Morgunblaðið - 06.09.2018, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 06.09.2018, Blaðsíða 50
Lilja Ósk Sigurðardóttir snyrtipenninn@gmail.com ,,Með þessu ilmvatni vildum við leggja áherslu á fleirtölu og kynn- ingarherferð ilmvatnsins sýnir konur sem vilja skapa sitt eigið auðkenni en einnig styðja og ryðja brautina fyrir konur sem á eftir þeim koma,“ segir Raf Simons og segir jafnframt að Calvin Klein Women sæki innblástur í styrk og innblástur sem færist frá einni konu yfir til annarrar; þar sem fleirtala sameinast einstaklings- hyggjunni. Ilmvatnið, ilmvatns- glasið og herferðin er allt hannað af konum. Andlit herferðarinnar eru leik- konurnar Lupita Nyong’o og Sao- irse Ronan en þær eru þekktar fyrir hæfileika sína, sköpunarmátt og sterkan karakter. Í auglýsing- unum má sjá andlit þeirra í lit ásamt myndum af tveimur konum í svarthvítu sem hafa veitt þeim inn- blástur í gegnum tíðina. Nyong’o valdi söngkonuna Eartha Kitt og leikkonuna Katharine Hepburn en Ronan valdi leikkonuna Sissy Spa- cek og söngkonuna og baráttukon- una Ninu Simone. Ilmurinn sjálfur er viðarkenndur blómailmur sem er sérlega fág- aður. Þrjú innihaldsefni standa upp úr, en það eru eucalyptus, app- elsínublóm og sedrusviður frá Alaska. Þessi hráefni blandast svo svörtum pipar, sítrónu, magnolíu og jasmín en með þessu sameinast styrkur viðkvæmni og ferskleiki sameinast munúð. Ilmurinn er fín- stilltur og inniheldur hágæða hrá- efni sem standast samanburð við einstaka ilmvatnsframleiðendur á borð við Byredo og Le Labo en há- gæða ilmvötn frá minni ilmvatns- framleiðendum hafa sjaldan verið vinsælli en nú. Á samfélagsmiðlum er herferð í gangi undir myllumerkinu #IAMWOMEN þar sem konur birta myndir af þeim konum sem hafa veitt þeim innblástur í lífinu. Innblástur frá einni konu til annarrar Eartha Kitt, Katharine Hepburn og Lupita Nyong’o. Calvin Klein Women er fyrsta ilm- vatn tískuhússins í þrettán ár. Sissy Spacek, Nina Simone og Saoirse Ronan. Fyrsta ilmvatn Calvin Klein í þrettán ár ber heitið Women og er jafn- framt það fyrsta undir stjórn Raf Simons sem listræns stjórnanda tískuhússins. Marta María mm@mbl.is Sumir tengja flauel við glataðasta tímabil lífs síns, sjálf unglingsárin. Ég tengi því 13 ára gamla ég fermd- ist í sléttflauelsstuttbuxum sem þóttu klassískar. Síðan þá hefur flauelið að- allega ratað inn á heimilið í formi púða og rúmgafla, en nú er nýtt twist í augsýn. Flauelið er með endurkomu. Og það er ekki nóg með það heldur er kaðlapeysan líka dottin inn og líka jakkar úr riffluðu flaueli. Í haustlínu Polo Sport frá Ralph Lauren birtist þetta í allri sinni dýrð og maður gerir sér aukaferð í Kringluna til að skoða þetta góss í Mathilda. Næsta skref er líklega að kaupa sér rúskinnsjakka með kögri, setja á sig belti með risa- sylgju með Íslandi og kaupa sér kúrekaskó/stígvél. Þessi sveitastíll er heillandi og hentar ágætlega við haustlægðirnar. En það er líka hægt að fara með þessa tísku of langt. En hver og einn verður að finna sig. Þetta er nefnilega bæði hlýtt og nokkuð skjólgott. Það er töluvert betra að vera í þessu en í sparikjólum úr sund- bolaefni og pleður- jakka. Skjólgott eins og í gamla daga Ef þú ert eitthvað að velta fyrir þér hausttískunni þá er örlítill leiðarvísir hér. Flauel, ull, rúskinn og leður verða áberandi í vetur. Flott form Þessi stígvél eru mjög fersk og flott. Þau fást í Zara. Mjög næntís Þessi ullarjakki fæst í Mathilda í Kringl- unni. Nettur hippi Í hausttískunni er smá hippafíl- ingur sem er svo heillandi. Hann passar líka vel við flauelið. Þessi föt koma frá Zara. Nett næntís Þessi flauels- jakki er flottur. Hann fæst í Mathilda í Kringlunni. Aldrei of mikil Am- eríka Peysa með banda- ríska fán- anum er hlý og góð. Hún fæst í Mat- hilda í Kringlunni. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2018 W W W. S I G N . I S
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.