Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Qupperneq 63
menning 63Helgarblað 2. febrúar 2018
Metsölulisti Eymundsson
31. janúar 2018
Vinsælast í bíó
Helgina 26.–28. janúar
1 Þorsti - Jo Nesbø
2 Sigraðu sjálfan þig - Ingvar Jónsson
3 Stígvélaði kötturinn
4 Bætt melting betra líf - Michael Mosley
5 Náttbirta - Ann Cleeves
6 Sakramentið - Ólafur Jóhann Ólafsson
7 Hús tveggja fjölskyldna - Lynda Loigman
8 Gatið - Yrsa Sigurðardóttur
9 Saga Ástu - Jón Kalman Stefánsson
10 Með lífið að veði - Yeonmi Park
1 Maze Runner: The Death Cure (2018)
2 Paddington 2
3 The Post
4 Jumanji
5 Den of Thieves
6 Three Billboards Outside Ebbing, Missouri
7 Ferdinand
8 Óþekkti hermaðurinn (Tuntematon sotilas)
9 Greatest Showman, The
10 Deep (Ævintýri í Undirdjúpum)
1 Floni - Floni
2 JóiPé & Króli - GerviGlingur
3 Herra Hnetusmjör - KÓPBOI
4 Ýmsir - The Greatest Showman
5 Ed Sheeran - ÷
6 Sam Smith - The Thrill Of It All
7 Post Malone - Stoney
8 Yung Nigo Drippin' - Plús Hús
9 XXXTentacion - 17
10 Hafdís Huld - Vögguvísur
Vinsælustu plöturnar
Vikuna 21. til 27. janúar.
sig. Á endanum var maður kom-
inn með ákveðið „vision“ fyrir því
sem maður vildi gera.“
Án þess að hafa gefið nokkuð út
opinberlega fór nafn Flóna að breið-
ast út meðal íslenskra rappáhuga-
manna og óútgefin demó skiptu
um hendur í tölvupóstum. „Þegar
ég byrjaði að fikta fór ég að senda
á strákana eitt og eitt lag. Fljótlega
voru þau svo komin í frekar mikla
dreifingu. Fólk var farið að deila
pökkum með einhverjum 20 demó-
um sem áttu aldrei að koma út. Þess
vegna var fólk farið að heyra eitthvað
af lögunum og velta fyrir sér hver ég
væri. Þannig að ég var frekar „und-
erground“ í byrjun,“ segir Flóni.
Síðasta sumar var nafnið svo
komið í meginstrauminn þegar
hann birtist sem gestalistamaður á
plötu Joey Christ og var þar einnig
nefndur í einu vinsælasta lagi
sumarsins, Joey Cypher, en þar
spyr rapparinn Birnir bróðurlega:
„Hver er að passa upp á Flóna?“
Flóni sjálfur gefur lítið fyrir að
það þurfi eitthvað að passa upp
á hann – „það ætti frekar ein-
hver að passa upp á Binna,“
segir hann.
Tónlistin sem útrás
Ólíkt flestum vinsælum röppurum
um þessar mundir smíðar Flóni
lögin sín að mestu leyti sjálfur frá
grunni – hann „pródúserar“ tón-
listina eins og það er yfirleitt kall-
að. Félagarnir Jökull Breki og Vikt-
or Örn koma einnig að tónlistinni,
auk þess sem Logi Pedro hefur
séð um að mixa. Flóni segir hljóð-
vinnsluforritið Logic vera hans
helsta hljóðfæri við lagasmíðarn-
ar, en forritið segir hann sérstak-
lega henta vinnuaðferðum sínum.
„Ég vinn ótrúlega hratt. Ég skrifa
til dæmis eiginlega aldrei textana
mína niður áður en ég tek upp, held-
ur „freestyle-a“ bara og skrifa svo út
frá því. Ég er alltaf bara „catching
the vibe,“ að fanga það hvernig mér
líður og hvernig hlutirnir
eru á því augna-
bliki.“
Hvað er það sem þú vilt ná fram
með tónlistinni, hvenær veistu
að þú sért með eitthvað í gott í
höndunum?
