Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2018, Side 70
70 fólk Helgarblað 2. febrúar 2018
hin hliðin
„Ég væri ósáttur ef makinn stundaði mannát sem áhugamál“
Fjölmiðlamaðurinn og skemmtikrafturinn Auðunn
Blöndal er á leið til Suður-Ameríku ásamt félögum
sínum að taka upp Suður-ameríska drauminn, en þeir
eru nýbúnir að setja þættina Steypustöðin í sýningar.
Hann gaf sér þó tíma milli skemmtiþátta til að setjast
niður og sýna lesendum DV á sér hina hliðina og svara
nokkrum undarlegum spurningum.
Ef þú þyrftir að breyta, hvað myndirðu
vilja heita annað en Auðunn? Er nú nokk-
uð sáttur við Auðunn bara. Veit að ég átti að
heita Daníel á sínum tíma, Danni Blö hefði
alveg sloppið líka.
Hverjum líkist þú mest? Væri til í að segja
Jason Statham, en fæ oftast að ég sé líkur
móðir minni sem er ekki verri kostur heldur.
Í hverju finnst þér þú vera betri en aðrir?
Asnalegt að segja betri en aðrir, en mundi
telja minn helsta kost í fjölmiðlum að finna
hvað virki og hvað ekki.
Hvað finnst þér að eigi að kenna í skólum
sem er ekki kennt þar núna? Spænsku.
Ef þú þyrftir að eyða 100 þúsund krónum
á klukkutíma, í hvaða verslun færirðu?
Mundi líklegast hoppa í næstu golfverslun
og það tæki um þrjár mínútur að eyða þeim!
Hvað viltu að standi skrifað á legsteinin-
um þínum? Það var kominn tími á hann.
Sex ára barn spyr þig hvort að
jólasveinninn sé til. Hvernig svarar þú?
Hvað ertu að spyrja mig krakki? Ræddu
þetta við foreldra þína.
Hvernig myndirðu lýsa litnum gulur fyrir
blindum manni? Það er góð spurning.
Mundi reyna að breyta um umræðuefni,
sennilega.
Ef þú mættir velja eitt lag sem yrði alltaf
spilað um leið og þú gengir inn í herbergi allt
þitt líf, hvaða lag myndirðu velja? Crazy Bast-
ard (sem yrði orðið þreytt á þriðju innkomu).
Hvaða lag hefðir þú viljað hafa samið?
White Christmas upp á stefgjöldin.
Hvaða lag skammastu þín mest fyrir
að hafa haldið upp á? Tubthumping með
Chumbawamba. Mér til varnar að þá var ég
17 ára á Benidorm þegar það var upp á sitt
vinsælasta.
Ef þú þyrftir að dansa til að bjarga lífinu,
undir hvaða lagi myndirðu vilja dansa?
Beat it, eini dansinn sem ég kann.
Hvaða bíómynd hefurðu séð oftast?
Cable Guy og Dumb and Dumber.
Hvað var í tísku þegar þú varst yngri en
er það ekki lengur? Svartar gallabuxur
með tveimur hvítum röndum á hliðunum.
Horbjóður!
Yfir hverju getur þú alltaf hlegið? 30
Rock og Parks and Recreation.
Borðarðu mat sem er kominn fram yfir
síðasta söludag? Nei, og er með þann
kvilla að skoða alltaf síðasta söludag á öllu
sem fer ofan í mig.
Hvað er það furðulegasta sem þú hefur
keypt? Rauður Hyunday Coupe á 100% láni.
Hvert er versta hrós sem þú hefur feng-
ið? Ert ekkert það leiðinlegur.
Heilsarðu frægum Íslendingum úti á
götu, þótt þú þekkir þá ekki persónu-
lega? Já, held að maður nikki nú oftast ef
maður kannast við einhvern.
Hvaða ósið hefur þér reynst erfiðast að
hætta? Að taka í vörina.
Hverju laugstu síðast? Örugglega ein-
hverri spurning hérna að framan.
Um hvað geta allir í heiminum verið
sammála? Jafnrétti.
Hvaða áhugamál myndirðu ekki sætta
þig við að maki þinn stundaði? Mannát.
Á hvern öskraðirðu síðast? Örugglega Steinda.
Hvaða einstakling finnst þér þú þekkja,
þótt þú hafir aldrei hitt hann? Alex Ferguson.
Hvaða hljóð fer mest í taugarnar á þér?
Þegar það er einhver sem á eftir að setja á
sig beltið í bílnum.
