Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Side 60
60 2. febrúar 2018
He
lgar
ma
tur
inn
Karl Óskar Smárason, einn af þremenningunum sem standa að hamborgara- og
kleinuhringjastaðnum Le Kock í
Ármúla, gefur lesendum uppskrift
að löðrandi girnilegum kleinu-
hring og segir að hver
sem er ætti að
geta steikt
þetta góm-
sæti í eldhúsinu heima.
Sjálfur segist hann hafa fengið
hálfgerðan leiða á því sem
var á boðstólum hjá
veitingahúsum
borgarinnar og
því hafi þeir
félagarnir reynt
að brydda upp
á einhverjum
nýjungum.
„Ég get
ekki sagt að ég
hafi smakk-
að einhverja
stórkostlega
kleinuhringi sem
urðu til þess að við
ákváðum að bjóða
upp á þá á Le Kock. Hafði
bara smakkað þessa íslensku
kleinurhingi sem eru eins í öllum
bakaríum. Við fengum bara leiða á
því sem gengur á veitingastöðum.
Það eru flestir að gera það sama en
við vildum gera eitthvað öðruvísi,“
segir Karl Óskar og bætir við að
þeir hafi horft til bandarískrar mat-
armenningar til að fá innblástur.
„Hér á Íslandi er enginn að búa
til kleinuhringi eins og við. Enginn
veitingastaður eða bakarí hefur
sérhæft sig í góðum kleinuhringj-
um,“ segir Karl sem hyggst fljótlega
opna sérstakt bakkelsisbakarí
ásamt félögum sínum.
Kallað kökukleinuhringur í bransanum
Hvað uppskriftina sem hann gefur
hér varðar segir hann lítið mál að
gera þetta heima hjá sér.
„Það þarf bara smá lagni þegar
maður er að útbúa kleinuhringi
og þá sérstaklega ef maður notar
gerdeig. Þessi uppskrift er reyndar
mikið auðveldari enda ekkert ger
í henni svo maður þarf ekkert að
bíða eftir því að deigið lyfti sér. Í
bransanum er þetta kallað „cake
doughnut“, eða kökukleinuhringur,
enda deigið í þessu meira í ætt við
kökudeig en brauðdeig. Við notum
svo kardimommur í uppskriftina
sem gerir hann meira í ætt við
gömlu góðu íslensku kleinuna.“
Hægt að nota alls konar krem
„Í þessari uppskrift setjum við
glassúr ofan á kleinuhringinn og
bætum smá sítrónuberki við en
auðvitað getur hver og einn valið
hvað er sett ofan á kleinuhringinn.
Til dæmis er hægt að bæta
kakódufti í glassúrinn, lakkrís eða
einhverju nammi og þá er upp-
lifunin allt öðruvísi,“ segir kleinu-
hringjaunnandinn Karl Óskar að
lokum.
Löðrandi Lekker kLeinu-
hringur frá Le kock
Í bransanum er þetta kallað „cake doughnut“, eða kökukleinuhringur
Broen
Hin bein-
skeytta Saga
Noren á leð-
urbuxunum
er skrítnasta og
skemmtilegasta
lögga sem sést hefur í sjónvarpi.
Þriðja þáttaröðin af Broen er sýnd
á RÚV öll mánudagskvöld. Veisla
fyrir unnendur norrænna glæpa-
sagna.
MarkMiðasetningu
Þótt það sé ekki nema eitt mark-
mið á viku. Til dæmis að fara fyrr
að sofa, drekka meira vatn, fara út
að ganga. Skrifa hvert markmið
niður og fylgja svo eftir bestu getu
án þess að allt fari á hliðina ef þér
tekst það ekki.
heLgarferðuM
tiL PóLLands
Það var löngu
tímabært að
Íslendingar
kynntust Pól-
landi betur en
Pólverjar eru jú
stærsti innflytj-
endahópurinn hér
á landi. Helgarferðir til helstu
borga í Póllandi eru það heitasta
í dag enda fær maður mikið fyrir
peninginn.