„Ef mér finnst ég hafa myndað
þá tilfinningu sem ég er að reyna
að gefa frá mér. En það getur líka
verið ef ég næ að finna einhverja
fallega laglínu, eða gera eitthvað
„sánd“ sem enginn annar á Íslandi
er að gera. En það er mikilvægast
að lagið nái til manns á einhverju
tilfinningalegu „leveli“, þá fer
manni að þykja vænt um það. Þá
sér fólk að þetta er frekar einlægt
og gott og tengir kannski við það.“
Það er áhugavert að þú tal-
ar um einlægni og tilfinningar, því
rapptónlist í gegnum tíðina hefur
oftar verið tengd við töffaraskap og
harkalega karlmennsku. Mér sýnist
þú – eins og æ fleiri rapparar i dag
– vera óhræddur við að sýna við-
kvæmni og semja um eigið óöryggi.
„Já, fyrir mig snýst þetta ekki
um að vera eitthvað að sýna mig
eða reyna að vera nettur fyrir ann-
að fólk. Tónlistin er meira eins og
útrás fyrir mig: „svona leið mér á
ákveðnu tímabili og þess vegna
birtist það svoleiðis í einhverju
lagi.“ Ég hef aldrei verið mikið fyrir
það að vera fyrir framan eitthvert
fólk. Mér er alveg sama um það, ég
er bara að þessu fyrir tónlistina.“
Það má segja að alveg
frá upphafi hafi eitt helsta
umfjöllunarefni popptón-
listarinnar verið þeir kraftar
sem toga okkur út úr leiði-
gjörnum hversdagsleikan-
um: þrá og algleymi, vellíðan
og annað vitundarstig, ást og
ölvun, losti og víma. Það er
þó langt síðan að augljósar vísan-
ir í vímuefni voru jafn alltumlykj-
andi í íslensku poppi og þær eru í
rapptónlistinni í dag – og þar eru
textar Flóna engin undantekning.
En af hverju eru íslenskir rapp-
arar að syngja svona mikið um
dóp?
„Maður syngur bara um „sjittið“
sem er í gangi í lífi manns á hverj-
um tíma, og maður dílar bara við
það eins og það er. Ég er samt ekki
að sýna þetta eins og eitthvað sem
fólk ætti að líta upp til. En lífið er
bara fokking lífið. Fólk glímir við
hluti og það er alls konar sjitt í
gangi hjá alls konar fólki og manni
sjálfum. Lífið er bara rússíbani og
það eru alls konar „distractions“
allt í kringum mann.“
Heimur Flóna
Þú talar um að þú sért ekkert mik-
ið fyrir það að sýna þig fyrir öðru
fólki. Er það ástæðan fyrir því að
í allri sjónrænni framsetningu á
tónlistinni ert þú sjálfur frekar
ógreinilegur og dularfullur í bak-
grunninum? Sem minnir mig líka
á það að þú ert ekki búinn að gera
mikið af tónlistarmyndböndum
eins og margir aðrir rapparar i
senunni.
„Já, Ég er ekkert mikið fyrir það
að allir viti hvernig ég lít út eða
eitthvað þannig. Ég hef bara vilj-
að vera „low-key“. Myndbandið
við „Alltof hratt“ var til dæmis ekki
hugsað eins og týpískt tónlistar-
myndband sem átti að verða mjög
vinsælt. Hugmyndin var frekar
að gefa fólki ímynd af því „vision
-i“ sem ég hafði með plötunni,
þannig að þetta myndi meika sens
sem hluti af einhverri heildar-
mynd. Þarna getur fólk séð hvaða
„mood“ ég er að vinna með og
tengir kannski betur.“
Þrumur og eldingar yfir regn-
votri og myrkri Reykjavík, veip-
gufur og óveðurský, innan um
blikkandi led-ljós dansar Flóni í
glansandi pleðurúlpu, hraðar
klippingar, endurkast, brotnir
speglar. Litapalletan er fábrot-
in, nánast bara svört, grá og
köld hvít birta. Þetta er heim-
ur Flóna.
Og þetta er heimurinn sem
hann heldur áfram að þróa
í stúdíóinu þessa dagana.
