þeir að skilja
sjálfa sig betur og það skilar sér svo
aftur í bættu hjónabandi og betri
tilveru. Ég held að alltof margir
karlar geri þau mistök að fara fjær
konum sínum þegar þeir ættu í
raun að fara nær þeim. Hitt virkar
aldrei vel,“ segir Matti að lokum.
„Ég ætlaði
alltaf að verða
atvinnumaður í körfu-
bolta en þess í stað
varð ég atvinnumað-
ur í að hjálpa fólki