Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Blaðsíða 68
68 lífsstíll - kynlíf Helgarblað 2. febrúar 2018
Íslenskar konur leysa frá skjóðunni
n Vandræðalegar kynlífssögur n Parið sem kveikti í rúminu og konan sem fékk glóðarauga
F
lestallir fullorðnir einstak-
lingar stunda kynlíf reglu-
lega hvort sem það er með
maka sínum eða einnar næt-
ur gaman. Yfirleitt gengur athöfn-
in nokkuð vel fyrir sig en þó koma
skipti þar sem gamanið getur
snúist yfir í hrikalega vandræða-
lega stund sem fólk vill helst aldrei
ræða aftur.
DV hafði samband við nokkrar
íslenskar konur sem voru tilbún-
ar til þess að segja frá vandræða-
legum atvikum sem þær hafa lent í
meðan á kynlífi stóð. Sögurnar eru
í senn skemmtilegar og vandræða-
legar. Við gefum konunum orðið:
Ég endaði með manni
heima eftir eitt
djammið og i
miðjum klíð-
um er ég
ofan á hon-
um og sný
baki í hurðina.
Labbar þá ekki
mamma hans inn
og fer að garga á hann
hvaða stelpa þetta sé eiginlega
og öskrar bara á hann. Mér hef-
ur aldrei liðið jafn illa og þá!
„
Ég mun ALDREI
gleyma skelfingar-
svipnum á átta ára
stráknum mínum
þegar hann labbaði
inn í stofu um daginn
með tárin í augunum
og sagði: „Pabbi, hvað
ertu að gera við pjöll-
una hennar mömmu?
Mamma, er allt í lagi?
Er pabbi nokkuð vond-
ur við þig?“ Ég hugs-
aði alltaf með mér að
barnið mitt myndi sko
ALDREI labba inn á
okkur, þannig ég hef
aldrei hugsað um hvað
ég myndi segja ef það
gerðist. Ég veit ekki enn
þá hvað ég á að segja
honum!
Ég var niðri á kallinum þegar
eldri sonur minn labbar inn.
Ég þurfti að henda mér á fætur
og með hann inn í herbergi án
þess að snerta hann því hend-
urnar mínar voru ... mengaðar
... Ég kyssti hann ekki góða nótt
þetta kvöld.
Ég var einu
sinni á
djamm-
inu fyrir
mörgum
árum. Ég
var með mjög
stutt hár og lang-
aði að vera svaka pæja þetta
kvöld og ákvað því að vera með
hárkollu. Allavega, þegar ég
var orðin vel drukkin endaði
ég inni á klósetti með manni.
Í öllum hamaganginum rífur
hann í hárið á mér og ég gleymi
sennilega aldrei svipnum á
manninum. Standandi úti á
gólfi með buxurnar á hælunum
og HÁRIÐ mitt í hendinni!
Ég átti
einu sinni
kærasta
og var í
heimsókn
heima hjá
honum og for-
eldrum hans. Við vorum ein
heima þannig við ákváðum
nú að nýta tækifærið, gam-
anið byrjar og við vorum
inni í herberginu hans.
Ég er ofan á og sný að
hurðinni. Allt í einu
opnast dyrnar og var
það ekki stjúppabbi
hans sem ætlaði að koma
til þess að tala við hann.
Skelfingarsvipurinn á pabban-
um og kærastinn minn snapp-
aði og öskraði á hann að fara
út á meðan hann kastaði mér
af sér. Ég held að greyið kall-
inn hafi séð allt! Hann skellti
dyrunum aftur, við heyrum
hratt fótatak upp stigann, úti-
dyrahurðinni skellt og brunað
í burtu á bílnum. Ég lá í hlát-
urskasti á gólfinu og kærastinn
var mjög vandræðalegur. Svona
voru fyrstu kynnin hjá mér og
tengdapabbanum í þessu sam-
bandi. Fjölskyldukvöldmatur-
inn þetta kvöldið var mjög
vandræðalegur!
Það var eitt skipti með einum
fyrrverandi kærasta
þar sem við vor-
um á fullu yfir allt
rúmið og herberg-
ið. Við vorum með
ljósin slökkt upp
á blygðunarkennd
fröken feiminnar
hérna. Við kveikt-
um svo ljósið eftir
apaleikinn og fröken
feimin leið næstum
út af vegna blóðflæð-
is upp í höfuð því hún
hafði byrjað á túr þarna
í miðjum klíðum, og
rúmfötin voru sko ekki
mjög hvít lengur.
Við kveiktum
einu sinni í
rúminu okkar
í miðjum klíð-
um! Við vorum
með kertaljós
aðeins of nálægt
og rúmið endaði logandi!