Hann vill þó engu lofa um
hvað taki við – hvort hann
sé byrjaður að huga að næstu
plötu eða öðrum stórum ver-
kefnum. Hann einbeitir sér bara
að því að semja tónlist og svo kem-
ur allt annað í ljós. „Eina sem ég
geri þessa dagana er að vera
niðri í stúdíói að gera tónlist.
Maður er alltaf að vinna að
nýrri tónlist, og ég geri það
svo hratt að ég gæti jafn-
vel verið búinn að gefa út
sex, sjö plötur – en
maður verður
að hafa ein-
hvern hem-
il á sér.“ n
Tala saMan
Hringi í hana og spyr „hvert ertu að fara?“
Nóttin ung svo við getum verið saman.
Þori ekki að vera ekki ég sjálfur fyrir framan hana.
Rúlla mér eina og við byrjum að tala saman.„Ég hef aldrei
verið mikið fyrir
það að vera fyrir framan
eitthvert fólk. Mér er
alveg sama um það, ég
er bara að þessu fyrir
tónlistina.
Flóni Rapparinn hefur skotist upp á
stjörnuhimin íslensks hip-hops með
fyrstu plötu sinni. Myndir SigTryggur Ari
Úr listheiminum
n Það var mikil spenna þegar
Íslensku bókmenntaverðlaunin voru
afhent á Bessastöðum í vikunni. Í
flokki fagurbóka hlaut Kristín Eiríks-
dóttir verðlaunin fyrir skáldsöguna
Elín, ýmislegt. Í flokki barna- og ung-
mennabóka hlutu Áslaug Jónsdóttir,
Rakel Helmsdal og Kalle Güettler
verðlaunin fyrir bókina Skrímsli í
vanda. Í flokki fræðibóka hlaut Unn-
ur Þóra Jökulsdóttir verðlaunin fyrir
Undur Mývatns: -um fugla, flugur,
fiska og fól. Allar bækurnar koma
út undir einhverjum undirmerkjum
útgáfurisans Forlagsins. Myndir frá
athöfninni má sjá í Birtu í DV í dag.
n Egill Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Forlagsins og for-
maður Félags bókaútgefanda, flutti
– venju samkvæmt – ræðu áður en
verðlaunin voru afhent
og var ómyrkur í
máli. Hann hvatti
til þess að útgáfa
námsefnis yrði
færð til sjálf-
stæðra bókaútgef-
enda í stað þess að
þau yrðu áfram „mötuð“ af því sem
ríkisútgáfan ákvæði. Þá gagnrýndi
hann fjölmiðla fyrir skort á umfjöll-
un um bækur og bókmenntir – en
tók reyndar ríkisfjölmiðilinn út fyrir
sviga.
n Og enn af verðlaunum. Ísold
Uggadóttir var um síðustu helgi valin
besti leikstjórinn í flokki alþjóð-
legra kvikmynda á
Sundance-hátíðinni
í Bandaríkjunum,
einni virtustu
kvikmyndahátíð
heims. Ísold
frumsýndi þar
fyrstu kvikmynd sína
í fullri lengd, Andið eðlilega. Myndin
fjallar um hælisleitanda sem verður
strandaglópur í Keflavík á leið sinni
til Kanada.
Mér er í mun að setja heiminn saman
Það lukkast aðeins stund og stund
Ég raða upp í augna minna ljós
mörgu sem ég minnist
mörgu sem bezt ég hugði samið og sagt
Byggi svo brýr og himna
Strengi vel þær brýr
set stjörnur á þá himna
kveiki líf á þeim stjörnum:
verur með viðkvæma sál
og sköpunargáfu
Stend um hríð hljóður við vegbrúnina
minningasafnari
grunsmiður skelfinga
vonasonur
Og á sem snöggvast
fáa að
Mér er í mun
Eitt höfuðskáld þjóðarinnar á
20. öld, Þorsteinn frá Hamri,
lést um síðustu helgi, 79 ára
gamall. Til að minnast skálds-
ins birtum við ljóð hans „Ef ég
man“ úr verðlaunabókinni Sæ-
farinn sofandi frá 1992.