headsPace
Hugleiðsla og
núvitundar-
iðkun er
eitthvað
sem margir
pæla í þessa
dagana. Með
HeadSpace-
appinu getur
þú hent þér í hugleiðslu hvar og
hvenær sem er og valið sérstakar
hugleiðslur fyrir t.d. kvíða, streitu,
svefnleysi og svo framvegis. Próf-
aðu. Það kostar ekkert!
iLMkerti á skrifBorðið
Það lífgar
svo upp á
skamm-
degið að
kveikja á
ilmkerti og
leyfa því að
loga á skrif-
borðinu
meðan þú
situr við
tölvuna í
vinnunni. Góð lykt og falleg birta
geta gert gæfumuninn.
Birta mælir með
UPPSKRIFT
DeIg
n 240 g sykur
n 5 eggjarauður
n 40 g smjör
n 380 g sýrður rjómi 18%
n 600 g AP hveiti
n 15 g lyftiduft
n 12 g salt
n 2 l matarolía til steikingar
AðFeRð
Setjið saman í hrærivélaskál sykurinn, eggjarauður og
smjör. Þeytið upp með spaðanum, ekki þeytaranum. Þegar
blandan er orðin ljós á litinn er sýrðum rjóma bætt út í og
hrært í 2 mínútur til viðbótar. Sigtið þurrefnin saman í skál
og bætið rólega útí blönduna í hrærivélaskálinni á lágri
stillingu. Þegar allt er komið í skálina og deigið vel hrært
saman þarf að geyma það í ísskápnum í a.m.k. klukkutíma
til að það kólni. Gott er að færa deigið yfir í aðra skál sem
hefur verið smurð með einhvers konar fitu til að það festist
síður við skálina. Næsta skref er að fletja deigið út og
gott er að sáldra smá hveiti á borðið til að auðvelda fyrir.
Deigið er flatt jafnt út með kökukefli og ætti að vera ríflegur
sentímetri að þykkt, eða svipað þykkt og lengd naglar á
þumalfingri. Kleinuhringirnir eru svo stungnir út, best er að
eiga í skúffunni þar til gerð hringform í mismunandi stærð-
um, en það er vel hægt að redda sér með glösum, skálum
og skotglösum fyrir gatið í miðjunni. Á þessum tímapunkti er
hægt að geyma kleinuhringina í ísskáp ef þeir eiga að vera
nýsteiktir þegar þeir eru bornir fram, eða bara að steikja þá
strax. Til að steikja kleinu-
hringina þarf að hita olíuna
upp í 170–180°C í potti.
Djúpsteikingarpottur hentar
vel ef hann er til á heimil-
inu. Kleinuhringnum er svo
sleppt í olíuna. Þegar hann
flýtur upp á yfirborðið þarf
að steikja hann í um 40
sekúndur til viðbótar, áður
en honum er snúið við og
steiktur á hinni hliðinni í u.þ.b.
mínútu. Þá er hann tekinn upp
úr og lagður á eldhúspappír til að
grípa olíuna sem lekur úr honum.
Kleinuhringurinn þarf að kólna áður en
honum er dýft í glassúrinn.
glASSúR
n 100 ml nýmjólk
n 400 g flórsykur
n Klípa af salti
n 1 tsk. muldar kardimommur
n 1 stk. sítróna
AðFeRð
Mjólk og flórsykri hrært saman og kardimommum bætt
út í. Kleinuhringnum er dýft í glassúrinn og látinn sitja á
ofngrind þannig að glassúr geti lekið af honum. Börkurinn
af sítrónunni rifinn yfir áður en hjúpurinn storknar og þá er
kleinuhringurinn tilbúinn. Það er mjög auðvelt að breyta
glassúrnum á hvaða hátt sem er, það eina sem þarf að hafa
í huga er hversu þykkur hann er.
TReS AmIgoS Markús Ingi
Guðnason, Karl Óskar Smárason og
Knútur Hreiðarsson. Myndir Sigtryggur Ari