Morgunblaðið - 06.09.2018, Page 9

Morgunblaðið - 06.09.2018, Page 9
Reykjastræti er nýtt fasteignafélag. Fasteignasafn félagsins telur um 33 þúsund fermetra í þremur nýbyggingarverkefnum sem verða tilbúin að mestu á á r i n u 2 0 1 8 t i l á r s l o k a 2 0 1 9 . R e y k j a st ræ t i e r systurfélag ÞG verktaka. Félagið leitar eftir farsælu langtíma viðskiptasambandi við sína leigjendur og stendur félagið fyrir gæði og áreiðanleika í viðskiptum. DALVEGUR 32 samanstendur af tveimur staðsteyptum fjölnotahúsum miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu tilbúnum á árinu 2019. Leigurýmin eru frá 1.050 til 5.000 fermetrar sem henta undir fjölbreytta starfsemi þ.m.t. fyrir notendur sem kjósa miðlæga staðsetningu með tilliti til verslunar eða vörudreifingar. Nýtanleg lofthæð er um 8 metrar og tækifæri er að aðlaga húsin að þörfum notandans. HAFNARTORG er blönduð byggð af nýjum skrifstofum, íbúðum og verslunum. Glæsilegar skrifstofur verða til leigu frá og með næstu áramótum. Stærð rýma er frá 200 til 2.500 fermetra. Í húsinu verður boðið uppá þjónustu við leigjendur s.s. móttökuritara og aðgang að sameiginlegum fundarherbergjum og skrifstofum. Einn stærsti bílakjallari landsins verður undir Hafnartorgi og að Hörpu. Hafnartorg verður iðandi af mannlífi og menningu og kærkomin viðbót við stækkandi miðbæ Reykjavíkur. NÝJAR EIGNIR TIL ÚTLEIGU REYKJASTRÆTI FASTEIGNAFÉLAG REYKJASTRAETI . IS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.