Þegar búið var að slökkva
eldinn var líka búið að slökkva
í okkur!
„
Ég var einu sinni
ofan á fyrrverandi og
við vorum á brúninni.
Við ætluðum að skipta
um stöðu ég hallaði
mér í vitlausa átt og
lenti á andlitinu! Ég
græddi flott glóðarauga
á því að lenda à nátt-
borðinu. MJÖG VAND-
RÆÐALEGT!!
Við fyrrverandi vorum í rúm-
inu og þá labbar mamma hans
inn, hún skellir aftur dyrunum.
Við ákváðum að halda áfram
og eftir um það bil fimm mín-
útur bankar pabbi hans á dyrn-
ar og spyr okkur hvort við séum
ekki örugglega að nota smokk-
inn, annars ætti hann einn í
skúffunni!
Ég fór einu sinni til fyrrverandi
kærasta míns (vorum búin
að vera hætt saman lengi). Ég
var á túr og var með túrtappa,
við enduðum á því að stunda
kynlíf í rúminu hjá mömmu
hans með túrtappann enn-
þá inni í. Eft-
ir kynlífið fer
ég á klósettið
og reyni að
finna túrtapp-
ann og fer með
höndina upp
en fann hann
ekki. Ég varð
alveg pínu
hrædd og hélt
ég þyrfti að
fara til lækn-
is en ætlaði
samt að bíða í
smá stund og
athuga hvort
hann kæmi
þá ekki bara
sjálfur niður.
Ég fór svo bara
heim en daginn eftir var ég að
tala við litlu systur hans og hún
tjáði mér það að mamma hans
hafi fundið notaða túrtappann
minn í rúminu hjá sér! Ég hef
sjaldan skammast mín svona
mikið!
Fyrsta skiptið okkar saman.
Við erum bæði heima í sveit
í jólafríi, þekkjum til hvort
annars en
erum engir
vinir. Við
erum
búin að
vera að
spjalla
mjög
lengi þegar
við ákveðum
að fara saman
á rúntinn. Hann sækir mig og
við rúntum um alla sveitina en
leggjum bílnum svo aðeins af-
síðis. Við kyssumst og knús-
umst og vindum okkur í það
besta en eftir smá stund fatta
ég að ég er að byrja á blæðing-
um. Einmitt besta mómentið!
Ég stoppa og læt hann vita en
segi við hann að mér sé sama
ef honum sé sama, honum
var sama! Eftir buxna-
lausa partíið hins
vegar sáum við að
það hafði komið
blettur í sængina
sem hann hafði
lagt undir okkur
og þá hófust þessar
samræður:
KK: ,,Veistu hvernig
maður þvær svona sængur? Má
ekki henda þeim í þvottavél?”
Kvk: ,,Jú, það ætti að standa á
þvottaleiðbeiningunum bara.”
KK: ,,ókei, æ, þetta er sængin
hennar mömmu.” Kvk: ,,Hvað
ertu að gera með hana í ... og
þá rek ég augun í útsaum-
uðu púðana sem eru í flestum
sætum bílsins ásamt heklaða
speglaskrautinu sem hékk með
ilmtásunni frammí. Ómægod,
þetta er bíll mömmu þinnar, er
það ekki??” KK: ,,... jú.”
Við ákváðum að þetta yrði
bara gert einu sinni, kvödd-
umst með þeim orðum að
segja engum frá þessu og að
þetta yrði bara okkar á milli.
Tveimur börnum síðar höfum
við staðið fast við þetta og látið
bíl tengdó algjörlega ósnertan!
Ég skammast mín samt mest
fyrir það að greyið tengdamóð-
ir mín hafi þurft að sofa með
þessa sæng svona. Hann nefni-
lega ákvað bara að þurrka hana
með blautri tusku þegar hann
kom heim!
Ég var kasólétt og eins og gengur og
gerist þá hafa menn þarfir. Við erum
í miðjum klíðum þegar dyrunum er
skellt hressilega upp! Kemur elsta
barnið, þá 4 ára, inn og segir: Mamma,
hvað gengur hér á?! Ég var ofan á hon-
um og ekki alveg sú meðfærilegasta
svona kasólétt! Við reynum á fullu með
hjartað í buxunum (sem voru ekki til staðar) að
ýta mér af og í leiðinni að reka hana inn í herbergi!
Ég held að við séum skemmdari en barnið eftir þessa lífsreynslu!
„Við vorum að
stunda kynlíf og
dóttirin sofandi inni í her-
berginu hjá okkur. Allt í
einu heyrist í henni: „Ekki
svona læti, mamma.“
Aníta Estíva Harðardóttir
anita@pressan.is