Morgunblaðið - 06.09.2018, Síða 52
ávaxtamauki, jarðarberja og app-
elsínu.
Eins og hefðin býður hófu mat-
gæðingarnir veisluna á því að borða
skonsurnar og það sem var á neðri
diskunum og var það samróma álit
þeirra að það sem það var að finna
væri hvað öðru betra. Vöfflurnar
með þremur mismunandi fyllingum
voru hver annarri betri, lambaöxlin
kom verulega á óvart þar sem
kryddað kjötið spilaði skemmtilega
með sætri vöfflunni. Þá var bleikjan
virkilega bragðgóð, léttreykt og lít-
ið söltuð og reykti rjómaosturinn
setti punktinn yfir i-ið. Skonsurnar
voru léttar og bragðgóðar, þrungn-
ar safaríkum bláberjum og aug-
ljóslega nýbakaðar.
Stófengleg kirsuberjakaka
Og svo var það sætmetið. Á efstu
hæð tertudisksins góða voru
Sumarsæla, sem er kókosmús á
kókosmarengsbotni með mangó-
kremi, súkkulaðimús og hvítsúkkul-
aði-ganache, karamellu-crankie sem
samanstendur af karamelluköku og
karamellumús á pistasíubotni og
Cherry delight, sem er kaka í líki
stórs kirsubers á hvítsúkkulaði-
kexbotni með kirsuberjamús og
kirsuberjafyllingu. Allt var þetta
sérstaklega fallegt og bragðið var
ekki síðra. Kókosfyllingin í Sumar-
sælunni var sérlega létt og tónaði
vel við mangókremið, karamellu-
crankie kakan var með höfugu
karamellubragði án þess að vera of
sæt. En vinninginn í sætmetis-
samkeppninni fær kirsuberjakakan
Cherry delight, sem uppfyllti allar
þær kröfur sem gera má til köku;
súrt kirsuberjabragðið féll einkar
vel að sætum hvítsúkkulaðibotn-
inum þannig að úr varð hreinasta
sælgæti.
Kampavínið skemmir ekki
Eins og fram kom hér að framan
er síðdegiste Apóteksins frumlegt
og öðruvísi og það er fyrst og
fremst vegna þess að þar er verið
að nota hráefni sem er ekki vana-
legt í síðdegistei, eins og t.d. lamba-
kjöt og önd. Máltíðin verður þannig
nokkuð matarmeiri en gerist og
gengur með hefðbundið síðdegiste
og það er því í góðu lagi að mæta
svangur á staðinn.
Með þessu var að sjálfsögðu boð-
ið upp á te og var hægt að velja
á milli fjögurra teg-
unda. Matgæðing-
arnir tveir
völdu sér
Earl Grey
með blóð-
bergi og
magnolíute og
mæltist hvort-
tveggja vel fyrir.
Einnig er hægt að
bæta glasi af Cava-
freyðivíni eða Bollinger
Special Cuvée-kampavíni
við fyrir aukagjald og
mæla útsendarar Mat-
arvefsins heilshugar
með kampavíninu.
Það gerir annars góða
upplifun enn betri!
Sá siður að drekka síðdegiste á
rætur sínar að rekja til Bretlands
um miðja 19. öld og upphaflega
hugmyndin var að þetta væri nokk-
urs konar smámáltíð sem myndi slá
á sárasta hungrið á milli hádegis-
og kvöldverðar. Áður fyrr buðu fín-
ar dömur öðrum fínum dömum til
síðdegistes á heimilum sínum og
þegar Viktoría drottning tók þenn-
an sið upp á arma sér varð hann
einn útbreiddari. Í dag fara Bretar
gjarnan í síðdegiste við hátíðleg til-
efni, eins og t.d. á afmælum og öðr-
um slíkum tímamótum, oft á glæsi-
hótelum og hefur siðurinn breiðst
út víða.
Og nú til Íslands, en Apótek hóf
nýverið að bjóða upp á síðdegiste
og hefur það mælst einkar vel fyrir.
Teið er í boði á milli klukkan 14.30
og 17, þá tekur Happy Hour við og
alveg kjörið að ljúka herlegheit-
unum með eins og einum kokkteil.
Matarvefurinn fékk tvo val-
inkunna sælkera til að heimsækja
Apótek og taka síðdegisteið út.
Téðir sælkerar hafa ýmsa fjöruna
Síðdegiste
sem sló í gegn
Ef einhver veitingastaður á Íslandi býður upp á
rétta umhverfið fyrir síðdegiste, eða Afternoon
Tea eins og það er kallað úti í hinum stóra heimi,
þá er það Apótek þar sem hið hefðbundna og ný-
tískulega spila skemmtilega saman þannig að úr
verður hin besta blanda.
Bláberjaskonsur
Með hleyptum rjóma og
ávaxtamauki.
(eða ýmsan tebollann) sopið og hafa
það fyrir sið þegar þeir fara til
London að heimsækja eitt af þeim
fjölmörgu glæsihótelum þar í borg
sem bjóða upp á síðdegiste.
Það voru því fagmenn sem sett-
ust að snæðingi á Apóteki síðdegi
eitt í síðustu viku.
Með íslenskum keim
Síðdegisteið á Apóteki er borið
fram á sígildan hátt, á þriggja hæða
tertudiski þar sem sætmetið trónir
á efsta diski og svo er það salta og
kryddaða á þeim neðri. En fram-
setningin er hér um bil það eina
sem er hefðbundið, því að hér er
sannarlega verið að fara nýjar og
spennandi leiðir. Líklega væri nær
að kalla þetta íslenskt síðdegiste en
ekki breskt.
Á neðri diskunum tveimur mátti
finna samlokur með túnfisksalati og
sýrðum gúrkum (að sjálfsögðu
var brauðið hvítt og skorið í
litla þríhyrninga), þar
var reykt bleikja
með reyktum
rjómaosti á búst-
inni belgískri
vöfflu (osturinn
er reyktur á veit-
ingastaðnum),
hægelduð lambaöxl
með gulrótum og gerj-
uðum hvítlauk sem var líka
á vöfflu og svo anda-confit, kara-
melluð ferskja, epli og mal-
tsósa sömuleiðis á belgískri
vöfflu.
Að auki voru á hliðar-
diski bláberjaskonsur með
hleyptum rjóma (e. clotted
cream) og tvær tegundir af
Hið fullkomna síðdegi
Það er fátt snjallara en
að eyða síðdeginu við að
sötra te og gæða sér á
ljúffengum veitingum.
Kokteillinn Gillagin
Reykt bleikja Borin fram
á belgískri vöfflu með
reyktum rjómaosti.
Hægelduð lambaöxl
Með gulrótum og
gerjuðum hvítlauk.
Kirsuberjakaka
Með kirsluberjamús og
hvítsúkkulaðibotni.
Sumarsæla
Með kókosfyllingu
og mangókremi.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2018
Skál fyrır hollustu