Hvaða frægu persónu leistu upp til en
sérð eftir því í dag? Sé ekki eftir neinni,
en viðurkenni að það var erfitt að horfa á
heimavídeó Courtney Love af „ædolinu“
Kurt Cobain í heróínvímu með krakkann
sinn.
Hver er mest kynæsandi teiknimynda-
persónan? Ætla nú ekkert að fara að opna
mig með það …
Hvaða viðburð sérðu mest eftir að hafa
misst af? Michael Jackson á tónleikum og
úrslitaleik United í meistaradeildinni 1999.
Hvaða tveir hlutir eru hræðilegir hvor í
sínu lagi en frábærir saman? Gin og tónik.
Í hvaða íþróttagrein finnst þér að kepp-
endur ættu að leika ölvaðir? Skák.
Hvað verður orðið hallærislegt eftir
fimm ár? Að vera með rakað í hliðunum og
„manbun“. Eða bara ég svekktur að geta
ekki tekið þátt í því.
Hvaða teiknimyndapersónu myndirðu
vilja eiga sem vin? Cartman.
Hvað ættu allir að prófa að minnsta
kosti einu sinni í lífinu? Að hlæja.
Hvað myndirðu segja ef Guð hnerraði?
Gaman að sjá þig!
Ef þú værir ritstjóri dagblaðs og sama
daginn myndi Lagarfljótsormurinn
finnast, Frikki Dór vinna Eurovision fyrir
Íslands hönd og Donald Trump verða
myrtur. Hver væri stærsta fyrirsögnin í
blaðinu þínu daginn eftir? Mundi peppa
Frikka Dór!
Ef þú kæmir einn daginn heim úr
vinnunni og þar væri enginn nema
Leoncie í sturtu, mundirðu hringja í
lögregluna? Nei, nei, mundi bara fara yfir
gærkvöldið aðeins betur í hausnum á mér.
Hver er tilgangurinn með þessu jarðlífi?
Það er góð spurning – njóta þess.
Hvað er framundan um helgina? Erum að
fara til Suður-Ameríku að taka upp Suður-
ameríska drauminn.
lítt þekkt
ættartengsl
gyðjan og Píratinn
Sigrún Lilja
Guðjónsdóttir
Hefur getið sér gott
orð hér heima og
erlendis með úrum
og fleiri vörum
undir merki Gyðja
Collection.
s
igrún Lilja Guðjónsdóttir,
eigandi hönnunarmerkis-
ins Gyðja Collection, hefur
getið sér gott orð fyrir vörur
sínar, bæði hér heima og erlend-
is. Í vikunni setti hún nýjustu vöru
sína í sölu og þá hefur hún einnig
boðið upp á ferðir fyrir konur til
Balí og Karíbahafsins sem bjóða
upp á sjálfstyrkingu og leiðir til að
láta draumana rætast.
„Litla systir“ Sigrúnar Lilju er
Dóra Björt, 2.
varaþingmað-
ur Pírata í Suð-
vesturkjördæmi
og stjórnarkona
í Solaris, hjálp-
arsamtökum fyr-
ir hælisleitendur
og flóttafólk á Ís-
landi. Dóra Björt
er heimspeking-
ur og alþjóðafræðingur og stund-
ar núna nám á meistarastigi í al-
þjóðasamskiptum. Í fyrra bjó hún
í Brussel þar sem hún var í starfs-
námsstöðu hjá Evrópuþingmanni
Pírata, Juliu Reda, á Evrópu-
þinginu.
Systurnar hafa valið sér gjöró-
líkan starfsvettvang í lífinu, sem
báðir eru þó þess eðlis að þær hafa
mikil samskipti við aðra einstak-
linga og koma reglulega fram í
fjölmiðlum. En þrátt fyrir ólíkan
starfsvettvang og sjö ára aldurs-
mun eru þær einstaklega sam-
rýndar og leita oft ráða hjá hvor
annarri.
Dóra Björt
Guðjóns-
dóttir
Auðunn Blöndal
Hefði viljað semja
White Christmas
upp á stefgjöldin.
rautt spjald ef þú drekkur rauðvín við stofuhita
Logi Geirsson stofnaði Facebook-hóp um rauðvín sem hefur slegið í gegn
f
yrir tæpum tveimur vikum
stofnaði handboltakempan
Logi Geirsson Facebook-
hópinn Rauðvín á Íslandi.
Óhætt er að segja að framtak-
ið hafi slegið í gegn því um 1.000
manns hafa skráð sig í hópinn og
umræðurnar eru fjörugar. Not-
endur eru að mæla með vínum
sem og að óska eftir ráðlegging-
um og er Logi óþreytandi við
að deila úr viskubrunni sínum
ásamt öðrum áhugamönnum.
