Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Side 58
Vikublað 2. febrúar 2018 58
Orðabanki Birtu:
löðurmannlegur
froðusnakkur
Létt verk og löðurmannleg eru auðveld verk vegna þess að svo-kallað löðurmenni er annað lýsingarorð fyrir aumingja. Að lýsa einstaklingi sem löðurmenni er þó ekki mjög algengt heldur er
þetta orð fremur notað yfir einhvers konar verknað.
Það þarf þó ekki endilega að vera líkamlegur verknaður, eins og að
lyfta einhverju þungu, heldur getur löðurmannlegur verknaður einnig
verið smásálarlegur, aumingjalegur og ámátlegur. Með öðrum orðum
þá er löðurmenni lítilmenni, enda gerður úr löðri.
„Það er gamla æfintýrið, þú ætlaðir að ná valdi á heiminum og fórst í læríng til
töframanns. Hann hefur kent þér tvær, þrjár þulur. Einn morgun biður hann þig að
sækja vatn og fylla dyratunnuna meðan hann sé úti að biðjast beinínga. Það er
löðurmannlegt starf að sækja vatn og þú kýst heldur að fara með þulu. Þú hefur
yfir Þulu Eitt, og fatan fer sjálfkrafa á stað útí brunn. En þegar þú sérð að hún ætlar
að halda áfram að sækja meira vatn eftir að tunnan er full, þá ferðu með þulu
númer tvö til að stöðva hana; en það verður til þess eins að fatan hraðar sér enn
meira og fyllir húsið. Í skelfíngu þinni ferðu með þriðju þulu, og þá fyrst tekur nú
steininn úr."
Halldór Laxness. Brekkukotsannáll, 34. kafli, síða 242
Samheiti
armlegur, armur, aumingjalegur, aumlegur, aumur, auvirðilegur, ámáttlegur, bágur, daufur, eymdar-
legur, fátækur, greylegur,heilsutæpur, hraklegur, hrörlegur, lasinn, lélegur, linur, ómerkilegur, roluleg-
ur, rýr, ræksnislegur, skitinn, veslaður, veslugur, ælegur
„Öll óregla og ógæfa bæði manna
og þjóða er komin af því að menn
hafa ekki gætt nema að sjálfum sér og
einmitt með því gætt allra síst að sjálfum
sér.
- Jón Sigurðsson forseti
Vel mælt
39
ára
33
ára
51
árs
sVala björgVinsdóttir
Starf: Tónlistarkona
Fædd: 8. febrúar 1977
bergrún Íris sæVarsdóttir
Starf: Teiknari og barnabókahöfundur
Fædd: 4. febrúar 1985
Þorsteinn guðmundsson
Starf: Grínari og gleðigjafi
Fæddur: 4. febrúar 1967
lóa HlÍn Hjálmtýsdóttir
Starf: 4. febrúar 1979
Fædd: Teiknari
41
árs
Afmælisbörn vikunnar