„Vinsældir síðunnar hafa komið
mér ánægjulega á óvart. Ég vona
að það fjölgi enn frekar í hópnum
og þarna geti fólk spurst fyrir um
vín og fengið ómetanlegar ráð-
leggingar. Það eru alllir velkomn-
ir og það er ánægjulegt að sjá að
þetta virðist vera þverskurður af
samfélaginu,“ segir Logi.
Komst á bragðið í Þýskalandi
Logi er þeirrar gerðar að þegar
hann fær áhuga á einhverju þá
tekur hann það alla leið og það á
svo sannarlega við um rauðvín-
ið. „Ég fékk áhuga á rauðvíni árið
2006 en þá bjó ég í Þýskalandi,
þar sem vínmenningin er mikil.
Það var aðallega einn besti vinur
minn, sem er ítalskur, sem kom
mér á bragðið,“ segir Logi. Síðan
þá hefur hann lesið ógrynni bóka
um rauðvín sem og auðvitað
drukkið ófá glösin. „Ég leita oft
til vinar míns,
Aðalsteins
Arnars Jó-
hannes-
sonar, sem
er yfir-
burðafróð-
ur, ef það væri til landslið í vín-
smökkun þá væri hann fyrirliði.“
segir Logi, sem segist dreyma um
að gefa út bók með Aðalsteini.
„Addi er snillingur í að para
saman mat og vín. Það er eitthvað
sem er mörgum hulið en það tek-
ur bæði vínið sem og matinn á
næsta stig að mínu mati,“ segir
Logi. Slík þekking er þó iðulega
fyrir lengra komna en Logi segir
að hann verði alltof oft var við að
fólk sé að gera grundvallarmistök
í rauðvínsdrykkjunni. „Til dæmis
eru margir að drekka rauðvín við
stofuhita, 22–24 gráður. Það er
bara rauða spjaldið hjá mér,“ seg-
ir Logi og útskýrir að það sé him-
inn og haf milli þess að drekka
rauðvín við stofuhita eða á kjör-
hitastigi sem er iðulega 15–18
gráður.
„Markmiðið er að inni á síð-
unni getir þú fengið svör og ráð-
leggingar við öllum þessum
spurningum. Til dæmis hvernig
best sé að geyma vínið, af hverju
það þurfi að forða flöskunum
frá birtu og hvaða árgangar séu
betri en aðrir. Þá er líka ætlunin
að mæla með tilteknum flöskum
með ákveðnum matartegund-
um,“ segir Logi, sem er spenntur
fyrir framhaldinu.
Athygli vekur að margir þekkt-
ir íþróttamenn eru mjög
virkir í hópn-
um, til dæmis
knattspyrn-
Þrjár eftirlætis rauðvínstegundir loga
DV fékk Loga til þess að velja þrjár eftirlætisvíntegundirnar sínar. Hann lét vaða eins og honum einum
er lagið en tók þó fram að stemningin og maturinn sem borinn er fram með víninu hafi oft mikið að segja um
upplifunina.
1. 1000 Stories Zinfandel. Þetta vín frá Bandaríkjunum valdi ég sem vín vikunnar í Facebook-hópnum. Það
fæst í Fríhöfninni og í flestum vínbúðum. Þetta er geggjað vín. Áhugasamir geta nálgast ítarlega umsögn um það á
síðunni.
2. N°1 Saint- Cernin - 2016. Ég var svo heppinn að fá að smakka nýja vínið hans Róbert Wessman og það er
algjör bomba! Ég veit ekki hvort það komi á markað hérlendis en það er svakalegt. Allir þurfa að eignast svoleiðis
flösku.
#3. Trapiche Gran Medalla Malbec 2014. Þetta vín er frá stærsta og elsta vínhúsi Argentínu og hefur
spilað lykilhlutverk í að koma argentínskum vínum á kortið. Algjörlega geggjað vín.
umaðurinn Emil Hallfreðsson og
handboltakapparnir Björgvin Páll
Gústavsson og Patrekur Jóhann-
esson. Það er því ekki hægt annað
en að spyrja hvort afreksíþrótta-
menn kunni betur en aðrir að
njóta lífsins lystisemda. „Já, ætli
það ekki. Menn þurftu að snúa sér
að einhverju öðru eftir að Ísland
datt út af EM í handbolta og þá var
rauðvínið augljós valkostur,“ segir
Logi kíminn. n
Logi Geirsson Facebook-hópurinn,
„Rauðvín á Íslandi“ sem hann stofnaði í
janúarlok hefur slegið í gegn.